Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 50

Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 50
SIMAR Afnám einokunar í símaþjónustu á íslandi: NAT HYGGST KEPPA VIÐ PÓST OG SÍMA Um áramótin sótti NAT hf. um leyfi til að starfrækja GSM farsímaþjónustu í samkeþþni við Póst og síma. Framundan er sþennandi tími í símamálum f að líkum lætur á íslenska fjar- skiptafyrirtækið NAT eftir að verða í brennidepli á meðal al- mennings á næstu árum. Það hefur sótt um leyfi til að starfrækja einka- rekna GSM farsímaþjónustu í samkeppni við Póst og síma. Fái það leyfið verður NAT símafyrirtæki líkt og Póstur og sími. Notendur GSM fars- íma á vegum NAT kaupa hjá þeim símkort og greiða þá fyrirtækinu GSM símreikn- ingana sína í stað Pósts og síma. Notendur geta hringt á milli GSM kerfanna og í al- menna símkerfið - og öfugt. þeirra má nefna bandaríska símafyrir- tækið AT&T. í umsókn NAT er miðað við að GSM farsímaþjónusta fyrirtækisins nái til 60% landsmanna innan tveggja Fjarskiptafyrirtækið NAT var stofnað í apríl á síðasta ári. Að því standa Sigurjón Ásbjörnsson hjá Icecraft, REFEX og Símvirkinn - Símtæki. Sigurjón er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og hvatamaður að stofnun þess. Þess má geta að NAT er með einkaumþoð fyrir GSM farsíma af tegundinni AT&T en vert er að taka fram að allar tegundir GSM síma ganga að væntanlegri GSM farsíma- þjónustu fyrirtækisins. Um verulegar fjárfestingar verður að ræða hjá NAT fái það leyfi stjórn- valda til að reka GSM farsímaþjón- ustu. Sú fjárfesting felst í símstöð en þó fyrst og fremst í uppsetningu eigin dreifikerfis um landið. Fyrirtækið hefur því á undanförnum mánuðum leitað samstarfs við öfluga alþjóðlega samstarfsaðila á þessu sviði. Meðal Sigurjón Ásbjörnsson er framkvæmdastjóri NAT hf. sem sótt hefur um leyfi til að reka GSM farsíma- þjónustu. ára frá opnun hennar og að farsíma- þjónusta fyrirtækisins nái til allt að 80% landsmanna innan tíu ára. Að baki umsóknar NAT liggur mikil und- irbúningsvinna varðandi arðsemisút- reikninga og fleira. Kastljós fjölmiðla beindist fyrst að fyrirtækinu síðastliðið haust þegar það tilkynnti að það hygðist keppa við Póst og síma í GSM farsímaþjónustu. Hinn 29. desember síðastliðinn af- henti fyrirtækið svo samgönguráð- herra formlega umsókn um leyfi til starfrækslu einkarekinnar GSM far- símaþjónustu hér á landi í samkeppni við Póst og síma. Segja má að um- sóknin, ein og sér, brjóti blað í ís- lenskri símasögu. Umsóknin endurspeglar þær breytingar sem urðu á íslenskum fjarskiptalögum árið 1993 í tengslum við samþykkt EES-samninginn og tóku gildi 1. janúar síðastliðinn. En þá var öll virðisaukandi síma- þjónusta gefin frjáls, önnur en hin almenna talsímaþjónusta um fastnetakerfið, þ.e. síma- þjónusta um símalínur. Samkvæmt ákvæði EES- samningsins mun frelsið í símamálum aukast enn meira frá og með 1. janúar árið 1997 þegar það mun einnig ná til hluta af hinni almennu tals- únaþjónustu um fastnetakerf- ið. Þótt komið sé á frelsi í GSM farsímakerfinu sam- kvæmt lögum er veiting leyfa til reksturs einkarekinna sím- stöðva háð ákvörðun stjórnvalda í hverju landi. Það stafar af því að tíðni- bandið er takmarkað. Um takmörkuð gæði er að ræða líkt og fólk þekkir varðandi sjónvarpsrásir. Veita skal leyfi að undangenginni auglýsingu þar um. GSM farsímakerfið er evrópskt að uppruna og hefur mjög rutt sér til rúms í Evrópu og víðar. Það byggist ekki hvað síst á svonefndum notenda- kortum þeirra sem eru með GSM farsíma. Með kortinu er hægt að hringja úr hvaða GSM farsíma sem er og kemur kostnaðurinn vegna sím- talsins inn á símreikning korthafans sem hann fær sendan frá sínu síma- fyrirtæki. TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTiÁN EINARSSON 50

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.