Frjáls verslun - 01.02.1983, Síða 35
Halla Guðmundsdóttir starfsstúlka
í tölvudeild önnum kafin.
Seiko-úrin, sem voru þekkt um
víða veröld löngu áður en við tók-
um að flytja þau inn. Danskur úr-
smiður sagði hér við íslenskan úr-
smið, fyrir nokkru, að hann yrði að
hafa öll úr til sölu, og hann yrði að
sýna viðskiptavinum sínum allar
gerðir úra þegar þeir kæmu til að
versla. Þetta gerði hann þrátt fyrir
þá staðreynd, að hann seldi 30
Seiko-úr á móti hverju einu, sem
hann seldi af öðrum tegundum.
Svo hátt er markaðshlutfallið þó
ekki orðið hér á landi enn!“
Fjögur þúsund m-
stórhýsi við Lyngháls
— Þýsk-íslenska hefur nýlega
flutt starfsemi sína í nýtt, eigið
Sigurður Viggó Halldórsson
starfsmaður þjónustudeildar. í
baksýn má sjá hluta hins fjöl-
breytta varahlutalagers.
Sigurður Gíslason deildarstjóri
hreinlætis- og blöndunartækja-
deildar. Hann hefur að baki
áratuga reynslu í sölu- og mark-
aðssetningu á vörunum.
húsnæði við Lyngháls 10 í
Reykjavík. Fyrirtækið hefur verið
milli tannanna á fólki vegna þessa,
og talað er um ofsagróða af inn-
flutningnum. — Aðrir tala svo á
hinn bóginn um að fjárfesting sem
þessi sé alls ekki skynsamleg, mun
hagkvæmara sé að leigja og nóg
sé til af leiguhúsnæði í borginni.
Hverju svarar þú þessu?
,,Já, það er rétt, að við erum ný-
lega flutt inn í þetta húsnæði hér,
sem er um 4000 fermetrar að
stærð. Húsið höfum við byggt að
mestu á undanförnum tveimur ár-
um, en því fer þó fjarri að bygg-
ingunni sé lokið.
Svo ég svari síðari spurningunni
fyrst, þá er það alveg rétt, að það
er mjög óhagkvæmt fjárhagslega
Haildór Björnsson sölumaður.
j
: i ii
Björgvin Guðmundsson, sem hef-
ur það erfiða hlutverk að stjórna
þjónustudeild þýsk—íslenska.
aö ráðast í byggingu húss sem
þessa, og vitaskuld væri rekstrar-
fjárstaða fyrirtækisins önnur og
betri, hefðum við ekki ráðist í
þessa framkvæmd. Að vandlega
athuguðu máli var þó ákveðið að
gera það, og kom það einkum til af
því að við gátum ekki með góðu
móti fengið hús leigt, sem hentaði
undir starfsemina. Hér erum við til
dæmis með sérstaklega hannað
og byggt húsnæði fyrir rafgeyma-
þjónustu okkar, og er hún tví-
mælalaust hin fullkomnasta, sem
enn hefur verið sett upp hér á
landi. Þar er fylgt ströngustu kröf-
um um öryggi og vinnueftirlit, og
alveg sérstakar ráðstafanir eru
gerðar um frárennsli og annað
slíkt. Þetta töldum við nauðsyn-
Anney Ósk Bragadóttir ritari; hún
annast telexsendingar og ritun á
erlendum bréfaskiptum.
35