Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 60
NÝJUNGAR
OF MflRGIR BIBA MEB
HERT GÆÐAEFTIRLIT
Það getur kostað markaðshlutdeild. Framleiðendur eiga að nýta sér
gæðaeftirlit til að styrkja stöðu sína og vinna nýja og arðbærari markaði
unnar Óskarsson hjá FTC á
íslandi telur að framleiðendur
verði að taka upp hert gæða-
eftirlit að eigin frumkvæði áður en
það er um seinan. Þeir verði að hafa
frumkvæði að nýjungum og nýta ráð-
gjöf og þekkingu sölumanna sér til
framdráttar. Að öðrum kosti eigi þeir
á hættu að verða undir í samkeppn-
inni og missa niður markaði.
BÆTTGÆÐIÁN TILSKIPANA
Gunnar Óskarsson, eigandi fyrir-
tækisins FTC á íslandi, sem selur
tæki til gæðaeftirlits og sérhæfð tæki
til að bæta nýtingu í matvælaiðnaði,
telur að of margir framleiðendur setji
upp öflugt gæðaeftirlit að kröfu við-
skiptavina.
„í stað þess að bíða eftir því að
viðskiptavinir setji fyrirtækinu úr-
slitakosti eiga framleiðendur að vera
fyrri til og nýta sér bætt gæðaeftirlit
til að styrkja stöðu sína og vinna nýja
og arðbærari markaði.
Það getur reynst þeim dýrkeyt
sem bíða og taka ekki við sér fyrr en
viðskiptavinir setja þeim úrslitakosti.
Það tekur alltaf tíma að aðlaga fyrir-
tæki að nýjum vinnuaðferðum sem
fylgja öflugra gæðaeftirliti og þessi
tími getur einfaldlega kostað mark-
aðshlutdeild. Það er mikill fórnar-
kostnaður eftir margra ára uppbygg-
ingu á markaði.“
FTC Á ÍSLANDI
Fyrirtæki Gunnars, FTC á íslandi,
hóf starfsemi með sölu á beinhreinsi-
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN
60
vélinni frá FTC, Food Technology
Company í Svíþjóð. 7 fyrirtæki utan
Svíþjóðar selja vörur undir nafni
FTC. FTC á íslandi selur einnig tæki
frá öðrum framleiðendum víðs vegar
um heiminn.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru
flestir úr röðum fiskframleiðenda og
Beinhreinsivél sem eykur nýtingu
fiskflaka.
annarra fyrirtækja í matvælaiðnaði.
Fyrirtækið leggur ríka áherslu á að
fmna lausnir sem auka hagkvæmni í
rekstri fyrirtækja.
FTC á íslandi býður upp á margs
konar mælitæki og efnavörur sem
mæla meðal annars hita, sýrustig, fitu
og efni eins og klór, kopar, blý, salm-
onellu og listeríu. Þá selur það bein-
hreinsivélar, reykofna til að reykja
matvæli, fitumæla fyrir lamba-
EINARSSON
skrokka, öryggishanska sem koma í
veg fyrir skurðarslys með hnífum og
svo mætti áfram telja.
FRUMKVÆÐIGETUR SKIPT SKÖPUM
Gunnar telur einnig að of margir
framleiðendur bíði eftir að samkeppn-
isaðilarnir uppfylli nýjar þarfir mark-
aðarins í stað þess að taka frumkvæð-
ið, búa til þarfir og koma fyrstir með
nýjar og áhugaverðar lausnir. í vax-
andi samkeppni á alþjóðamarkaði
verða fyrirtæki stöðugt að leita að
nýjum tækifærum, sem meðal annars
geta falist í breyttu neyslumynstri og
lífsvenjum eða nýrri tækni.
„Sem dæmi um þetta má nefna að
sú kynslóð, sem nú er að verða sterk-
asti kaupendahópurinn víða erlendis,
er afar kröfuharður um gæði og fersk-
leika, útlit og hollustu matvæla og er
reiðubúinn að greiða gott verð fyrir
vörur sem falla vel að þeirra þörfum.
Þetta eru kaupendur á aldrinum frá 18
- u.þ.b. 30 ára.
Beinhreinsivélin er gott dæmi um
tækninýjung sem gæti opnað leið að
þessum kaupendahópi. Ungt fólk er
yfirleitt hræddara við bein í fiski en
þeir eldri. Þetta hefur dregið úr eftir-
spurn þessa fólks eftir fiski, þrátt
fyrir ótvíræðan skilning á hollustu
fiskafurða. Beinhreinsuð flök þykja
mun fallegri í útliti en flök sem beina-
garðurinn hefur verið skorinn úr og
ættu því að höfða vel til þessara kaup-
enda.
Það skýtur því skökku við að fisk-
framleiðendur hafa verið afar tregir