Frjáls verslun - 01.03.1996, Qupperneq 22
FORSÍÐUGREIN
KÚVENDIR í MÁLUM Á SÍÐUSTU STUNDU
Pétur mun eiga það til að kúvenda í málum á sfðustu stundu,
málum sem mikil vinna hefur verið lögð í og þar sem stefnan hefur verið
mörkuð og samþykkt löngu áður.
afslátt en áður. Niðurstaðan var einföld: Pétri mislíkaði og
Símon hætti.
STERK SKJÁLFTAHRINA HAUSTIÐ1991
Brotthvarf Súnonar var fyrsti skjálftinn. í kjölfarið kom
öflugur eftirskjálfti. Nokkrir helstu stjómendur fyrirtæk-
isins mótmæltu brottför Símonar og studdu hann. Þetta
voru þau Bæring Ólafsson sölustjóri, Trausti Sigurðsson
auglýsingastjóri, Skúli Skúlason, yfirmaður sölu til veit-
inga- og kvikmyndahúsa, Kristbjörg Ólafsdóttir skrif-
stofustjóri og Helga Ólafsdóttir, ritari Lýðs og Péturs.
Pétur varð heiftarlega reiður út í þetta fólk og sagði því
upp með látum. Svo fyrirvaralausar voru ákvarðanirnar -
og geðþóttalegar - að menn setti hljóða í fyrirtækinu.
Skilaboðin voru hins vegar skýr: Það fór ekki á milli mála
hver valdið hafði í fyrirtækinu.
Við þessa ákvörðun varð allt vitlaust í söludeildinni,
sem heyrði undir Bæring, og hótuðu allir í söludeildinni að
segja upp og fylgja Bæring. Þar með blasti það við Pétri að
hann gæti verið að missa um 30 manns í einni kippu. Pétur
guggnaði. Hann samdi við Bæring um áframhaldandi starf
og síðan við Trausta. Skúli Skúlason, Kristbjörg og Helga
hurfu hins vegar á brott frá fyrirtækinu.
Eftir þessa holskeflu haustið 1991 þar sem Símon Gunn-
arsson hvarf úr forstjórastól eftir um tveggja mánaða setu,
settist Páll Kr. Pálsson í stól forstjórans en hann hafði þá
verið forstjóri Iðntæknistofnunar um árabil. Páll starfaði
hjá fyrirtækinu í tæp þrjú ár, eða fram á vormánuði árið
1994. Fljótlega eftir að Páll kom inn mun hafa farið að bera
á samskiptaörðugleikum á milli hans og Péturs, ekki síst
vegna þess að Pétur mun hafa átt erfitt með að sleppa
hendinni af fyrirtækinu sem aðaleigandi þess.
FJARAÐIÚT UNDAN VÖLDUM PÁLS HÆGT 0G SÍGANDI
Fullyrt er að þegar eftir fyrsta árið hjá Vífilfelli hafi í
reynd verið farið að fjara út undan völdum Páls Kr. hjá
fyrirtækinu þótt hann ynni þar sem framkvæmdastjóri í
næstum þrjú ár. Þótt samkomulag Páls og Péturs væri
stirrt naut Páll gífurlegrar virðingar hjá Coca-Cola erlendis
og skyggði hann í raun á Pétur. Allir innan fyrirtækisins
vissu hins vegar hvert stefndi og að þetta gæti ekki endað
nema á einn veg. Svo fór líka, stundin rann upp á vormán-
uðum 1994. Gert var samkomulag við Pál um að hann
hætti. Hann keypti síðan um haustið, í samstarfi við aðra,
fyrirtækið Smjörlíki - Sól hf. af bönkum og fjárfestingar-
sjóðum.
