Frjáls verslun - 01.05.1984, Síða 35
ÚTSALA
eigenda Miklagarðs, KRON-
búðirnar. missi spón úr aski sín-
um til afkvæmisins.
Kostir og gailar
En hverjir eru kostir stórmark-
aða fram yfir smábúðir? Þeir eru
kannski helst þeir að oft er hægt
að bjóða lægri verð vegna hag-
stæðari innkaupa og í krafti
magnsins og iðulega sjá stór-
markaðir sjálfir um innkaup og
ýmsa úrvinnslu matvara og
sumir reka eigin saumastofu.
Stórmarkaðir geta líka oft í krafti
umsetningar og stærðar tekið
upp ýmsar tækninýjungar, tölvur
og alls kyns sjálfvirkni sér til
hagræðis. sem minni búðirnar
ráða alls ekki við. Sumir segja
einn helsta galla stórmarkað-
anna hins vegar þann að þar sé
ekki að hafa þá persónulegu
þjónustu sem smákaupmenn
geta veitt. Vissulega má segja að
í litlum hverfabúðum er oft
veitt persónuleg og skemmti-
leg þjónusta. Jafnvel eru kaup-
mennirnir búnir aö snara á
borðið því sem þeir vita að kaupa
skal þegar þeir sjá viðskiptavin-
inn tilsýndar á gangstéttinni og
þeir annast eitt og annað viðvik
og uppfylla sérþarfir hinna föstu
viðskiptavina sinna eftir megni.
Kaupmenn stórmarkaðanna
segja hins vegar að það geti þeir
einnig gert. Um leið og fólk venji
komur sínar í stórmarkaðinn fari
það að þekkjast og þekkja
starfsmenn. enda sé það á
hverju strái út um gólf til að snú-
ast í kringum fólkið.
Hvað gerist?
En sé svo komið að ójafnvægi
ríki á matvörumarkaði Reykjavík-
ursvæðisins um þessar mundir
hvað gerist þá á næstu misser-
um þegar verslunarrýmið eykst
enn? Margir kaupmannanna
sem rætt var við töldu að stór-
markaðirnir myndu halda velli.
Þeir hafa þegar unnið sér sess,
sumir standa á gömlum merg og
að þeim nýjasta standa voldugir
aðilar sem gætu lengið haldið
Miklagarði opnum þótt sjö vond
ár komi — það hljóta aö koma
önnur sjö góð í kjölfarið. Bent er
á að margar minni matvörubúð-
anna hafi gengið kaupum og
sölum og talið er að búðir af
millistærð muni eiga erfitt með
að standast tilboðsverð stór-
markaðanna. Þessar búðir geta
ekki boðið upp á hagkvæmni
stærðarinnar í vöruúrvali,
mannahaldi. tæknivæðingu og
öðrum þáttum. fastur kostnaður
við rekstur þeirra sé þess eðlis
að erfitt sé að mæta minnkandi
verslun. Því sé eina ráðið að
loka. Ákveðnar hverfaveslanir
muni þó starfa áfram, helst
þessar gamalgrónu, sem menn
hafa e.t.v. nokkra samúð með og
vilja ekki að detti upp fyrir, en
tíminn leiði í Ijós hvaða búðir það
verði. Þá munu búðir kaup-
mannsins á horninu einnig geta
staðið lengi af sér stórmarkaðs-
sjóina, því oft eru það aðeins
eigandi og venslamenn hans
sem sinna þar störfum.
Greiðslukort
En hvað með greiðslukortin?
Geta þau þjargað hér nokkru?
Ljóst er að stórmarkaðir og
Tilkoma Miklagarðs hetur ekki haft afgerandi áhrif hjá öðrum stórmörkuð-
um.
Húsnæði Hagkaups á eftir að stóraukast á komandi misserum.
35