Frjáls verslun - 01.09.1992, Blaðsíða 7
RITSTJORAGREIN
„HJÓLAGEYMSLUR"
Þegar Friðrik Sophusson fjármálaráðherra leggur fram
fjárlagafrumvarpið í þessum mánuði með 6 milljarða fjár-
lagahalla fellur hann í tvo slæma pytti sem breski sagnfræð-
ingurinn Parkinson benti mönnum fyrir löngu á að ráðherr-
um, sem ekki hefðu tök á hlutunum, væri gjarnt á að detta í.
Friðrik er engin undantekning. Fjármálaráðherrar, og
raunar allir íslenskir stjórnmálamenn, hafa allir á síðustu
tveimur áratugum fallið harkalega ofan í þessar gryfjur með
þeim afleiðingum að ríkið hefur þanist út og er orðið helsti
óvinur fyrirtækja og fólksins í landinu. Til að mæta útþensl-
unni hafa ráðherrar valið þá auðveldu leið fyrir sjálfa sig að
hækka skatta, prenta seðla og slá lán. Þetta er hins vegar
afar sársaukafull leið fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem
borga brúsann.
Frægasta kenning Parkinson er um sjálfvirkan vöxt, að
störf aukist í opinberri stjórnsýslu, og raunar oft hjá fyrir-
tækjum líka, án þess að verkefnin vaxi að sama skapi. Eða
séð frá hinni hliðinni; starfsmönnum fækki ekki í verkefnum
þótt þau séu orðin umfangsminni eða beinlínis úrelt og
ónauðsynleg.
Parkinson sýndi mönnum einnig fram á hve mikill tími fer
í mál, sem eru aukaatriði, á meðan ekki er tekist á við
aðalatriðið. Fræg er dæmisagan um kjarnorkuverið og
hjólageymsluna. Á fundi ákvað stjórn kjarnorkuvers á
aðeins fimm mínútum að byggja kjarnorkuver fyrir tugi
milljarða. Síðan kafnaði hún í umræðum um það hvort
byggja ætti hjólageymslu fýrir starfsmenn kjarnorkuvers-
ins. Á því höfðu allir skiptar skoðanir.
Núverandi stjórnarflokkar voru á einu máli um það í síð-
ustu kosningabaráttu að fjárlagahallinn, sífelldur taprekst-
ur ríkisins, væri mál málanna og við honum yrði að bregðast.
Síðastliðið haust lagði ríkisstjórnin upp með 4 milljarða
króna fjárlagahalla fyrir þetta ár. Nú er ljóst að sá halli
verður tæplega undir 10 milljörðum. Hvað er það á milli
vina?
Ríkið ræðst ekki að vandanum með algerri uppstokkun
ríkisútgjalda. Á skömmum tíma er gefist upp við aðalatriðið
og komið með 6 milljarða fjárlagahalla fýrir næsta ár. Eins
og á fundinum í stjórn kjarnorkuversins forðum hafa um-
ræðurnar síðan snúist um „hjólageymslur" í niðurskurði til
að hafa hallann ekki enn meiri.
Á undanförnum árum hafa fyrirtæki tapað stórfé í gjald-
þrotum annarra fyrirtækja. Þetta er tap sem ekki skolast út
úr pípunum heldur hafa fyrirtæki og einstaklingar þurft að
taka það á sig. Þau hafa orðið að axla ábyrgðina og finna
leiðir út úr vandanum með aukinni hagkvæmni.
Á undanförnum árum hafa fyrirtæki greitt raunvexti í
bönkum á bilinu 8 til 12 prósent af lánum vegna þess að ríkið
hefur spennt upp vexti til að fjármagna fjárlagahallann.
Þannig hefur ríkið barið á fyrirtækjum og einstaklingum
með hækkun skatta og vaxta á sama tíma og þau reyna að lifa
af tap í gjaldþrotahrinu, lifa af minnkandi landsframleiðslu
og lifa af harða og eðlilega erlenda samkeppni.
Háir vextir ríkisins og auknir skattar minnka getu fýrir-
tækja til fjárfestinga sem eru nauðsynlegar til að efla at-
vinnulífið og draga úr atvinnuleysi í einkageiranum. Ekki
fækkar starfsmönnum hjá ríkinu. Háir vextir og auknir
skattar fæla hlutafé frá fyrirtækjum sem eru í mikilli fjár-
þörf og þeir koma hart niður á heimulunum sem rétt skrimta
í kreppunni.
Lánsfjárþörf ríkisins á síðastliðnum sjö árum nemur 68
milljörðum króna. Fjárlagahalli ríkisins hefur á sama tíma
numið 51 milljarði á verðlagi þessa árs. Á venjulegu heimili
héti þetta gjaldþrot. Því miður tekur þettaekki enda um sinn
vegna þess að það er svo gaman að tala um „hjólageymslur"
og eyða um efni fram þegar aðrir borga. Þessu lýkur hins
vegar þegar þessir aðrir eiga ekkert eftir til að greiða með.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR; Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristín
Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið
er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 812300, Auglýsingasími 685380
— RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 — STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: SteinarJ. Lúðvíksson
- FRAMKVÆMDASTJÓRI: HaUdóra Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 2.814 kr. (469 kr. á eintak) - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er
með greiðslukorti. LAUSASÖLUVERÐ: 579 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. -
LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
7