Frjáls verslun - 01.02.1983, Síða 17
Og hvernig ganga
málin fyrir sig?
Fyrirtæki hafa víxlakvóta í
bönkum og nota ef til vill ekki
allan kvótann fyrir sig sjálf.
Sumir hafa farið út á þá braut
að kaupa 45 daga víxla af öðr-
um aðilum með 11—13% af-
föllum pr. mánuð. Síðan eru
þessir víxlar seldir í viðkomandi
banka. Þetta mun vera algeng-
asta formið á ,,gráu lánunum"
og í þessu tilviki eru bankarnir
aðili að málinu þótt þeir mundu
ekki vilja staðfesta þaö opin-
berlega. Þetta er eitt af því sem
sumir stjórnmálamenn hafa
kallað ,,löglegt en siðlaust" og
er í raun ein hliðin á því per-
sónubundna fyrirgreiðslukerfi
sem tíðkast í bönkum hérlend-
is.
Önnur aðferð, sem ekki
flokkast undir ,,gráa markað-
inn‘‘ nema í vissum tilfellum,
eru kaup ákveðinna aðila á
kröfum, reikningum, víxlum
o.fl. Kröfurnar eru ýmist seldar
á nafnverði, ef skuldarinn er
talinn góður, en afföllum eftir
mati þess sem tekur að sér að
innheimtuna. Fyrirtæki sem á
ógreidda reikninga sem erfitt
hefur verið að fá greidda eða
semja um getur á augabragði
losnaó við þá með afföllum. Sá
sem kaupir fær afföllin, drátt-
arvexti og innheimtulaun takist
honum að krefja fram greiðslu.
í þriðja lagi er hægt að selja
víxla með afföllum sem nema
11—13% á mánuði (þ.e. fyrir
hvern mánuð sem víxillinn til-
tekur).
í fjórða lagi er sala á ávís-
unum, þær eru þá gefnar út
fram í tímann og einhver feng-
inn til að ábekja þær, þar eru
algengustu afföllin einnig
11—13%.
Flestir hafa tekið eftir því aö
s.k. verðbréfasölur eru nú
orðnar margar á örskömmum
tíma, spretta nánast upp. Hér
er auðvitað verið að fylla í það
þjónustuskarð sem er í banka-
kerfinu. Sumir þessara verð-
þréfasala nota tölvur til þess að
reikna út hlutina þannig að
viökomandi fari ekki í neinar
grafgötur um, hvaða kjör er
verið að bjóða á bága bóga.
Með þessu móti verður ef til vill
minni hætta á að fólk veröi
þrettað í verðbréfaviðskiptum.
Við getum tekið hér eitt
dæmi um bílasölu sem fer fram
meö verðbréfi. Gangverð bíls
var taliö vera 120 þúsund
miðað við 60% útborgun og
eftirstöðvar á 6 mánuðum.
Staðgreiðsluverð var talið vera
105—110 þúsund. Þessi bíll
var seldur gegn skuldabréfi
með sjálfskuldarábyrgð, til 18
mánaða og verðtryggingu,
nafnverð kr. 139 þúsund. Hér
var um að ræða s.k. pottþétt
þréf og var þaó selt hjá verð-
bréfasala daginn eftir fyrir 106
þúsund út í hönd. Þetta er
aðeins dæmi um viðskipti, full-
komlega lögleg, og þar sem
báðir aðilar töldu sig hagnast á
þeim.
EINHELL vinnuborð
BÝÐUR UPP Á ÓTRÚLEGA
MARGA NOTKUNARMÖGULEIKA
KYNNTU ÞÉR GRIPINN
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
17