Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1983, Page 5

Frjáls verslun - 01.02.1983, Page 5
frjáls verz/un Sérrit um elnahags-, viðskipta- og atvinnumál. Stofnað 1939. Útgefandi Frjálst framtak hf. STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson RITSTJÓRI: Magnús Hreggviðsson SÖLU OG MARKAÐSSTJÓRI: Sveinn R. Sveinsson FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Ingvar Hallsteinsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir Auglýsingasími: 31661 LJÓSMYNDIR: Jens Alexandersson SKRIFSTOFUSTJÓRN: Þórunn Þórisdóttir Tímaritið ergefið út í samvinnu við samtök verzlunar- og athafnamanna Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18 Símar 82300 — 82302 SETNING, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentstofa G. Benediktssonar LITGREINING ÁKÁPU: Prentmyndastofan hf. öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir FRJÁLS VERZLUN er ekki ríkisstyrkt blað Þegar þessar línur eru skrifaðar er kosningum nýlokið á Islandi. I kosningabaráttunni kom það glögglega fram hjá talsmönnum stjórnmálaflokkanna að þeir voru sammála um að eitt aðalvið- fangsefni þeirrar ríkisstjórnar sem nú kemur til með að taka við völdum, hver svo sem hún verður, sá að koma reglu á efnahagslíf landsins sem óneitanlega hefur verið lausbeislað í meira lagi, sér- staklega undanfarna mánuði, með þeim afleiðingum að verð- bólgan er nú meiri en nokkru sinni fyrr í landinu og atvinnufyrir- tækin riða til falls eitt af öðru, Víst er að ekki verður það auðvelt hlutskipti sem bíður ríkistjórnarinnarog hætt er við að hún þurfi að grípa til allróttækra aðgerða og það fyrr en síðar. Oft hefur virst svo að stjórnmálamönnum skorti kjark til þess að gera það sem gera þarf og má virða þeim það til vorkunar, þar sem þjóðin virðist á stundum ekki hafa alltof ríkan skilning á því að nauðsyn ber til þess að halda í hemilinn og það er frekar regla en undantekning að stjórnmálaflokkum er hengt fyrir að það í kosningum ef þeir reyna að grípa til aðhaldsaðgerða. Einhverra hluta vegna hefur gengið erfiðlega að koma fólki í skilning um hverjar afleiðingar svo mikillar veröbólgu sem verið hefur á íslandi að undanförnu muni verða.og er líklegt að það sé arfleifð þess að fjölmargir telja sig hafa ,,grætt“ á verðbólgunni — hún hjálpaði þeim til fjárfestinga og annars slíks. Það hefur nefnilega gleymst frá hverjum fjár- magnið sem þannig skapast er f raun og veru tekið og hverjir það eru sem tapa á verðbólgunni. Það hefur stundum heyrst að undanförnu að vandræði (slend- inga nú sé að miklu leyti erlendri kreppu að kenna. Víst er að víða hefur orðið verulegur samdráttur og efnahagsörðugleikar, en hagspekingum ber saman um að líklegt sé að út taki að greiðast á næstunni og hagvöxtur muni aukast aftur á Vesturlöndum á kom- andi tímum. Gerist það fyrst og fremst í kjölfar lækkandi olíuverðs á heimsmarkaði, en orkuverðir hefur komið illa við marga á und- anförnum tveimur árum og dregið úr hagvexti og iðnframleiðslu víða um lönd með þeim afleiðingum að atvinnuleysi hefur víða farið.vaxandi. Staða íslendinga er því miður ekki þannig að útlit sé á heimsmarkaði, en orkuverðið hefur komiö illa við marga á und- að aflabrögð munu ekki aukast og ástand nytjafiskstofnanna er slæmt. Það gerir þörfina á sterkari stjórnun enn meiri en ella. Hvaða ríkisstjórn sem við tekur nú eftir kosningar þarf því á styrk að halda til þess að gera það sem gera þarf. Vonandi verður skæruhernaður hverskonar, hvort sem er íorði eðaá borði, lagður niður um skeið og vonandi ber komandi ríkisstjórn gæfu til þess að sameina þjóðina til þeirra verka sem þarf nauðsynlega að vinna. 5

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.