Frjáls verslun - 01.08.1979, Page 35
LSI-11/2, Zilog Z8000 og Z8,
Hewlett Packard System 45, Phil-
ips MP8048, Data General Nova,
Intel 8088, Texas Instrument 9940
sem er aö koma á markaöinn o.fl.
o.fl.
Útstöðvar (terminals) — hugsan-
leg bylting
Meö aukinni framleiöslu smá-
tölva styttist óöum í það aö tölvur
verði almenningseign. Árlegur
markaður fyrir tölvukerfi er talinn
vera um 30 milljarðar dollara og
hann er aö verða aö stærsta hluta
fyrir smátölvur og útstöövar meö
vinnsluverki, svokallaöar ,,On--
line“ og ,,Real time" útstöövar, en
með notkun þeirra skapast mögu-
leikar á sjálfstæðri vinnslu tengdri
miðtölvu, án þess aö skammta
þurfi ákveðinn aðgöngutíma fyrir
ákveöin verkefni. Þetta er sama
kerfi og notað er af flugfélögum
um allan heim, þar sem hver bók-
unarútstöð vinnur sjálfstætt og
kemst inn á miðtölvu eða kjarna-
tölvu hvenær sem er. Hvað hér er
að gerast sést ef til vill bezt á því að
General Electric í Bandaríkjunum,
sem rekur stærsta tölvukerfi ver-
aldar, GEISCO, sem byggist á
notkun 150 stórra kjarnatölva sem
tengdar eru um gerfihnött, býður
nú sínum viðskiptaaðilum uppá
útstöövar með vinnslugetu. Þótt
GEISCO sé fært um að vinna
hvaða tölvuverkefni sem er, hefur
það sýnt sig að mun ódýrara er að
láta útstöðvar vinna stóran hluta
verkefnanna á staðnum og hafa
möguleika í aðgangi aö GEISCO
þegar erfiðari verkefni þarf að
vinna.
Tölvupóstur
Annar möguleiki, sem er aö
opnast með notkun útstöðva
tengdum kjarnatölvu eða kjarna-
tölvuneti eins og GEISCO, er að
endurbæta stórkostlega boömiðl-
un á milli fyrirtækja eða einstakra
deilda stærri fyrirtækja. Þessu
mætti líkja við eins konar tölvu-
póst. Útstöðvar með vinnslugetu
geta unnið að því, t.d. á næturna,
að þjappa saman tölvumáli, það er
bréfum, skýrslum, athugasemdum
o.fl. o.fl. sem síðan er sent um
símalínu til kjarnatölvu sem tekur
það inn á geymsluminni á einu
augnabliki. Kjarnatölvan sendir
síðan þetta efni til viðkomandi út-
stöðva á þeim tíma sem þar er
minnst álag daginn eftir.
Því er jafnvel spáð að þegar
fjöldinn allur af bandarískum fyrir-
tækjum verður kominn með út-
stöðvar tengdar kjarnatölvum um
gerfihnetti innan fárra ára, muni
þessi boðmiðlun leysa telex-kerfið
af hólmi. Á því stigi er því einnig
spáð að tölvan verði jafn sjálfsögð
(það er útstöð) og símtæki eru nú.
20-30% verðlækkun á tölvu-
vinnslu
Vegna þess að megin áherzlan
hefur verið lögð á útstöðvanotkun,
og að útstöðvarnar geta unnið
sjálfar mikið af verkefnum en eru
engu að síður tengdar kjarnatölv-
um, hefur verðið á tölvuvinnslu
lækkað víðast hvar erlendis um
20-30% á ári síöustu tvö árin.
Fyrirtæki sem annast tölvuvinnslu
hafa komist af með mun minni
fjárfestingu í tækjum án þess að
vinnslugeta þeirra hafi minnkað.
[ Evrópu er höfuðáherzlan nú
lögð á þaö að koma upp tölvunet-
um þar sem byggt er á útstöövum
með takmarkaða vinnslugetu og
kjarnatölvum. Þróun fjarskipta
hefur einnig verið með þeim hætti
á undanförnum árum að nú skiptir
ekki lengur máli hver fjarlægðin er
á milli kjarnatölva og útstöðva,
tölvur geta unnið saman hvort sem
þær eru undir einu og sama þak-
inu eða þúsundir kílómetra frá
hvor annarri.
Æfintýralegur hraði
Boðgeymsla eða söfnun nauð-
synlegra upplýsinga fyrir tölvur
hefur tekið miklum framförum á
stuttum tíma. Seguldiskar eru nú
orðið að þróast í tvær áttir. Annars
vegar eru 5'/2 tommu diskar
(floppy discs) sem sífellt verða
ódýrari og áreiðanlegri og eru nú
komnir í stað snældubanda í flest-
um tölvukerfum nema þeim allra
minnstu. Stökkdiskurinn (floppy)
vinnur á svipaðan hátt og stærri
snúningsdiskar, en með haus eöa
nema sem getur bæði lesið af og
skráð inn á hvaða stað á diskinum
sem er. Stærri diskar, 8 tommu,
eru að vinna á og þá sem tveggja
hliða diskar í staö einhliða. Þessir
diskar geta nú varðveitt allt að 570
megabytes en það eru 570 milljón
tölvutákn. Til þess að gefa ein-
hverja hugmynd um hve hér er um
mikinn hraða og minnisrými að
ræða getum við umreiknað einn
slíkan disk, sem er ekki nema
rúmlega 20 cm í þvermál, yfir í
meðalstórar skáldsögur. Lætur þá
nærri að á einn disk komist bóka-
safn með 1000 skáldsögum eða
um 100 milljón orð. Þessi diska-
búnaður getur flutt upplýsingar til
kjarnatölvu með hraða sem er frá
800 þúsund-1,8 milljón bytes á
sekúndu. Ef við tökum hærri töl-
una þá þýðir það að hægt er að
flytja á milli 3 meðalstórar skáld-
sögur á hverri sekúndu. Ef við
höldum aðeins lengra með þetta
dæmi að gamni okkar þá þýddi
það, að kerfið gæti flutt allt
Tæknibókasafn Iðnþróunarstofn-
unar, þar sem þessar upplýsingar
eru fengnar, á milli á rúmum 33
mínútum. Það þætti góður lestrar-
hraði hvar sem er.
35