Frjáls verslun - 01.02.1983, Page 68
einkaframtak
Efalaust eini íslendingurinn s
Elíeser Jónsson hefur veriö með hugann viö flug og flugvélar
meira og minna síðan hann man eftir sér. Hann hefur einnig haft
atvinnu sína af flugi, að mestu leyti, síðan árið 1962 þegar hann
og nokkrir félagar stofnuðu fyrirtækið Flugferðir hf utan um
rekstur á einni Cessna 140. Það fyrirtæki þróaðist síðan í Flug-
stöðina hf en 1965 var keypt Cessna 172 Skyhawk og T'.'íeser
snéri sér alfarið að leiguflugi auk þess sem hann fékk n við
flugkennslu. Eins og oft vill verða skrúfaði fyrirtækið uppá sig og
þegar mest var hafði Flugstöðin hf 14 starfsmenn, flugmenn og
flugvirkja og átti 10 — 12 flugvélar. Reksturinn gekk fremur vel
og fór batnandi ár frá ári, en Elíeser hafði keypt hluti hinna
stofnendanna eftir því sem þeir buðust og Flugstöðin hf þvi rekin
sem fjölskyldufyrirtæki.
Rekur eina flugvél — land-
mælingaflug
Elíeser tók sitt sólopróf áriö
1947 og atvinnuflugmanns-
prófiö tók hann sama árið í
Hamble nærri Southampton á
Englandi eftir nám þar. Síðan
hefur margt á dagana drifið og
skráóir flugtímar Elíesereru nú
nærri 10 þúsund. Umsvif Flug-
stöðvarinnar hf þessa stundina
byggjast á rekstri einnar vélar
sem er sérstaklega útbúin fyrir
loftljósmyndun og landmæl-
ingarverkefni. Elíeser hefur
haft verkefni fyrir þessa vél
bæði hér innanlands og er-
lendis, en áður en við förum
nánar út í þá sálma er rétt að
gera nokkra grein fyrir þessari
flugvél.
TF-ERR er af gerðinni Rock-
well Turbo Commander 690A.
Vélin er tveggja hreyfla skrúfu-
þota með jafnþrýstingsbúnaði,
fyrir flughæð allt að 31 þúsund
fet og flýgur með 240 — 270
mílna hraða á klukkustund.
Þessi vél er meö ,,forstjórainn-
réttingu", sætum fyrir 8 far-
þega og fullkomnum flugleið-
sögutækjum. Elíeser segist
gera ráð fyrir 1200 sjómílna
flugþoli miðað við logn, t.d.
leiðin Köben/Rvk þótt flugþol
vélarinnar sé nokkru meira.
TF-ERR er framleidd árið 1974
og er Elíeser nýbúinn að end-
urnýja mótorana. Vélin er sér-
staklega búin til loftljósmynd-
unar en það lét Elíeser gera úti
í Bandaríkjunum áóur en hann
flaug vélinni heim vorið 1980.
Þessi breyting á vélinni, en það
er á henni sérstakt gat með
þykku sérhönnuðu gleri fyrir
Ijósmyndun, kostaði 54 þúsund
dollara árið 1980, þar af kost-
aói glerið sjálft 16 þúsund doll-
ara.
Við spurðum Elíeser hvað
hefði ráðið því að hann valdi
einmitt þessa ákveðnu gerð af
flugvél í Ijósmyndunarflugið.
Hann sagöist hafa komist að
þeirri niðurstöðu, eftir mikla
leit, að þetta væri besta vélin
fyrir loftljósmyndun í 3000 —
30000 feta hæð, hún væri sér-
staklega stöðug, sem væri lyk-
ilatriði, auk þess sem hún byði
upþá góða vinnuaðstöðu um
borð.
Verkefni heima og erlendis
Elíeser hefur tekið að sér
flug fyrir Landmælingar is-
lands á hverju ári síðan 1969. í
fyrra vetur. frá því í nóvember
og fram í febrúar. flaug Elíeser
fyri" breska fyrirtækið Hunting
Surveys Ltd í London, en verk-
efnið var í Líberíu í Afríku, Ijós-
myndunarflug vegna korta-
gerðar. Hunting Surveys Ltd.
er með stærstu fyrirtækjum á
sviði kortagerðar og tekur að
sér verkefni um allan heim. Elí-
eser er búinn að Ijúka einu
verkefni fyrir Hunting Surveys í
Nepal, en það kom uppá s.l.
haust. Hlutirnir ganga nokkuð
hægt fyrir sig í stjórnkerfinu hjá
þeim í Nepal og hafði verkefnið
því nokkuð langan aðdrag-
anda. Þaö var fólgið í loftljós-
myndun vegna áveitufram-
kvæmda, sem fyrirhugaöar eru
á vegum Nepalstjórnar. Auk
Elíesar var um borð Ijósmynd-
ari frá Hunting Surveys Ltd. og
var mest flogið í 2800 feta hæð
við landamæri Nepals og Ind-
lands en þar er landió aðeins
250 fet yfir sjávarmáli. Annars
er Nepal hálent og fjöllótt land,
fjöllin þar eru 25 — 27 þúsund
fet á hæð og Mount Everest
þeirra hæst, að sjálfsögðu, rúm
29 þúsund fet.
Nú er beðið eftir nýjum
samningum á milli Hunting
Survey og Nepalstjórnar og
taldi Elíeser að þau mál væru
að skýrast þessa dagana, en
vélina geymir hann í Dubai við
Persaflóa. Einnig er annað
verkefni í sigtinu en það er í
einu af furstadæmum við
Persaflóa, Quatar en gert er
ráð fyrir að það verk verði
unnió að loknu síðara verkefn-
inu í Nepal. Elíeser hefureinnig
68