Frjáls verslun - 01.05.1984, Page 27
menn vilja tryggja sig gegn öllum
mögulegum áföllum.
Ný aðferö frá Japan
Meö nýjum aöferöum er nú
reynt aö kenna þessum sömu
mönnum að hafa birgðir sem
lægstar. Aöferðin sem nú er not-
uö viöa um heim kemur frá Japan
og nefnist hún þarlendis „KAN-
BAN,“ á ensku „just in time“ aö-
feröin (JIT), á islensku gæti hún
heitiö rétt-tíma-aöferöin.
Þessi aðferð byggir á tveimur
megin markmiöum, þaö er aö
heildarbirgðir séu alltaf i lágmarki
og aö hráefni, hálfunnir hlutir og
söluvara sé afhent til vinnslu eöa
sölu aðeins þegar þeirra er þörf
og aö einungis nokkurra daga
eöa nokkurra klukkustunda
birgöirséufyrirhendi.
Kjarni JIT- aöferöarinnar er sá
aö vörur eru pantaðar á grund-
velli raunverulegrar notkunar en
ekki áætlana um vöruþörf sem
siðan standast misjafnlega vel.
Japanska oröiö „kanban“ þýö-
ir pöntunarkort i japönsku Toyota
verksmiöjunum, sem eru frum-
kvöðlar „kanban“ eöa „just in
time“ aðferöarinnar, er kort með
upplýsingum um notaðan hlut
eöa fullunna framleiösluvöru
sent til þeirra sem undirþúa inn-
kaup og framleiöslu sem beiðni
um aö nýr slikur hlutur sé fram-
leiddur eöa pantaöur strax.
Boðleiðir eru þvi mjög stuttar
og upplýsingarnar eins öruggar
og hægt er. Verkamennirnir sjá
þannig um aö koma pöntun af
staö og er þannig mikil ábyrgö
lögö i þeirra hendur.
Margir vestrænir stjórnendur
eru þeirrar skoöunar aö slika
ábyrgö sé vart hægt aö færa i
hendur almennra verkamanna og
verkstjóra. En einmitt þessi
áþyrgö hefur þó virst auka vinnu-
gleöi og afköst i ýmsum fyrirtækj-
um í Bandarikjunum. Reynsla
Bandarikjamanna af JIT er sú aö
meö þvi aö hafa litlar birgðir af
hlutum til framleiðslu hefur einnig
tekist aö gera einstaka breyting-
ar á framleiðsluhlutum möguleg-
ar á síðustu stund. Ábendingar
frá framleiösludeildum um galla
eöa illa hannaöa hluti eru teknar
strax til athugunar hjá hönnuöum
og breytingar gerðar strax. Meö
miklar birgöir af illa hönnuöum
hlutum getur reynst of seint aö fá
breytingar fram. Þannig hefur
gæöaeftirlit stór batnaö og hönn-
un meö tilliti til framleiöslu og
samsetningar batnaö.
Óhagkvæmni afhjúpuð
Meö þvi aö hafa lágmarks-
birgðir á öllum stigum framleiðsl-
unnar kemur ýmis óhagkvæmni,
flöskuhálsar og gæðavandamál i
Ijós sem áöur voru falin með
óhóflegri birgðamyndun. Þessu
hefur veriö líkt viö fljót i vexti sem
felur klappir og grjót. Þegar lækk-
ar i ánni koma þessar sömu
ójöfnur í Ijós, þannig virkar JIT
aöferöin, hún afhjúpar óhag-
kvæmnina. Kostnaöur af óhóf-
legri birgöamyndun hefur hvergi
komiö fram, óhagkvæmnin var
látin óáreitt.
Just in time, þ.e. JIT aðferðin
krefst breytts skipulags innan
27