Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1992, Page 42

Frjáls verslun - 01.09.1992, Page 42
100 ST/ERSTU við um flestar atvinnugreinar í þjóðlíf- inu. Framan af ári var atvinnuleysi nán- ast ekkert í landinu, mældist 1,7% af mannaflanum í upphafi árs, miðað við 3,2% í janúar 1990 - og kannanir á atvinnuhorfum bentu til að atvinnu- rekendur þyrftu að fjölga starfsmönn- um nokkuð. Þegar leið á seinni hluta ársins 1991 kom annað í ljós. í árslok var atvinnuleysið orðið 2,4% sam- kvæmt tölum Félagsmálaráðuneytis og rætt um fækkun starfsfólks hjá mörgum fyrirtækjum. Að meðaltali var atvinnuleysi ársins 1,5%, en 1,7% tvö árin á undan. Vinnuaflsnotkun á árinu 1991 jókst um 1% á árinu. Árið 1990 hafði hún minnkað um hálft prósent. Vinnuafls- notkunin á síðasta ári var talin vera 127 þúsund ár- sverk. Á listum Frjálsrar verslunar í þessu blaði er greint frá nær 700 íslensk- um fyrirtækjum, atvinnu- veitendum sem bjóða megnið af þessum störfum. Þegar listar Frjálsrar verslunar eru skoðaðir má víða sjá mannaflafækkun, oft mikla - en einnig hið gagnstæða hjá sumum fyrir- tækjanna. Umboðsfyrirtæki, SH, íslenskar sjávarafurðir og SÍF og fjölmörg önnur, eru eins og áður á listum Frjálsrar verslunar, þrjú hin fyrstnefndu meðal fimm stærstu fyrirtækja landsins. Á hverju ári heyr- um við gagnrýnar raddir, sem telja að fyrirtæki af þessari gerð eigi ekki heima á listanum. Bent er á að velta þeirra segi ekki mikla sögu þar sé um að ræða veltu umboðsaðilanna, fram- leiðendanna. Þetta eru vissulega rök. Hinsvegar má benda á að erlend blöð, sem birta samskonar lista, viðhafa sömu vinnubrögð í þessum efnum. BREYTINGAR Á GERD LISTANNA Um fjórtán ára skeið hafa listar Frjálsrar verslunar yfir stærð og af- komu íslenskra fyrirtækja komið út. Listar yfír fyrirtækin hafa birst seinni hluta árs í blaðinu, síðari árin í byrjun október. Listar Frjálsrar verslunar hafa reynst hin merkasta heimild um íslensk fyrirtæki og vekja mikla at- hygli í hvert skipti sem þeir eru birtir. Þá hafa þeir gildi til langframa og oft til þeirra vitnað í ræðu og riti. Áreiðan- leiki listanna hefur reynst mikill og fátítt að leiðrétta hafí þurft þær upp- lýsingar sem þeir geyma. Að þessu sinni urðu miklar breyt- ingar á vinnslu listanna. Þeir eru að langmestu leyti til orðnir með beinu sambandi og samvinnu við hundruð fyrirtækja. Áður fékk blaðið meiri- hluta upplýsinganna úr listum yfir eft- irágreidd slysa-, lífeyris- og atvinnu- leysistryggingagjöld. Þar fengust uppgefnar slysatryggðar vinnuvikur hjá fyrirtækjunum sem og launa- greiðslur þeirra. Á árinu 1991 voru þessi gjöld felld niður en upp tekið samtímagjald, tryggingagjald. Þar- með hættu þessar upplýsingar að koma fram eins og verið hafði. Það er út af fyrir sig áhyggjuefni ef ekki liggja fyrir opinberar upplýsingar um mannaflann í þjóðfélaginu, hvernig hann skiptist milli greina, til- færslur milli greina, og launaskiptingu í hinum ýmsu atvinnugreinum. Byggðastofnun hefur þegar lýst yfir áhyggjum í þessa veruna í blaði sínu. Unnið mun vera að því að ráða bót á þessu. Fijáls verslun réði til sín unga og dugmikla háskólanema sem í sumar hafa verið í tengslum við fyrirtækin í landinu og aflað þeirra upplýsinga sem fram koma á listum blaðsins að þessu sinni. ALDREIFYRR HAFA JAFN MÖRG FYRIRTÆKI SVARAÐ Fyrirtæki sem verið hafa á listum Frjálsrar verslunar fengu senda lista til útfyllingar snemma sumars. Aldrei fyrr hafa jafn mörg fyrirtæki brugðist vel við spumingum okkar og skiptu þau hundruðum fyrirtækin sem sendu inn skilmerkilegar upplýsingar. Hringt var í fyrirtæki sem ekki höfðu svarað. Var yfir- leitt vel tekið í að gefa upp- lýsingar sem óskað var eft- ir. Þó eru alltaf einhver fyrirtæki sem einhverra hluta vegna vilja ekki gefa upp fjárhagslega stöðu sína. Fyrirtækjunum eru við þetta tækifæri færðar bestu þakkir fyrir ánægjulegt sam- starf. Þessi fyrirtæki eru þó ekki í hópi 100 stærstu fyrir- tækjanna í landinu. Sá listi á að vera mjög áreiðanleg heimild sem fyrr. Einkum eru það minni fyrirtæki og örfá meðalfyrirtæki sem óskað hafa eftir að vera ekki á listanum. Oft virðist það stafa af minnkandi veltu eða slæmum almennum fjárhag sem menn vilja ekki gera öðrum heyr- inkunnugan. NÝ STÓRFYRIRTÆKI Athygli vekur að á sama tíma og fyrirtæki auka veltu sína lítið meira en nemur verðbólgunni, sýna jafnvel mun minni veltu en árið 1990, eykst velta hjá ýmsum fyrirtækjum. Sem dæmi má nefna Bónus-ís-Aldi hf. og Þríhyrning hf. Ljóst er þó að veltan hefur yfirleitt minnkað milli ára og það oft svo miklu munar. Við skoðun og lestur listanna sem hér fara á eftir, kemur ýmislegt í ljós varðandi rekstur fyrirtækja á Islandi. Stundum góð tíðindi en önnur því miður verri. ÞEIR UNNU LISTANN Þeir unnu listann um 100 stærstu að þessu sinni. Frá vinstri: Sigurður Karlsson tölvufræðingur, Jón Birgir Pétursson blaðamaður, Bjarni Benediktsson laganemi, Valgeir Baldursson, nemi í stjórnmála- fræði og Jón Otti Jónsson viðskiptafræðinemi. 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.