Frjáls verslun - 01.08.1979, Qupperneq 56
Á ísafirði er verið að leggja olíumöl á 2,4 kílómetra
af gatnakerfi bæjarins, alls 15 götur í eldri hverfum
bæjarins. Gatnakerfið er um 14—15 kílómetrar og fer
að sjást fyrir endann á þessum framkvæmdum, að
sögn bæjarstjórans á ísafirði, Bolla Kjartanssonar.
I fyrra lögöu heimamenn olíu-
mölina sjálfir, en keyptu efnið frá
Olíumöl h.f. Misheppnaöist verkiö
og er talið að mölin, sem blandaö
var í olíuna hafi veriö gölluð. í ár
mun Miöfell h.f. leggja út mölina
og reikna þeir með að verða fjórar
vikur að leggja á göturnar.
Næturútkall brunaliðsins til um-
ræðu
Málefni slökkviliðs Isafjarðar
hafa orðið blaðaefni undanfarin
misseri. Við slökkvistöðina er nú
verið að byggja, húsnæðið tvö-
faldað. í gömlu stöðinni var
ástandið orðið þannig að dyr voru
of litlar til að hægt væri að taka inn
nútíma slökkvibíla. Bolli kvað unn-
ið að lausn boöunarvandamálsins,
sem upp kom eftir að landssíminn
neitaði að sjá um næturboðun
slökkviliðsmanna. Félagsmála-
ráðuneytiö og brunamálastofnun
hafa þetta vandamál til íhugunar.
Bolli kvað það stórvandamál
hvernig þessum málum er háttað.
Á ísafirði væru stór timburhúsa-
hverfi þar sem eldhætta er mikil,
gömul hús sem standa mjög þétt.
Bolli kvað unnið að byggingu
dagheimilis og leikskóla á ísafirði
og í Hnífsdal. Báðar eiga bygging-
arnar að verða fokheldar fyrir vet-
urinn. í Hnífsdal hefur kvenfélagið
Hvöt tekið þátt í þessu verkefni
með bæjarfélaginu.
Þá er áframhaldandi vinna við
sjúkrahúsið í samvinnu við önnur
sveitarfélög á Vestfjörðum. Fram-
kvæmdafé þetta árið er 3oo millj-
ónir króna. Húsið er þegar uþp-
steypt.
Átak gert í íþróttamálum
Þá hefur átak verið gert í
íþróttamálum. Grasvöllur og mal-
arvöllur fyrir knattspyrnumenn
„Sveitarfélögin munu seint
fara að leggja fyrir fé á bankareikningum”
hafa verið gerðir á Torfunessvæð-
inu og sérstakur æfingavöllur var
útbúinn í vor. Skíðaiðkun er ann-
ars hin sterka hlið bæjarbúa og
kvað Bolli einsýnt að hyggja þyrfti
betur að framkvæmdum í Selja-
iandsdal. Frjáls félagasamtök hafa
mest hugað að allri aðstöðu þar til
þessa. Þó hefur bærinn útvegað
rafmagn að lyftunum, veitt 5 millj-
ónum til framkvæmda þar og út-
vegað snjótroðara í brekkurnar. Á
góðum vetrardögum er allt að
þriðjungur bæjarbúa við skíðaiðk-
an í hinum fjölbreytilegu brekkum
þar efra, eða um þúsund manns.
Við höfnina er nú unnið að frá-
gangi á 60 metra kanti, verið að
steypa hann og fullgera.
Talsvert gestkvæmt er á Isafirði,
bæði sumar og vetur. Hinsvegar
hefur gistiaðstaða síðustu árin
ekki verið upp á marga fiskana.
Við Silfurtorg er verið að steypa
fimmtu og efstu hæð hótelbygg-
ingar, þar sem verða 32 herbergi
með 64 rúmum. Bjartsýnir menn í
stjórn þessa fyrirtækis vilja að
hótelið verði tekið til notkunar að
hluta næsta ár, en aðrir telja að
vart verði tekið við fyrstu gestun-
um fyrr en eftir tvö ár í fyrsta lagi.
Algjör breyting á högum fólks
,,Það hefur orðið algjör breyting
á öllum högum manna hér á síð-
ustu árum", sagði Bolli Kjartans-
son. ,,Við komu skuttogara hingaö
á firðina 1972—74 breyttist þetta
mjög til batnaðar. Atvinna er næg
og mjög örugg og tekjur fólks eru
miklar. Frystihúsin eru annáluð
fyrir gæðaframleiðslu og rekstur
þeirra gengur með miklum ágæt-
um. Hitt er vandamál hvað lítið
framboð er hér af húsnæði", sagði
Bolli Kjartansson.
Hann kvað venjuna vera þá að
yngra fólkið byggði yfir sig nýtízku
íbúðir, en gamla fólkið sæti gjarn-
an eftir í gömlu húsnæði og
óhentugu. Væru dæmi um það að
gamla fólkið þyrfti að greiða allt að
fimmfalt verð miðað við Reykjavík,
fyrir upphitun húsnæðis síns.
Bolli kvað mörg hinna hefð-
bundnu verkefna, gatnagerð,
hafnargerð, mannvirkjagerð ýmis-
konar sífellt endurnýja sig. Þaó
sæist aldrei fyrir endann á því sem
gera þyrfti. ,,Eitt er víst, og þaó er
aó sveitarfélögin fara seint að
leggja fyrir fé á bankareikning-
um“, sagöi hann.
„Sést aldrei fyrir endann
á öllu því sem gera þarf”
segir Bolli #C/arfansson^ bæjarstjóri,
á ísafiröi
56
57