Frjáls verslun - 01.08.1979, Síða 24
notar til framleiðslu sinnar, hafa
líka hækkað í veröi. Fólk finnur, aö
einhver er að blekkja það, og
heldur, að einkaframtakið sé
sökudólgurinn, þótt ríkið sé það í
rauninni. Það kennir þeim, sem
selur vöruna, um verðhækkun
hennar, eins og öll skrifin um olíu-
félögin í Bandaríkjunum vegna
verðhækkunar olíu sýna vel".
Þú hefur nefnt eina ástæðu til
þess, að verðbólga sé óæskileg.
Geturðu nefnt fleiri ástæður?
,,Já. í fyrsta lagi torveldar hún
mönnum að búa sig undir framtíð-
ina, gera samninga fram í tímann. í
öðru lagi tapa þeir hópar á henni,
sem hafa þegar gert eitthvað slíkt,
svo sem ellilífeyrisþegar. í þriðja
lagi verður óþægilegra og erfiðara
að fylgjast með verði, ef það
hækkar í sífellu, og menn geta því
ekki gert eins hagkvæm innkaup
og ella".
Getur verðlagseftirlit haldið
verðbólgu niðri?
,,Síður en svo. Verðlagseftirlit er
til þess eins, að erfiðara verður að
reka þjóðarbúskapinn, hagkerfið
verður stirðara og ósveigjanlegra.
Til dæmis má taka, að hámarks-
verð er á olíu í Bandaríkjunum.
Hverjar eru afleiðingarnar? Þær
eru, að benzínstöðvarnar loka á
helgum, því að þær fá enga auka-
þóknun fyrir opnun þá og starfs-
mennirnir vinna ekki á venjulegu
kaupi á helgum. Verðlagseftirlitið
lokar þannig öllum leiðum til þess
að launa fólki fyrirhöfn við sér-
staka þjónustu, sem neytandinn
verður því af. Sveigjanlegt verðlag
auðveldar aðlögun að óskum
neytendanna. Frjáls álagning er
umfram allt hagsmunamál neyt-
endanna".
Verðbólgan er eins og þú veizt
miklu meiri meinsemd á Islandi
en í flestum öðrum Jöndum. Hvað
getum við gert?
,,Ég sagði það og segi enn, að
orsök verðbólgunnar í hagfræði-
legum skilningi er sú, að ríkið eyk-
ur peningamagnið óhóflega, ann-
aðhvort með seðlaprentun eöa
öðrum ráðum, svo sem rangri
lánastefnu. En auðvitað er málið
ekki svo einfalt. Hvers vegna eykur
ríkið peningamagnið óhóflega?
Mér virðist af stuttri dvöl á íslandi,
að svarið hér sé hið sama og í
Bretlandi, að verkalýðsfélögin
miði kröfur sínar í kjarasamning-
um við það, að ríkið haldi seðla-
prentun áfram og verðbólgan
haldi því áfram. Og ríkið heldur
seðlaprentuninni áfram af ótta við
atvinnuleysi, sem væri ella rökrétt
afleiðing af of háum kröfum
verkalýðsfélaganna. Verkalýðsfél-
ögin haga sér alls ekki óskynsam-
lega með þessu, þau hljóta að
miða við áframhaldandi verð-
bólgu, á meðan annað sýnir sig
ekki. Þannig verður til vítahringur.
Mestu máli skiptir til þess að rjúfa
hann, að ríkið hætti óhóflegri
fil IMOREMA fii IMOREMA
Eldhúsinnréttingar, fataskápar, baðinnréttingar
Hillur, handlaugar, vaskar, baðkör.
Komið við í sýningardeild okkar no: 1
og kynnist Norema.
innréttinga- Háteigsvegi 3
húsP
Verslun sími 27344
fii IMOREMA
24