Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 22

Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 22
FORSIÐUGREIN SÉRKÖNNUN Á SEXÍÁN EFSTU FYRIRTÆKIUNUM Skyggnst á bak við sextán vinsælustu fyrirtækin á aðallistanum í sérkönnun um þau. Þar kemur margt afar forvitnilegt í Ijós Ert þú með lánshæfa hugmynd til eflingar atvinnulífi ? Við veitum góðri hugmynd brautargengi! Við veitum fúslega nánari upplýsingar um lán til atvinnuskapandi verkefna í öllum greinum. O LANASJOÐUR VESTUR-NORÐURLANDA ENGJATEIG 3 • PÓSTHÓLF 5410 • 125 REYKJAVÍK SÍMI: 560 5400 • FAX: 588 2904 Frjáls verslun lét Gallup gera sér- könnun í desember á sextán vinsæl- ustu fyrirtækjunum á aðallistanum. Könnunin staðfestir afgerandi vin- sældir Bónuss og Hagkaups á toppn- um. Ennfremur skiptast mörg fyrir- tækjanna á sætum hvað vinsældir snertir. í sérkönnuninni, þegar nöfn fyrirtækjanna eru lesin upp, svara miklu fleiri og taka afstöðu en þegar svarendur eru sjálfir beðnir um að nefna fyrirtæki. Einhver kynni að spyrja hvort ekki ætti þá að láta sérkönnunina gilda sem endanleg úrslit og að aðalkönn- unin yrði þá forkönnun, eins konar undanúrslit. Það kemur vissulega til greina. En það, sem mælir afar þungt á móti því, er auðvitað hversu leið- andi sérkönnunin er. Hún er leiðandi í þeim skilningi að nöfn fyrirtækjanna eru lesin upp og síðan er spurt um viðhorfið til þeirra. Hvað þá með öll þau fyrirtæki sem ekki eru lesin upp? Geta þau ekki breytt röðuninni enn frekar? í sérkönnuninni er skyggnst á bak við viðhorfin til fyrirtækjanna og svörin greind eftir aldri, búsetu og kyni svarenda. í fyrsta sinn eru við- horfin einnig tengd við stjómmála- skoðanir svarenda. Greint er á milli hvort svarendur séu mjög jákvæðir, frekar jákvæðir, hlutlausir, frekar neikvæðir eða mjög neikvæðir. Frjáls verslun ákvað að gefa fyrir- tækjunum meðaleinkunn með því að gefa gildinu mjög jákvæður töluna + 100, frekar jákvæður töluna + 50, hlutlaus töluna 0, frekar neikvæður töluna - 50 og mjög neikvæður töluna - 100. Bæði jákvæð og neikvæð af- staða endurspeglast í þeirri einkunn sem hvert fyrirtæki fær. TEXTI: JÓN G. HAUKSS0N MYNDIR: KRISTJÁN EINARSS0N 22

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.