Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 53
Kópavogi og opnuðu verslunina
Garðakaup árið 1984. Kaupgarður
átti engu að síður áfram húsnæðið í
Enighjallanum, bróðurpartinn af allri
ver slanamiðstöðinni.
Þeir feðgar ráku Garðakaup til árs-
ins 1987 er þeir seldu verslunarrekst-
urinn í Garðakaupum. Kaupgarður hf.
átti hins vegar áfram verslunarhús-
næðið ásamt hluta af ýmsu öðru hús-
næði í miðbæjarkjarnanum í Garðabæ
sem félagið hafði byggt. Þar með var
Kaupgarður hf. í raun orðinn eignar-
haldsfélag og var Ólafur einn stærsti
hluthafmn.
En Ólafur Torfason hefur víðar
komið við. Hann var stór hluthafi í
Byggingarfélaginu hf., sem byggði
Egilsborgir, á milli Rauðarárstígs og
Þverholts, og háhýsið í Garðabæ.
Ólafur stýrði ekki rekstri Byggingar-
félagsins heldur var einvörðungu
hluthafi til að byrja með.
Þegar framkvæmdimar í Egils-
borgum voru komnar í hálfgerðan
hnút í kringum 1989 og dæmið í tals-
verðri hættu gagnvart íbúðakaupend-
um, tók Ólafur við verkinu og kláraði
það. Það er einmitt í hluta af húsnæð-
inu í Egilsborgum þar sem Hótel
Reykjavík er til húsa.
Ólafur gerðist hins vegar ekki hót-
elstjóri. í maí árið 1993 hætti leigu-
takinn í húsnæði Kaupgarðs í Garða-
kaupum og Ólafur tók þá sjálfur við
verslunarrekstrinum. Hann rekur þá
verslun núna ásamt því að auka um-
svif sín á sviði hótelreksturs.
Þótt Ólafur hafi verið potturinn og
pannan í kaupunum á Holiday Inn og
fyrirtæki hans, Kaupgarður hf., eigi
meirihlutann í því, koma fleiri við
sögu. Að kaupunum standa Kaup-
garður hf., ferðaskrifstofa Guðmund-
ar Jónassonar og byggingarfélagið
Mænir sem er í eigu Kristmanns
Árnasonar og fjölskyldu.
Til að fjármagna kaupin á hótelinu
Holiday Inn og Skíðaskálanum í
Hveradölum seldi Kaupgarður hf.
húsnæði sitt í Engihjallanum fyrir ára-
mót. Og nýlega seldi fyrirtækið einn-
ig bróðurpartinn af húsnæðinu í
Garðabæ. Raunar mun fyrirtækið
ekki ráðgera að eiga Skíðaskálann til
langframa og þegar hefur rekstur
hans verið leigður út til annars fyrir-
tækis.
ALINN UPP í BÚÐINNIÁ HORNINU
Ólafur er fæddur 20. október 1951
og er því í merki Vogarinnar. Stjörnu-
spakir segja að Vogin sé friðelskandi
rólyndismanneskja með fágaðan
Ólafur er næstelstur fimm bama
hjónanna Torfa Þ. Torfasonar kaup-
manns og Ástríðar Ólafsdóttur. For-
eldrar Torfa vom Torfi Þ.
Guðmundsson í Norðurfirði á Strönd-
Ólafur var á árum áður söngvari í ýmsum
popphljómsveitum. Hann var meðal annars í
hljómsveitunum Zoo og Experiment. íZoo þandi
Björgvin Gíslason gítarinn í kapp við raddbönd
Ólafs og í Experiment, sem einkum lék á Kefla-
víkurflugvelli, söng Ólafur með Önnu Vilhjálms.
smekk sem á auðvelt með að standa á
eigin fótum. Oft hefur þetta fólk list-
rænar tilhneigingar en er jafnframt
fremur íhaldssamt og tregt til nýjunga
í persónulegum smekk.
um og kona hans Ingigerður Dam-
valsdóttir. Foreldrar Ástríðar voru
Ólafur Jóhannesson kaupmaður í
Reykjavík og Marta Sveinbjörnsdótt-
ir. Elst barna þeirra Torfa og Ástríðar
Sérhæfð þjónusta á
öllum sviðum inn-
og útflutnings
^TVG
TOLLVÖRUGEYMSLAN HF.
Héfllnsgata 1-3, 105 Roykjavflc. sfml: 6813411, fax; 6680211
þínmiðstöð
í INN- DG ÚTFLUTNINGI
53