Frjáls verslun - 01.02.1983, Side 83
lllfar Steindórsson
aðstoðarmanni.
ásamt
þetta ekki síður orðið þjónusta
við einstaklinga, við erum með
fjölda manns á skrá sem leita
að starfi við sitt hæfi, margt af
því er fólk í hinum ýmsu grein-
um sem vill fylgjast með og
jafnvel skipta um starf ef þaó
álítur að betra bjóðist.“
Nú má segja að þetta sé ný
tegund þjónustu hérlendis, er
ekki erfitt að koma henni á
framfæri, Úlfar, þegar þið aug-
lýsið ráðningarþjónustu, áttar
Ef til vill skiptir fólk
of sjaldan um starf
Svo lengi sem menn muna hafa verið starfandi fyrir-
tæki í Evrópu og víðar sem hafa það að hlutverki að
útvega fólki störf eða fyrirtækjum starfsmenn,
„Employment Agency“, „Hiring Service“, „Arbets-
förmedling“, allt eru þetta kunnugleg heiti á þjón-
ustustofnunum sem margir muna sem hafa dvalið er-
lendis og jafnvel notfært sér þjónustu slíkra fyrir-
tækja. Hér á íslandi hefur farið lítið fyrir þjónustu af
þessu tagi, hver sem ástæðan kann að vera, en nú
virðist vera að rofa til. Nokkur slík þjónustufyrirtæki
munu vera starfandi og er eitt þeirra Ráðningarþjón-
usta Bókhaldstækni hf. að Laugavegi 18 í Reykjavík.
Sá sem veitir þessari þjónustu forstöðu er Úlfar
Steindórsson.
Við spurðum Úlfar hvernig
þessari þjónustu hefði verið
tekið?
— ,,Henni hefur verið vel
tekið, sérstaklega eftir að ýmsir
aðilar fóru að átta sig á því hve
mikla fyrirhöfn hún sparar.
Þetta fór hægt og rólega af
stað hjá okkur, byrjaði eigin-
lega með því að fyrirtæki sem
við önnumst bókhald fyrir
þurftu á starfsmönnum að
halda og fannst þægilegra að
fá okkur til að annast könnun á
umsækjendum, það gekk vel
og smám saman komst á þetta
ákveðið skipulag, sem við höf-
um kynnt okkur hjá svipuðum
fyrirtækjum erlendis. Framan
af var fyrst og fremst um út-
vegun starfsfólks aö ræöa fyrir
fyrirtæki og stofnanir en nú er
sig nokkur á því hvað á henni
sé að græða?
,,Það er rétt þetta er tiltölu-
lega ný tegund þjónustu, en ég
vil taka það fram aö við vorum
ekki fyrstir til að bjóða hana,
annað f.yrirtæki hefur boðið
hana í nokkur ár. Það tekur
alltaf tíma að kynna nýjungar
en það má ekki gleymast að
margir stjórnendur fyrirtækja
og stofnana hafa stundað nám
eða starfað erlendis og þekkja
því þessa þjónustu. Viö höfum
ef til vill ekki kynnt þetta nægi-
lega enn sem komió er en
margir hafa tekið eftir auglýs-
ingum okkar þar sem viö aug-
lýsum fyrir okkar umbjóðend-
ur.“
Getur þú iýst, í stuttu máli, í
hverju ráðningarþjónusta er
fólgin?
,,í raun þá erum viö að taka
að okkur verkefni fyrir þann
sem leitar að starfsfólki, en
þetta verkefni getur oft reynst
fyrirtækjum bæöi tímafrekt og
83