Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Side 16

Frjáls verslun - 01.01.1995, Side 16
FORSÍÐUGREIN Vinsældakönnun Gallups fyrirFrjálsa verslun: BÓNUS VINSÆLAST / I fyrsta sinn í sex ára sögu Bónuss mælistþað vinsælasta fyrirtæki landsins og skákar Hagkaup úr topþsætinu. Þessi tvö fyrirtæki eru ísérflokki að vinsældum - en hörðum andstæðingum þeirra hefur líka fjölgað □ yrirtækið Bónus, semjóhann- es Jónsson stofnaði í apríl fyrir sex árum, er orðið vinsælasta fyrirtæki landsins samkvæmt könnun Gallups fyrir Frjálsa verslun. Það skákar Hagkaup úr toppsætinu. Bón- us var í öðru sæti í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn í sögu þess sem það hreppir toppsætið í þessari vinsældakönnun Frjálsrar verslunar. Bæði Hagkaup og Bónus skera sig úr að vinsældum, þau eru í sérflokki. Þau auka fylgi sitt örlítið frá því síð- ast. Engu að síður hefur hörðum and- stæðingum þeirra einnig fjölgað. Könnunin var framkvæmd um miðjan nóvember, einum mánuði fyrr en venjulega. Úrtakið var 1.200 manns en 841 tók þátt og svaraði. Úrtakið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá, fólk á aldrinum 15 til 75 ára af öllu landinu. FJÖGUR VINSÆLUSTU LÍKAÁ MEÐAL ÞEIRRA ÓVINSÆLUSTU Fyrst var spurt um hvaða þijú fyrirtæki það væru sem viðkomandi hefði jákvæðast viðhorf til. Af 841, sem svaraði í könnuninni, nefndu 120 manns Bónus, 118 nefndu Hagkaup, 96 nefndu Flugleiðir, 61 nefndi Eimskip og 24 Vffilfell. Þetta eru fimm vinsælustu fyrirtækin. Greini- legur munur er á fjórða og fimmta vinsælasta fyrirtækinu. Það er athyglisvert að fimm vin- sælustu fyrirtækin eru öll á meðal sex efstu þegar spurt er sérstaklega um óvinsæl fyrirtæki. Spurt var: Nefndu mér þau þrjú fyrirtæki sem þú hefur neikvæðast viðhorf til? Hörðum and- stæðingum þeirra hefur fjölgað en harðir fylgismenn þeirra eru samt miklu fleiri. Með öðrum orðum; þau virðast umdeildari en áður. SÉRKÖNNUNIN STAÐFESTIR VINSÆLDIR BÓNUSS 0G HAGKAUPS Eins og undanfarin ár sjá flestir ástæðu til að nefna Eimskip í þessum hluta könnunarinnar. Samt er mest áberandi núna hvað hörðum andstæð- ingum Flugleiða, Hagkaups, Bónuss og Pósts og síma hefur fjölgað í aðal- könnuninni. Frjáls verslun hefur ætíð gert sér- könnun um einstök, valin fyrirtæki. Þau eru lesin upp og spurt sérstak- lega um þau. Þessi könnun þykir leið- andi í þeim skilningi að fyrirtækin eru valin fyrirfram. Sérkönnunin var gerð fyrri hlutann í desember og var breytt svolítið út af venjunni með val á fyrirtækjum. Nú var eingöngu spurt um sextán efstu fyrirtækin á aðallistanum. En áður voru fyrirtækin valin eftir ákveðnum atvinnugreinum og þannig reynt að átta sig á vinsældum fyrirtækja sem keppa á mismunandi sviðum. í sér- könnuninni taka miklu fleiri afstöðu og svara. Að því leyti er hún mun mark- tækari en hún gagnast samt ekki til að raða niður á aðallistann vegna þess að fyrirtækin eru valin fyrirfram. í sérkönnuninni er hægt að skoða og greina svör eftir kyni, aldri, búsetu og síðast en ekki síst stjórnmálaskoð- unum. Hún staðfestir að Bónus og Hagkaup eru í sérflokki hvað vinsæld- ir snertir. Hún sýnir líka að ekkert eitt fyrirtæki á íslandi á eins marga harða fylgismenn og Bónus. Tæplega annar hvor, sem svaraði, sagðist hafa mjög jákvætt viðhorf til Bónus. GRANDI0G ATLANTA ERU HÁSTÖKKVARAR En lítum nánar á aðallistann, könn- unina í nóvember. Það vekur strax athygli að ijögur ný fyrirtæki eru frá 6. til 10. sætis á listanum. Grandi og flugfélagið Atlanta, sem var mikið í fréttum vegna kjaramála áður en könnunin var gerð, eru hinir eiginlega hástökkvarar listans. Grandi fer úr 16. í 6. sætið. Og Atlanta, sem í fyrsta sinn kemst inn á aðallistann, fer beint í 7. sætið. Glæsilegur árangur það. Það vekur einnig athygli að bankamir, sem voru mikið í fréttum fyrst á árinu vegna debetkorta, virðast allir hafa bætt ímynd sína á síðasta ári. íslandsbanki og Landsbanki færa sig upp í 8. og 9. sæti. Fjarðarkaup í Hafnarfirði eykur einnig fylgi sitt og vermir 10. sætið en það var í 20. sæti síðast. Það er auðvitað ekki síður fróðlegt að sjá hvaða fyrirtæki færast niður listann. Þar stingur fyrst í augun hið mikla fylgishrun Sólar hf. Fyrirtækið hefur ævinlega vermt eitt af efstu sætunum, og tvisvar setið í toppsæt- inu, fer úr 4. sæti í 22. sætið. Það var í toppsætinu fyrir tveimur árum. Nú nefna 11 manns það sérstaklega á nafn en 76 í síðustu könnun. MINNA FYLGIVIÐSÓL EFTIR BROTTHVARF DAVÍÐS Stóra breytingin hjá Sól á síðasta ári var auðvitað að lánadrottnar seldu TEXTI: 1ÓN G. HAUKSS0N MYNDIR: KRISTJÁN EINARSS0N 16

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.