Þegar Páll Kr. Pálsson kom inn sem framkvæmdastjóri
til Vífilfells lagði hann ríka áherslu á að fá fjármálastjóra inn
í fyrirtækið. Fyrir valinu varð Jón Sigurðsson sem þá var
fjármálastjóri hjá Hans Petersen. Jón kom til starfa hjá
Vífilfelli á vormánuðum 1992. Hann er annar tveggja sem
22
hættu síðastliðin áramót og héldu til Noregs til starfa fyrir
Coca-Cola á Norðurlöndum. Með Jóni fór verksmiðju-
stjórinn, Einar Gunnarsson. Brotthvarf þeirra félaga til
Noregs bar að með löngum aðdraganda. Sveinn Ragnars-
son endurskoðunamemi hefur gegnt starfi fjármálastjóra
frá áramótum en hann kemur frá Coopers & Lybrand,
Endurskoðunarmiðstöðinni, en sú skrifstofa er endur-
skoðandi Vífilfells. Sveinn mun verða til bráðabirgða hjá
fyrirtækinu.
TÍÐUM ERLENDIS 0G HEIM MEÐ SVEIFLU
Þrátt fyrir að Pétur tæki daglega stjómun að sér sumar-
ið 1994, og réði ekki inn nýjan framkvæmdastjóra í stað
Páls Kr. Pálssonar, dvaldi hann tíðum erlendis en kom
síðan heim með mikilli sveiflu og bretti upp ermamar við
daglega stjómun. Slíkt er erfitt. Ekki bara fyrir Pétur
heldur alla. Menn eru ekki nægilega vel inni í málum - hafa
einfaldlega ekki fylgst nægilega vel með. Fjarstýringar
ganga varla upp og mikil hætta er á að stjómunin verði
sveiflukennd og með gassagangi.
í hræringunum hjá Vífilfelli á undanfömum árum hefur
mikið mætt á Vilhjálmi Árnasyni lögfræðingi. Þess má
geta að á meðal starfsmanna Vífilfells gengur Vilhjálmur
undir viðumefninu Matlock. Það hefur oftast komið í hans
hlut að tilkynna mönnum uppsagnir; að þeir hafi verið
reknir. A undanfömum tveimur árum hefur Hreinn Lofts-
son verið helsti lögfræðingur Vífilfells, og aðalráðgjafi Pét-
urs, en Vilhjálmur hefur dregið sig í hlé vegna aldurs.
PÉTUR LÉT TENGDASYNISÍNA TVO HÆTTA
Tveir tengdasynir Péturs hafa verið í starfi hjá Vífilfelli á
undanfömum árum. Þeir eru báðir hættir. Gunnar Gylfa-
son, sem giftur var Guðrúnu, dóttur Péturs, var undir
lokin sölustjóri. Einar Pálmason, sem kvæntur er Erlu
Pétursdóttur, starfaði undir það síðasta sem aðstoðar-
maður Péturs og heyrði beint undir hann.
Pétur gaf bæði Gunnari og Einari tækifæri á að spreyta
sig sem stjórnendur hjá Vífilfelli. Það sýnir á vissan hátt
ljúfmennsku hans. En hann tók líka af skarið gagnvart
þeim báðum og lét þá hætta. Þannig má segja að Pétur sé
samkvæmur sjálfum sér hvað þetta snertir.
Gunnar var gerður að þjónustustjóra og yfirmanni gos-
sölu til veitinga- og kvikmyndahúsa. Þegar Bæring hætti
árið 1993 sem sölu- og markaðsstjóri var það altalað innan
fýrirtækisins að Pétur vildi að Gunnar tæki við af Bæring
en Páll Kr. væri á móti þeim ráðahag og vildi ráða inn
nýjan, utanaðkomandi mann í starfið. Pétur vildi að Gunn-
ar yrði þjálfaður upp í starfið og sendi hann meðal annars út
til Atlanta í þjálfun. Ekki var ráðið í starfið á meðan.
Gunnar tók síðan við sem sölu- og markaðsstjóri árið
1994. Hann var ekki talinn ráða nægilega vel við það og lét
J