Frjáls verslun - 01.08.1979, Síða 62
Sundlaug og íþróttahús
í byggingu á Flateyri
,,Bygging á sundlaug og íþróttahúsi er sú framkvæmd, sem hvað
mest fer fyrir hjá okkur þessa stundina, “ sagði Guðvarður Kristjáns-
son, oddviti Flateyrarhrepps. ,,Við setjum 50 milljónir í þessa fram-
kvæmd í ár, en fengum ekki nema 20 milljónir á fjárlögum. “
,,í fyrra gerðum við þjónustuað-
stöðuna fokhelda fyrir þefta
mannvirki, en naumt er skammtað
hjá ríkinu í ár og við getum því ekki
klárað og sett sundlaugina í gang í
vetur", sagði Guðvarður.
Fjárhagsáætlunin frá í nóvem-
ber s.l. hljóðar upp á 260 milljónir
til þessarar framkvæmdar. Kvaðst
Guðvarður vonast til að undirtektir
þess opinbera yrðu betri á næstu
fjárlögum.
Það hefur verið stefna þeirra
Flateyringa að dreifa ekki um of
framkvæmdafénu, en einbeita sér
þess í staö að minnu og Ijúka því
þess í stað á þolanlegum tíma.
Víóa í þorpinu er verið að end-
urbæta holræsakerfið, og síðar
mun þar verða lagt varanlegt slit-
lag. í ár er varið 20 milljónum
króna til gatna og holræsagerðar.
Þá er unnið að því að gera við
hafnarmannvirki fyrir 18 milljónir í
ár. Hafnargerðarframkvæmdum
hefur enn verið frestað um sinn.
Nýtt elliheimili
Guðvarður kvað nýtt elliheimili
hafa verið tekiö í notkun í sumar.
Flateyrarhreppur og Mosvalla-
hreppur standa sameiginlega að
þessu verkefni. Þarna verður rými
fyrir 7—8 manns og kvað Guð-
varður mikla þörf hafa verið fyrir
slíkt og áreiðanlega væri þess ekki
langt að bíöa að biðlisti yrði við
elliheimilið þar eins og víða annars
staðar. Vissi hann til að Flateyr-
ingar, sem dvelja á elliheimilum á
ísafirói og á höfuðborgarsvæðinu,
vildu gjarnan koma aftur til síns
heima og dvelja á hinu nýja elli-
heimili. Heimilið hefur dagvistun-
arþjónustu og heimilisþjónustu
fyrir þá sem þess óska. Elliheimilið
er til húsa á efri hæð heilsugæzlu-
stöðvarinnar.
62