Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 68
MARKAÐSMAL
HVAÐA VIT ER í ÞVÍ AÐ
AUGLÝSA TUNGUMÁL?
Mjólkursamsalan hyggst verja milljónum króna næstu fimm árin til að hvetja
þjóðina til aö tala rétt oggott íslenskt mál Hvað býr hér að baki?
jólkursamsalan, sem nú
fagnar 60 ára afmæli sínu,
hyggst verja um 7 milljónum
króna á þessu ári til að hvetja þjóðina
til að tala rétt og gott íslenskt mál.
Málræktarátakið stendur yfir næstu
fimm árin. Verði útgjöld til þess á
svipuðum nótum og í ár stefnir í að
heildarkostnaður við það næstu fimm
árin verði yfir 30 miiljónir, upphæð
sem að sjálfsögðu er reiknað með að
skili sér til baka í aukinni
mjólkurneyslu. En hvað býr
hér að baki? Af hverju í
ósköpunum er Mjólkursam-
salan að verja fé til þessara
mála?
Gunnar Steinn Pálsson, al-
mannatengill og auglýsinga-
maður, er hugmyndasmiður-
inn að baki þessa átaks Mjólk-
ursamsölunnar og hann segir
frumhugmyndina vera þau
sjálfsögðu sannindi að öllum
góðum fýrirtækjum beri að
leggja gjörva hönd á einhver
þjóðþrifamál og skapa okkur
enn betra umhverfi. „Með því
að leggja áherslu á íslenskt
mál erum við að undirstrika
íslenskan uppruna Mjólkursamsöl-
unnar og framleiðsluvara hennar.“
Átakið verður með þrennum hætti.
„í fyrsta lagi munum við nota einn
útbreiddasta fjölmiðil landsins, sjálfar
mjólkurumbúðirnar. Þar munum við
vera með ýmiskonar fróðleik, benda á
hvað sé rétt mál og hvað rangt, við
munum benda á ýmislegt sem betur
mætti fara í framburði, benda á am-
bögur, fjalla um slangur og fleira, auk
þess sem við nýtum umbúðirnar
væntanlega einnig til þess að kynna
sjálfan bókmenntaarfinn.
í annan stað snýst hugmyndin um
að Mjólkursamsalan kosti með bein-
um fjárframlögum ýmiskonar uppá-
komur, ráðstefnur, málþing og þess
háttar, auk ýmiskonar útgáfustarf-
semi sem lýtur að verndum tungunn-
ar.“ Að sögn Gunnars Steins verður
slíkt gert í nánu samstarfi við íslenska
málnefnd og Málræktarsjóð en þeir
SAGANÁBAK
VIÐ HERFERÐINA
aðilar eru viðsemjendur Mjólkursam-
sölunnar og fulltrúar „íslenskrar
tungu“ í málinu!
Þriðji þáttur herferðarinnar er
beinar auglýsingar Mjólkursamsöl-
unnar, auglýsingarnar sem eru í lík-
ingu við auglýsinguna sem við höfum
þegar séð í sjónvarpi og kvikmynda-
húsum.
Þessu átaki Mjólkursamsölunnar
er ætlað að standa næstu fimm árin ef
vel tekst til. Gunnar Steinn
segir að þessi leið sé í senn
frumleg og eðlileg. „Hún er
eðlileg að því leyti að stönd-
ugum fyrirtækjum ber að
leggja þjóðþrifamálum lið með
einum eða öðrum hætti og
hún er frumleg að því leyti að
aldrei áður hefur farið með
jafn skipulegum hætti í þessi
mál. Hingað til hafa fyrirtæki
helgað sig umhverfismálum,
náttúruvernd, landgræðslu,
skógrækt, stuðningi við
íþróttafélög og annars konar
mannrækt en málræktin er í
raun nýtt viðfangsefni á þessu
sviði.“
En þótt markmiðið sé að
styðja við íslenskt mál segir Gunnar
að ekki megi gleyma aðalmarkmiðinu
sem er að selja sífellt meira af mjólk-
urafurðum. „Ég er sannfærður um að
ímynd selur vöru og þetta átak mun
vonandi bæta stöðu Mjólkursamsöl-
unnar til muna. Senn eigum við í sam-
keppni við innfluttar mjólkurvörur og
þá er mikilvægt að neytendur átti sig
TEXTI: ÞORSTEINN G. GUNNARSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON 0G FLEIRI
„í kvikmyndahúsum hefur það til dæmis margsinn-
is gerst að fólk hefur klappað hraustlega að lokinni
sýningu auglýsingarinnar. Það er afar fátítt en seg-
ir meira en mörg orð um hve þjóðinni þykir vænt um
tungu sína.“
68