Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1983, Side 37

Frjáls verslun - 01.02.1983, Side 37
legt, ætluðum við að geta boðið upp á fullkomna þjónustu, og þetta var raunar ein forsenda þess að við fengum Varta-umboðið. Ýmislegt fleira get ég nefnt þessu líkt; byggingin er hönnuð og sniðin eftir þörfum fyrirtækisins til lengri tíma, og ekkert leiguhúsnæði hefði komið að sömu notum. Hvað hitt varðar, að talað sé um ofsagróða af innflutningsverslun- inni, þá er harla lítið við því að segja. — Það er stundum talað um innflytjendur eða heildsala á ákveðinn hátt hér á landi, en þannig er það bara um svo margar starfsstéttir. Lítið þarf útaf að bera til að löggæslumenn séu taldir óalandi og óferjandi, þingmenn fá sitt, flugstjórar, blaðamenn eru í misháu áliti frá einum tíma til ann- ars, læknar, bændur, — þannig mætti endalaust telja. Það þýðir ekki að kippa sér upp við slíkt, og hér höfum við ekkert að fela. Við töldum þessa byggingu nauðsyn- lega fyrirtækisins vegna, til þess að við gætum veitt neytendum þá þjónustu sem þeir eiga heimtingu á. — Húsið er stórt, rétt er þaö. Það hefur að sjálfsögðu verið byggt að verulegum hluta til fyrir lánsfé, og það þýðir miklar skuld- bindingar til margra ára. Við hefð- um getað farið aðra leið: Stækkað smám saman við okkur, byggt og flutt nokkrum sinnum uns núver- andi takmarki væri náð, en það hefði ekki komið eins vel út þegar á allt er litið. Þegar öllu er ábotninn hvolft tel ég að það hafi verið rétt ákvörðun að byggja þetta hús, sem hér stendur á einum besta stað í borginni með útsýni til allra átta í kaupbæti!" — Hefur fyrirtækið stækkað við það eitt að flytjast í þetta nýja hús- næði, eða var þörfnin orðin brýn að stækka húsakynnin? „Þörfin var vissulega orðin brýn fyrir aukið rými, en eitthvað hefur starfsmönnum þó fjölgað eftir komuna hingað, og þeireru nú um 30 talsins. Ég tel þó ekki að flutn- ingurinn einn hafi orðið til þess að við höfum fjölgað starfsfólki, þörf- in var einfaldlega orðin brýn. Hér er enginn starfsmaður óþarfur, Hér eru þeir Birgir Bernhöft í BB-Byggingavörum og Ingi Karl Ingason markaðsstjóri að bera saman bækur sínar um hvernig skuli staðið að kynningu á ýmsum nýjungum sem væntanlegar eru frá Grohe nú í sumar. Kristján Jósteinsson, ásamt lagermönnum. Séð inn í verð- og tollútreikningadeild: Ágúst Már Jónsson og Steinunn Kristjánsdóttir tölvuritari. 37

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.