Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1979, Síða 50

Frjáls verslun - 01.08.1979, Síða 50
Svíþjóð er þaö t.d. álit manna, að bólstruð húsgögn, sem eru í sjónvarpsherbergi, eigi að endast í 5 ár og síðan verði skipt um. Að sjálfsögðu er tízka í húsgögnum sem öðru. Mismunandi viðartegundir eru ráðandi, má í því sam- bandi benda á tekk—öldu o.s.frv. Eik hefur verið mjög ráöandi aö undanförnu í húsgögnum, skinn og pluss í bólstrun. — Hvað viltu segja um þá atlögu, sem sérstaklega hefur verið gerð að verzluninni á undanförnum misserum? — Hjalti Geir: Að mínu mati hefur ekki verið gerð nein atlaga að verzluninni sjálfri. Gagnrýnin hefur beinzt gegn því haftakerfi og margvíslegu opinberu afskiptum, sem gera það að verkum, að verzlunin skilar ekki þeim árangri af sínu starfi, sem annars væri mögulegt. Ef við gæfum verðmyndunina frjálsa, heimiluðum gjaldfrest á aðflutningsgjöldum og hætt- um að torvelda verzluninni að fjármagna sína starf- semi, sæjum viö stórfellda bryetingu á verzluninni. Lægra vöruverð, meira vöruframboð og betri þjón- ustu. Þessar breytingar eru svo augljóslega öllum í hag, bæði neytendum, starfsmönnum og eigendum verzlunarfyrirtækja, að þær hljóta að gerast innan tíðar. Verzlunin er hér á sama báti og ýmsar aðrar mikil- vægustu atvinnugreinar okkar. Landbúnaöurinn býr t.d. við kerfi, sem leitt hefur framleiðsluna í ógöngur og sjávarútvegurinn glímir við enn annað kerfi, sem erfitt er að samrýma hagkvæmustu nýtingu á fiski- stofnunum. Þessi dæmi sýna okkur, að þær opinberu forskriftir sem atvinnulífið starfar eftir, hafa leitt okkur í ógöngur. við verðum því að auka svigrúm atvinnu- lífsins til starfa með auknu frjálsræði. Atvinnulífið verður tvímælalaust að kynna sínar aðstæður al- menningi og stjórnvöldum í mun ríkara mæli en verið hefur og verða leiðandi afl í að færa fram breytingar á sínum starfsskilyrðummsbsY Þú gegnir formennsku í Verzlunarráði íslands. Hver telurðu brýnustu verk- efni þeirra samtaka miðað við ástandið i íslenzku efnahagslífi nú? — Þú gegnir formennsku í Verzlunarráði íslands. Hver telurðu brýnustu verkefni þeirra samtaka miðað við 'astandið í íslenzku efnahagslífi? — Hjalti Geir: Verzlunarráðið starfar á mjög breið- um grundvelli, enda eiga fyrirtæki úr flestum greinum atvinnulífsins aðild að ráðinu. Okkar starfsemi beinist því bæði að sameiginlegum framfara- og hagsmuna- málum atvinnulífsins svo að málefnum einstakra greina innan ráðsins. Brýnasta hagsmunamál atvinnulífsins er án efa stöðugt verðlag. I okkar atvinnustefnu höfum við sett fram hugmyndir um baráttuaðferðir gegn verðbólg- unni. Við viljum einnig beita okkur fyrir því, að dregið verði úr skattheimtunni, og hún gerö einfaldari og réttlátari — auka frjálsræði í gjaldeyrisviðskiptum og gefa verðmyndunina frjálsa. Hið sama gildir um á- kvörðun vaxta. í öllum þessum málum erum við aö vinna. Við erum að athuga þjónustu Pósts og síma og kanna orkuverð atvinnurekstrar. Ýmis löggjöf um at- vinnumál er í athugun hjá okkur. Einnig eru kynning- ar- og útbreiðslumál á dagskrá. Loks má nefna mál einstakra greina eins og t.d. gjaldfrest á aðflutnings- 50 gjöldum og að koma á frjálsum innflutningi á kexi og sælgæti samhliða því að innlendir framleiðendur fengju undanrennu- og mjólkurduft á heimsmark- aðsverði með sama hætti og gert er með ullina. — Hvernig fer það saman að standa framarlega í samtökum iðnaðarins, þar sem áherzla er lögð á sérstakar stuðningsaðgerðir við inniendan iðnað og að menn kaupi innlent, en vera svo á hinn bóginn í forystu fyrir samtökum sem berjast fyrir frjálsum viðskiptaháttum og hagkvæmni af hömlulausum verzlunarsamskiptum við framleiðendur í öðrum löndum? — Hjalti Geir: Á undanförnum árum hafa atvinnu- vegirnir deilt um það, hver þeirra sé mikilvægastur, mestur og beztur. Hagsmunabaráttan hefur einnig verió sama marki brennd og því miður of oft leitt til sérstakrar ívilnunar eins á kostnað annarra. I heild hefur atvinnulífið verið verr sett en áður og sameig inlegu hagsmunamálin verið jafnóleyst og fyrr. Mönnum er i vaxandi mæli að skiljast að atvinnulífið og lífskjörin byggjast á víðtækri verkaskiptingu og sérhæfingu, þar sem hver atvinnugrein styður aðra. Við slíkar aðstæður þarf atvinnulífið almenn og sanngjörn starfsskilyrði, þar sem fyrirtækin, starfsfólk þeirra og stjórnendur fá svigrúm til þess að vera sinnar eigin gæfu smiðir, án þvingandi opinberra forskrifta. Verzlunarráðið hefur undanfarið lagt sig sérstak- lega fram í tillögugerð um starfsskilyrði atvinnuveg- anna. Okkar tillögur virðast eiga vaxandi fylgi að fagna. Jafnt og þétt bætast ný fyrirtæki í hópinn — úr ólíkustu atvinnugreinum — sem vilja leggja sitt af mörkum til að stefna okkar nái fram að ganga. Sem formaður íslenzkrar iðnkynningar og iðn- kynningarárs vildi ég vinna að kynningu á stöðu iðn- aóarins og þeim atvinnustefnulegu baráttumálum sem atvinnulífinu og iðnaðinum ríður á að komið verði í höfn: raunhæfri gengisskráningu frjálsri verðmyndun skynsamlegri og hóflegri skattlagningu jafnrétti og frjálsræði í lánamálum stöðvun verðbólgunnar Verzlunarráðið var og er rökréttur vettvangur til að vinna að þessum baráttumálum áfram. í stefnu Verzlunarráðs í efnahags- og atvinnumálum eru þessum málum gerð ítarleg skil. Þar eru settar fram raunhæfar tillögur, sem atvinnulífið getur sameinazt um.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.