Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 66

Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 66
FOLK ELSA HARALDSDÓTTIR, SALON VEH „Rekstur hárgreiðslu- stofa er krefjandi starf og maður þarf stöðugt að vera vakandi fyrir því sem er að gerast, finna daglega fyrir tískustraumum og sjá hvar hægt er að gera betur. Ég legg áherslu á að skynja hvaða straumar eru að koma og legg mig fram um að þróa og bæta við færni starfsfólksins sem vinnur hjá mér. Ég er því allt í senn: Eigandi, kennari og handverksmanneskja, “ segir Elsa Haraldsdóttir, eigandi Salon VEH. Elsa er 46 ára. Hún tók landspróf frá Gagnfræða- skólanum á ísafirði og fór síðan í Iðnskóla ísafjarðar. Hún lærði hárgreiðslu í Reykjavík og að loknu sveinsprófi fór hún til Sviss og Austurríkis þar sem hún TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR vann við hárgreiðslu og lærði tungumál í tvö og hálft ár. „Ég fékk meistararéttindi 1971 og sama ár opnaði ég stofuna í Glæsibæ," segir Elsa. „Ég hafði einn nema í vinnu til að byrja með en smátt og smátt byggðist fyrirtækið upp og 1984, þegar stofan í Glæsibæ var orðin of lítil, opnaði ég stof- una í Húsi verslunarinnar. 1986 opnaði ég þriðju stof- una, við Laugveg, en lokaði henni í september sl. 1987 hóf ég rekstur heildverslun- ar og flyt inn hársnyrtivörur frá Bandaríkjunum, Redken og Pivot point. Hjá mér starfa nú um 25 manns, þar af um 20 á stofunum." STRAUMAR BERAST FUÓH Elsa segir fagið hafa MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON breyst mikið frá því hún byrjaði. Heimurinn hefur minnkað að því leyti að nú berast tískustraumar mun fyrr á milli heimsálfa og hef- ur ísland komist inn í þá hringrás. „Mér hefur alltaf þótt mikilvægt að kynnast því sem er að gerast í faginu og hef tekið þátt í alþjóðlegu starfi hárgreiðslufólks í fjölda ára. Ég hef verið svo heppin að ég hef kynnst rétta fólkinu, fólki sem hef- ur kveikt áhuga minn á því sem er að gerast og þeim neista hef ég viljað koma áfram til þeirra sem vinna hjá mér, - fagfólki framtíðar- innar. Ég fer á um tíu sýn- ingar á ári erlendis og tek alltaf með mér einhverja af mínum starfsmönnum til þess að þeir geti lært og fylgst með. Framundan er ein viðamesta alþjóðlega sýning ársins í New York þar sem ég mun sýna ásamt tveimur starfsmönnum mín- um. Ég er líka á leiðinni á þing í Las Vegas og á sýn- ingu í París þar sem við munum fylgjast með. Það má því segja að við fleytum rjómann af því besta sem er að gerast bæði í Evrópu og Ameríku. Aðalatriðið er þó auðvitað þjónustan við viðskiptavin- ina hér heima. Ég legg mikla áherslu á að veitt sé góð og persónuleg þjónusta á stof- um mínum og vinn sjálf á stofunum til skiptis. Það er því mikilvægt að vera vel undirbúin undir hvern dag.“ SKÍÐI, SUND EÐA GÖNGUFERÐIR Elsa á 20 ára gamlan son og segir að heimilið sé henni mikilvægur griðastaður. Hún á bæði hund og kött og nýtur þess að vera heima þegar hún getur. „Þegar tími gefst til fer ég á skíði og ég held mér í formi með því að fara í sund eða út að ganga og hef ég verið duglegri við það síðamefnda eftir að ég eignaðist hund- inn. Félagsstörf í Intercoif- feur, alþjóðlegum samtök- um hárgreiðslufólks, hafa tekið mikið af frítíma mínum því ég sinni þeim störfum ekki í vinnunni. Ég hef verið alþjóðlegur listráðunautur samtakanna um skeið og það starf hefur tekið tölu- verðan tíma,“ segir Elsa að lokum. Elsa Haraldsdóttir opnaði fyrstu hárgreiðslustofu Salon VEH árið 1971. Hún er alþjóð- legur listráðunautur Intercoiffeur, alþjóðlegra samtaka hárgreiðslufólks. 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.