Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 32
BÆKUR Bókin The Tom Peters Seminar: RÁBIÐ EINGÖN6U FÓLK SEM ER MJÖG FORVITIÐ Tom Peters kynnir í bókinni mörg raunveruieg dæmi úr vióskiþtalífinu. Hann segir aö ígeggjuðum heimi sé ekkert vit í skynsömum fyrirtækjum Heiti bókar: The Tom Peters Seminar Höfundur: Tom Peters Útgefandi og ár: Macmilian, London -1994 Lengd bókar: 320 bls. Hvar fengin: Bóksölu stúdenta Einkunn: Holl og góð lesning um byltingakenndar hugmyndir i stjómun og rekstri fyrirtækja VIÐFANGSEFNIÐ Tom Peters telur að breytingar í viðskiptaumhverfmu gerist mun hraðar nú en nokkru sinni fyrr og því skipti það höfuðmáli að vera opinn fyrir nýjungum, og ef nauðsyn krefur, að vera tilbúinn að gera það miklar breytingar hjá sér í vinnubrögðum að jaðri við að orðið bylting eigi frekar við um lýsinguna. Höfundur er því mjög róttækur í skoðunum á rekstri fyrirtækja í bók sinni, enda er hér ekki á ferðinni venjuleg safnbók hugmynda úr ýms- um áttum. Bókin er full af óvenjuleg- um og óhefðbundnum hugmyndum, sem sumar eru ansi brjálæðislegar á köflum og má segja að undirtitill henn- ar segi meira en mörg orð um inni- haldið en hann er „Crazy times call for crazy organizations“. Það er kannski ekki nauðsynlegt að vera léttgeggjað- ur í nútímastjórnun en það skaðar allavega ekki samkvæmt því sem fram kemur í bókinni. HÖFUNDURINN Óþarfi er að kynna höfundinn í löngu máli en hann er einn afkasta- mesti og vinsælasti höfundur bóka um stjórnun og rekstur fyrirtækja sem út hafa komið á undanfömum ár- um. Bækur hans eru Thriving on Chaos og Liberation Management. Auk þess hefur hann skrifað, ásamt öðrum, bækurnar In Search of Exel- lence (með Robert H. Waterman jr.) og A Passion for Exellence (með Nancy Austin). Allt eru þettar mjög kunnar bækur sem hafa náð mikilli útbreiðslu og em notaðar sem lesefni í mörgum viðskiptaháskólum. Hann er einn vinsælasti fyrirlesari í við- skiptaheiminum í dag. Loks má nefna að hann rekur sjálfan sig sem fyrir- tækið „The Tom Peters Group“ í Kalifomíu. UPPBYGGING 0G EFNISTÖK Bókin byggir algjörlega á fyrir- lestraröðum sem höfundurinn hefur haldið víðs vegar um heiminn og vakið hafa mikla athygli og hrifningu við- staddra, enda Tom Peters með lrf- legri fyrirlesurum sem þekkjast. Bókin skiptist í 9 kafla sem allir eiga það sameiginlegt að reynt er að ganga lengra en áður hefur verið gert í hverju viðfangsefni og því byija öll kaflaheiti á orðunum „handan við“ (beyond). Hann skyggnist sem sagt handan við eitthvert hefðbundið efni, sem fjallað er um í venjulegum við- skiptabókum, s.s. „beyond change“ og „beyond reengineering" o.s.frv. Tilgangur höfundar er að fara „hand- an við“ hefðbundna hugmyndafræði viðskipta og eru allar nýjar hugmyndir kynntar með raunverulegum dæmum úr viðskiptaheiminum í dag. STUH KYNNING ÚR BÓKINNI Rauður þráður í umfjölluninni er þekkingin og mikilvægi hennar. Hún er kjami málsins og í raun upphaf og endir alls. Forvitni er forsenda fyrir þekkingarleit og því mikilvægt að skapa fyrirtæki sem er forvitið. Til þess þurfum við starfsfólk sem er Jón Snorri Snorrason, aðstodarframkvæmdastjóri Lýsingar og stundakennari við Háskólann, skrifar reglulega um viðskipta- bækur í Frjálsa verslun. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.