Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Síða 72

Frjáls verslun - 01.01.1995, Síða 72
FOLK HELGA THEÓDÓRSDÓTTIR, OFNASMIÐIUNNI Helga Theódórsdóttir er fjármálastjóri Ofnasmiðjunnar. Ofnasmiðjan seldi hvorki meira né minna en 50 hillukílómetra í Þjóðarbókhlöðuna á síðasta ári. „Ofnasmiðjan vakti þjóð- arathygli þann 1. desember þegar Þjóðarbókhlaðan var formlega vígð. Hillukerfi Þjóðarbókhlöðunnar er frá Ofnasmiðjunni og hefur það fengið sérstakt lof fyrir hönnun. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið mun markvissar að markaðsmál- um hjá fyrirtækinu og hefur það skilað sér í bættri sölu og betri hag,“ segir Helga Theódórsdóttir, fjármála- stjóri Ofnasmiðjunnar. Helga er 40 ára. Hún lauk stúdentsprófi frá M.R. 1974 og prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla íslands 1980, af sölu- og fjármálasviði. Helga vann í eitt ár á hag- deild Verðlagsstofnunar en flutti að því búnu til Dan- TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR merkur þar sem hún bjó í eitt ár. Þegar heim kom vann hún í tvö ár við bókhald hjá Gunnari Asgeirssyni hf. en fór þá í bameignarfrí. Síðan gerðist hún skrif- stofustjóri hjá Securitas hf. í eitt ár eða þangað til hún réðst til Ofnasmiðjunnar ár- ið 1987. Sem fjármálastjóri hefur hún yfirumsjón með bókhaldi og sér um uppgjör, áætlanir og tölvumál. INNRÉTTINGAR, HILLUR OG GÓLFEFNI „Hjá Ofnasmiðjunni vinna nú um 40 manns,“ segir Helga. „Fyrirtækið var stofnað 1936 og hefur þróast hægt og örugglega í gegnum árin. Það er nú MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON staðsett á tveimur stöðum, verksmiðjan er við Flata- hraun í Hafnarfirði en versl- un og söludeild að Háteigs- vegi í Reykjavík. Fjórar deildir eru starfræktar í Ofnasmiðjunni. Stærsta deildin er innréttingadeild, sem býður skrifstofu-, lag- er- og verslanainnréttingar. Henni næst kemur bygg- ingavörudeild, sem selur t.d. hið landsþekkta Pergo parket en það hefur náð mikilli útbreiðslu enda við- haldsfrítt og slitþol þess margfalt á við hefðbundið parket. Framleiðsludeildir eru þrjár; hilludeild, ofnadeild og ryðfríadeild. Ofiiafram- leiðslan er orðinn veiga- minni þáttur en áður hjá Ofnasmiðjunni en fram- leiðsla á hillukerfum hefur orðið mun fyrirferðarmeiri og eru smíðaðar margar gerðir af hillum, hillukerfum og fataskápum. Aðalverk- efnið undanfarið hefur verið nýja bókasafnskerfið sem við bindum miklar vonir við. Við seljum einnig imiflutt hillukerfi fyrir fyrirtæki og einstaklinga og má þar nefna hinar vinsælu finnsku Lund- ia hillur. í ryðfríu deildinni eru smíðaðir vaskar og vaskaborð fyrir stóreld- hús.“ SPILAR BRIDDSOG FERÍJÓGA Eiginmaður Helgu er Öm Friðrik Clausen, sem vinnur í gestamóttöku á Hótel Holti, og eiga þau tvö böm, 16 ára og 10 ára. „Ég hef ekki gefið mér mikinn tíma til tómstunda- starfa og ver frítíma mínum helst til samvista við fjöl- skyldu og vini,“ segir Helga. „Ég hef gaman af ferða- lögum, jafnt utanlands sem innan, og hef mjög gaman af að skoða landið okkar. Mér finnst nauðsynlegt að kom- ast í tengsl við náttúruna og gisti í tjaldi eða nýti mér bændagistingu á ferðalög- um innanlands. Við hjónin spilum reglu- lega bridds við vini okkar og líkamlega þættinum sinni ég með því að fara í Kripalujóga tvisvar í viku. Ég hef prófað ýmsa leikfimi en finnst þetta sú langbesta sem ég hef komist í kynni við,“ segir Helga. 72

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.