Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 42
SIMAR Hymax sinistoo""' 2 til 24 bæjarlínur 6 til 84 innanhúslínur Ýmsir valmöguleikar: - Langlínulæsing - Símafundir - Hringiflutningar innanhúss og í heima- og bílasíma - Tengingamöguleikar f. úfvarp hátalarakerfi, dyrasíma, neyðarkerfi o.fl. - Skilaboða- og kallkerfi - Og margt fleira! K O M D U í ESIitn' H Ó PI N N AT&T - alltaf til taks 60 númera minni Þyngd 270 g Verð. 59.900. ,, SÉNNIRKINN Símtæki hf. Hátúni 6a, sími 561 4040 „Þróun í síma- og fjarskiptabúnaði er mjög hröð og samnýting tölvu- og símtenginga er orðin nokkuð algeng. Margar símstöðvar í fyrirtækjum bjóða upp á að tengd séu við þær skjáir, PC tölvur, prentarar og fleira sem miðla á milli notenda eða tengja þá við tölvukerfi. Jafnframt er hægt að tengja símstöðvar saman og flytja tölvuupplýsingar á milli þeirra.“ símakerfið, eruíörriþróun. Farsíma- kerfið, sem Póstur og sími býður upp á, hefur verið til margra ára en þar hafa orðið kynslóðaskipti. Handvirka kerfið var aflagt og í þess stað kom NMT 450 kerfíð en bæði þessi kerfi þjóna aðallega bíleigendum og skip- um. Á næstu mánuðum verður mögulegt fyrir fyrirtæki og stofnanir að setja upp staðbundin kerfi fyrir þráðlaus samskipti. Þessi staðbundnu kerfi eru tengd símstöð fyrirtækisins og hafa númer frá henni. Koma þarf upp sendi og móttökustöðvum á því svæði sem þráðlaus samskipti eiga að vera möguleg. Benda má á mörg dæmi þar sem þetta kemur sér vel, til dæmis í timb- urafgreiðslum, verksmiðjum og stærri svæðum þar sem erfitt getur reynst að ná í starfsmenn þegar á þarf að halda. Þannig er hægt að sjá fyrir sér stjómendur og starfsmenn, sem eru mikið á ferðinni um athafnasvæði fyrirtækja, með lítinn, þráðlausan síma í vasanum. Skiptiborð fyrirtækj- anna gefur þá símtalið beint til þeirra þar sem þeir eru staddir hverju sinni innan fyrirtækisins. Sömuleiðis geta þeir hringt úr þráðlausa símanum hvert sem er í gegnum kerfi fyrirtæk- isins. Hugsanlega verður hægt að fá lítil, staðbundin kerfi, sem myndu henta heimilum og minni fyrirtækjum. Þeir þráðlausu símar, sem nú eru í notkun á heimilum og í fyrirtækjum, eru bundnir einni móðurstöð með tak- markað sendisvið. En staðbundin kerfi eru hins vegar net sendistöðva fyrir fleiri en eitt símtæki." Q • Hvað með GSM farsíma- kerfið? „í rúman áratug hefur verið þróað kerfi sem símastjórnir ýmissa landa í Evrópu hafa sameinast um. Mark- miðið var að hanna samstætt kerfi sem gæti veitt góða farsímaþjónustu í Evrópu. Þetta kerfí er þegar í mörg- um löndum Evrópu og landa utan hennar. Þetta umrædda kerfi heitir GSM (Global System for Mobile Commun- ications). Byrjað var að setja það upp hér á landi á síðasta ári. GSM kerfið takmarkast við Reykjavík til Keflavík- urflugvallar og Grindavíkur, auk Ak- ureyrar. Samkvæmt upplýsingum frá Pósti og síma verður unnið að því á næstu árum að útvíkka þjónustu- svæði GSM farsíma til þéttbýlis- svæða landsins." B- Hverjir eru helstu kostir GSM farsímakerfisins? „Með GSM kerfinu skapast ný tækifæri fyrir notendur. Helstu kost- irnir við GSM kerfið eru létt og með- færileg símtæki, betri talgæði og auk- ið öryggi gagnvart hlerun símtala. Ef við hugsum okkur sölumenn, sem fara á milli staða, opnast sá möguleiki að þeir skrái niður pantanir sem eru sendar jafnóðum í gegnum GSM kerf- ið á þann stað þar sem þær eru af- greiddar. GSM kerfið getur þjónað margvís- legum tilgangi og þá bæði sem örygg- istæki og tæki í viðskiptum þar sem hraði skiptir miklu máli. GSM farsími með símkorti getur nýtt sömu þjón- ustu í öllum GSM kerfum þar sem að þau eru stöðluð á sama hátt í öllum aðalatriðum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.