Frjáls verslun - 01.04.1983, Blaðsíða 19
Texti: Atli Steinarsson
innlent
„Það er deginum Ijós-
ara að þegar við erum
farnir að takast á við
verðbólgu, sem er yfir
100% á ári er staða okkar
orðin býsna alvarleg. Við
eigum ekki annars úr-
kosti en vinna bug á
þessari efnahagsmein-
semd. Vilji stjórnvalda er
að ná verulegum árangri í
þessari baráttu þegar á
þessu ári. Ég trúi þvíekki,
að fólk sé reiðubúið að
fara aftur í sama djúpa
farið og við vorum í,
heldur hinu að þegar
árangurinn sést, sjái allir
hversu miklu hyggilegra
sé að draga aðeins úr
ferðinni í bili.“
Þannig mælti Matthías
Á. Mathiesen, viðskipta-
ráðherra, er Frjáls
verslun ræddi við hann
um verkefni nýrrar ríkis-
stjórnar og þá málaflokka
er hann stjórnar, en þeir
snerta hvern einasta ís-
lending.
„Ég er svo vongóður
um árangur í þeirri bar-
áttu sem hafin er, að ég
tel að jafnvel í september
sjáist sá árangur, sem
opna mun augu allra
þeirra sem enn tvístíga
fyrir því að á markaðri
baráttubraut verði að
halda áfram. Raunveru-
leg mæling verðbólgunn-
ar nú sýnir, að ekki er
óhugsandi, að þegar í
Matthías Á Mathiesen, viðskiptaráðherra:
Aukið frjálsræði
septembermánuði verði
hægt að stíga fyrstu
skrefin í þá átt að lækka
vexti. Þetta er ýmsu háð.
En þegar sá áfangi næst
stuðlar hann að stöðugu
gengi og stórkostlegum
áfanga í baráttunni við
verðbólguna“, sagði ráð-
herrann.
Verðlagsmálin snerta hvern
einasta íslending. í stjórnar-
sáttmálanum er talað um að-
hald í fyrstu en síðan frelsi.
Hvernig er útfærsla þessara
mála hugsuð?
— í stjórnarsáttmálanum er
talað um aðhald í verðlagsmál-
um og það hafa ekki verið
leyfðar verðhækkanir, þar sem
um er að ræða verðlagseftirlit,
nema vegna óumflýjanlegs
kostnaðarauka. Við hugsum
okkur að halda áfram þar sem
frá var horfið og byggja á þeim
lögum, sem samþykkt voru í tíð
ríkisstjórnar Geirs Hallgríms-
sonar og auka á frelsið í verð-
lagsmálunum. Það er skoðun
okkar aö það sé best fyrir
neytendur, að þeir annist sjálfir
verðgæsluna. Hefur þetta m.a.
komið mjög vel í Ijós í þeirri
könnun, sem Verðlagsstofnun
gerði nú fyrir skömmu. Það
verður gert um leið og þaö
tímabil, sem nú stendur yfir, er
liðið.
— Er síðar með „auknu
19