Frjáls verslun - 01.01.1995, Side 54
N/ERMYND
er Guðrún Marta, læknir á Raufar-
höfn, þá Ólafur en næst honum Ingi-
gerður hjúkrunarfræðingur, síðan
Kristín tölvunarfræðingur og yngstur
er Torfi Þorkell Torfason kjötiðnað-
armaður.
SÖNG OG SPILAÐIMEÐ KUNNUM
POPPHUÓMSVEITUM
Ólafur ólst upp við leik og störf í
Kópavoginum sem var ansi líflegur á
þeim árum en Kópavogurinn var sem
óðum að byggjast og þar var margt af
ungu barnafólki. Meðal þess,
sem Ólafur tók sér fyrir hendur
á æskuárunum, var að syngja í
popphljómsveitum sem þótti
ekki lítið töff á þessum árum.
Meðal nafntoguðustu hljóm-
sveita sem hann söng með
voru Zoo, þar sem Björgvin
Gíslason þandi gítarinn í kapp
við raddbönd Ólafs, og Experi-
ment sem einkum fékkst við að
spila fyrir ameríska hermenn á
Keflavíkurflugvelli en þar deildi
Ólafur framlínunni með Önnu
Vilhjálms.
„Hann hefur alveg lagt tón-
listariðkun á hilluna. Hann
syngur ekki opinberlega en
syngur ágætlega með sfnu nefi
fyrir sjálfan sig,“ sagði maður
sem stundum syngur með Ól-
afi.
Ólafur kvæntist Sigurbjörgu Rósu
Þórhallsdóttur sjúkraliða árið 1971 og
eiga þau saman fimm böm. Foreldrar
Sigurbjargar eru Þórhallur Halldórs-
son, verkfræðingur í Reykjavík,
fæddur á Hvanneyri og kona hans
Bryndís Sigurveig Guðmundsdóttir
sjúkraliði. Fyrstu skrefin í hjúska-
pnum stigu þau á Grundarstíg í litlu
herbergi hjá afa og ömmu Ólafs. Síðar
lá leiðin í Meðalholt og nú býr Ólafur í
glæsilegu einbýli í Tjaldanesi 17 á
Arnarnesi. Elst barna Ólafs og Sigur-
bjargar er Bryndís f. 1971. Bryndís er
aðstoðarhótelstjóri á Hótel Reykja-
vík. Næstur kemur Davíð Torfi versl-
unarstjóriíGarðakaup, f. 73, Þórhall-
ur, f. 79, Ólafur Freyr, f. 84, og
María Þórdís, f. 87.
„Ólafur er maður sem hefur unnið
eins og sleggja frá því snemma á
morgnana og langt fram á kvöld alla
daga vikunnar í 20 ár. Hann fer þetta
algjörlega á hörkunni og seiglunni.
Þegar þú sérð hvað liggur eftir þenn-
an rúmlega fertugan mann þá sérðu
að hann hefur lyft grettistaki. Og það
hefur hann gert með eigin höndum.
Þama fer maður sem hefur blinda trú
á einstaklingsframtaki og sjálfstæði
og hefur meðfætt peningavit að
auki,“ segir samstarfsmaður Ólafs.
ÓFEIGSFJARÐARÆTT
Ólafur er af hinni svokölluðu
Ófeigsfjarðarætt sem kennd er við
Ófeigsfjörð á Ströndum. Ættin er
kennd við Guðmund Pétursson óðals-
bónda og hákarlaformann (1853-1934)
sem bjó um langan aldur í Ófeigsfirði,
harðduglegur og skarpskyggn afla-
maður sem lét smíða smáa og stóra
báta, ræktaði jörð sína og átti 17 böm
með þremur konum. Guðmundur lét
m.a. smíða hákarlaskipið Ófeig sem
varðveitt er í heilu lagi í byggðasafn-
inu á Reykjum í Hrútafirði og er minn-
isvarði um horfna atvinnuhætti sem
kröfðust harðfylgi og áræðni í meira
mæli en nú þykir óhætt að krefjast af
mönnum. Guðmundur var stofnandi
Kaupfélagsins í Norðurfirði og kaup-
félagsstjóri þess um árabil og eftir
hans dag tók Torfi, sonur hans, afi
Ólafs Torfasonar, við kaupfélaginu.
Enn eiga afkomendur Guðmundar
Ófeigsfjörð og rækja hlunnindi þar
með miklum myndarskap.
Ófeigsfjarðarfólk þykir harðsnúið
en lífsglatt dugnaðarfólk sem vílar
ekki fyrir sér mikla vinnu og vill
ógjarnan láta hlut sinn fyrir öðrum.
Ólafur gekk ekki lengi eftir hinum
hefðbundna menntavegi eftir að
skólaskyldu lauk en stefndi út á vinnu-
markaðinn og vann fyrst í verslun föð-
ur síns á Grundarstígnum. Það mun
vera í eina skiptið sem Ólafur hefur
unnið hjá öðrum en sjálfum sér. Heið-
ar Vilhjálmsson kaupmaður keypti af
þeim Þingholt og síðar, þegar feðg-
amir fluttu sig um set suður Garða-
kaup í Garðabæ, var það aftur
Heiðar sem keypti verslunina
Kaupgarð við Engihjalla af
þeim en seldi Þingholt.
„Það var fínt að skipta við
Ólaf. Hann er mjög heiðarlegur
og orðheldinn maður,“ sagði
Heiðar sem nú verslar í Plúsm-
arkaðnum í Straumnesi í Breið-
holti.
DÚXAÐI37 ÁRA
Ólafur tók aftur upp náms-
þráðinn árið 1986, þá 35 ára
gamall og settist á skólabekk í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
og lauk stúdentsprófi þaðan á
sléttum tveimur árum og dúx-
aði í þokkabót. Hann er því
snarpur námsmaður ekki síður
en framkvæmdamaður.
„Pabbi tók þetta með trompi eins
og allt annað,“ segir Bryndís, dóttir
hans, aðstoðarhótelstjóri á Hótel
Reykjavík. Bryndís var kjörin For-
dstúlka DV árið 1990 og ljósmynda-
fyrirsæta Hollywood sama ár. Bryn-
dís sat í bekk með föður sínum síðasta
árið í Fjölbraut og segir að hann hafi
verið elsti nemandinn í bekknum en
ekki elstur í skólanum.
Veturinn eftir að Ólafur lauk stúd-
entsprófi settist hann á skólabekk í
Háskóla íslands og sótti tíma í hag-
fræði og mannfræði. Hann stundaði
námið aðeins eina önn því hann þurfti
þá að yfirtaka stjóm byggingarfram-
kvæmda í Egilsborgum við Rauðar-
árstíg.
Þegar Ólafur er ekki að vinna dvel-
ur hann með fjölskyldu sinni og kann,
að annarra sögn, einna best við sig í
moldargrúski í garðinum sem hann
sinnir af alúð.
Ólafur á tali við Bjarna Ásgeirsson, hótelstjóra á
Hótel Reykjavík, en hann verður einnig hótelstjóri
á Grand Hótel Reykjavík (Holiday Inn).
54