Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1984, Qupperneq 77

Frjáls verslun - 01.05.1984, Qupperneq 77
mælikvarða og því e.t.v. skiljan- legt að þeir hugsi stórt. þegar útflutningur er annars vegar og hafi takmarkaðan áhuga á við- skiptum við jafn lítinn markað og Island er. Nú virðist þó hafa vaknað skilningur á nauðsyn þess að rækta vel stóra markaði sem smáa. Mikið kapp verður því lagt á að kynna tékkneska fram- leiðslu sem samkeppnishæfa vió framleiðslu rikja í Vestur-Evrópu og Vesturheimi. Austur-Evrópuþjóðir hafa vakn- að til vitundar um það. að við- skipti vestrænna landa eru frjáls og að þar gildir samkeppnin. Tékkneskarvörur og þjónusta Tékkar hafa náð langt á sviði túrbínuframleiðslu fyrir vatns- aflsstöðvar og síðasta vélasam- stæðan í vatnsaflsvirkjun. sem þeir seldu okkur var í Lagar- fljótsvirkjun. Þeir hafa nú sýnt mikinn áhuga á að fá viðskipti vegna Blönduvirkjunar, en þar verður almennt útboð, sem gera má ráð fyrir að margir taki þátt í. Þá er aftur hafinn innflutningur á járni og stáli eins og áðan var vikið að sem meðal annars er notað við raflagnalínur og báru- járnsframleiðslu. Þá er Skoda velkynntur hérlendis. Hann er einnig vinsæll víða í Evrópu og þykir góður að minnsta kosti miðað vió verð. Tékkneskur kristall og glervörur eru heims- þekktar og eru þessar vörur seldar í nokkrum mæli hérlendis. Þá selja þeir einnig alls konar vefnaðarvörur og garn eins og áóur var minnst á skó. mynda- vélabúnað. reiðhjól og fleira. Áður fyrr voru flutt inn nokkuð af matvælum. svo sem sykur. te og ýmsir drykkir. en þessi innflutn- ingur hefur alveg lagst af um sinn. Ferðamannaland En það eru ekki einungis vörur sem hægt er að kaupa frá Tékkóslóvakíu. Landið er fjöl- breytt og fagurt og tvímælalaust hið ákjósanlegasta ferðamanna- land. Tékkar eiga sér langa og menningarríka sögu. sem þeir hafa varðveitt vel í byggingum og tónlist sinni. Höfuðborgin Prag er lifandi minnismerki um stórar stunair í evrópskri menn- ingu. Hún státar af byggingum allt frá tíundu öld fram til dagsins í dag og hún á sér sögu sem er vart jafnmikil og jafnsjálfsögð annars staðar. Tékkar hafa á undanförnum árum lagt sig í líma við að kynna landið sem land ferðamannsins. Þeir hafa byggt stór og góó hótel víðs vegar um landið á síðustu árum og nú koma árlega um 18 milljónir ferðamanna víðsvegar aó úr heiminum en íbúar landsins eru ekki nema um 15 milljónir. Flestir ferðamanna koma eðlilega frá Austantjaldslöndum en mikið kapp er lagt á að fá vestræna ferðamenn til landsins til að efla gjaldeyrissjóðina. Það eru ekki margir íslendingar sem hafa farið í skemmtiferðir til Tékkó- slóvakíu en þó veróur nokkuð um það í ár. Framtíð viðskipta landanna En hver er framtið viðskipta landanna? Eru þessi viðskipti af þeirri stærðargráóu. að menn vilji leggja hart að sér að halda þeim áfram? Hvað varðar út- flutning okkar til Tékkóslóvakíu er vart spurning um það. Þótt útflutningur á fiskimjöli hafi dregist saman vegna minni framleiðslu er þess vænst að hann aukist aftur með aukinni framleiðslu. Eins og fram hefur komið, hafa Tékkar lagt áherslu á að flytja inn mikið í einu og þess vegna ef til vill misst nokkur viðskipti, sem þeir hefðu ella haldið. Þeim virð- ist nú mikið í mun að leggja meiri rækt við litla markaði. með því að selja í smærri skömmtum í einu og kosta einhverju til sölustarf- seminnar. 77
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.