Frjáls verslun - 01.03.1996, Page 23
af störfum og hvarf frá fyrir-
tækinu. Þegar hann hætti
var hann skilinn við Guð-
rúnu, dóttur Péturs. Trausti
Sigurðsson, þá auglýsingast-
jóri, tók við starfi hans sem
sölu- og markaðsstjóri.
Hinn tengdasonurinn,
Einar Pálmason, sem
kvæntur er Erlu Pétursdótt-
ur, var um tíma orðinn einn
æðsti starfsmaður fyrirtæk-
isins. Pétur gerði hann að
sérstökum aðstoðarmanni
sínum áður en Páll Kr. Páls-
son framkvæmdastjóri hætti. í skipuritinu heyrði Einar
beint undir Pétur. Þessu starfi hélt Einar eftir að Páll Kr.
var farinn frá fyrirtækinu. Pétur gerði Einar hins vegar
aldrei að framkvæmdastjóra en sagði honum síðan upp á
síðasta ári. Einar rekur núna ísbarinn í Kringlunni.
NÝJU STJÓRNENDURNIR MUNU EKKIMALDA í MÓINN
Víkjum þá að ráðningu hins nýja framkvæmdastjóra
Vífilfells, Þorsteins M. Jónssonar. Það vekur strax athygli
að Þorsteinn hefur hvorki reynslu af að stýra fyrirtæki né
að vinna hjá einkafyrirtæki sem viðskiptafræðingur. Eftir
nám í viðskiptafræði starfaði hann í tvö ár í hagfræðideild
Seðlabankans. Þaðan fór hann til framhaldsnáms í Banda-
ríkjunum og lá leiðin aftur í Seðlabankann að námi loknu.
Hann tók við starfi hagfræð-
ings Samtaka iðnaðarins í
byijun ársins 1994 og þaðan
kemur hann til starfa hjá Vífil-
felli.
Þorsteinn er rétt um þrít-
ugt og það verður að segjast
eins og er að Pétur Bjöms-
son, eigandi Vífilfells, virðist
vera að taka nokkra áhættu
með því að ráða svo ungan og
óreyndan mann í svo viðam-
ikið stjómunarstarf - með
fullri virðingu fyrir Þorsteini.
Áberandi er hvað aðrir
stjómendur, sem koma núna inn til Vífilfells, eru ungir og
óreyndir. Það bendir til þess að hvorki Þorsteinn né með-
stjórnendur hans muni malda í móinn þótt Pétur skipti sér
af daglegum rekstri. Kannski koma þeir líka inn með því
hugarfari - þeir gera beinlínis ráð fyrir að allt geti gerst,
enda hafa þeir ástæðu til að hugsa þannig.
AÐ HAFA ÍSKALDA KÓK. ALLTAF
Hvað um það, það kemur sér sjálfsagt betur fyrir nýja
menn í sjóðheitum stjórnunarstólum hjá Vífilfelli að hafa
ískalt kók sér við hlið. Alltaf. Heimspeki Coca-Cola er að
drykkurinn standi fyrir frelsi og veiti aukið sjálfstraust.
Enda er kók vinsælt hjá þjóðum sem em að brjótast út úr
fjötrum einræðis.
Pétur Bjömsson er sagður harðari „Kókari“ en yfir-
menn Coca-Cola í höfuðstöðvum fyrirtækisins í At-
lanta í Bandaríkjunum. Hér er hann við Coca-Cola
bílinn í anddyri Vífilfells við Stuðlahálsinn.
MANNABREYTINGAR HJÁ VÍFILFELLI
1.
Lýður Friðjónsson hætti sem
forstjóri í ágúst 1991 og hóf störf
fyrir Coca-Cola Intemational á al-
þjóðlegum vettvangi; sem markaðs-
stjóri á Norðurlöndunum. Ári áður
hafði Davíð Guðmundsson
verksmiðjustjóri hætt og tekið við
verksmiðjustjóm hjá Pripps- og
Coca-Cola í Gautaborg í Svíþjóð.
Við starfi Davíðs tók Ólafur
Magnússon.
2.
Símon Á. Gunnarsson tók við
starfi forstjóra af Lýð Friðjónssyni.
Þeir Pétur áttu ekki skap saman og
hætti Símon eftir aðeins um tvo
mánuði, haustið 1991. Símon var
endurskoðandi Vífilfells og var ráð-
inn í stöðu forstjóra fyrir tilstilli
Lýðs. Símon lét tvo lykilstarfsmenn
fara frá fyrirtækinu, Bergsvein
Ólafsson dreifingarstjóra og Ólaf
Magnússon verksmiðjustjóra. Ein-
ar Gunnarsson tók við starfi Ólafs
og Daði Daðason við starfi Berg-
sveins.
3.
Bæring Ólafssyni, sölu- og
markaðsstjóri, var sagt upp af Pétri
haustið 1991. Þeir sömdu síðan upp á
nýtt þannig að það kom aldrei til þess
að Bæring hætti. Snemma árs 1993
bauðst Bæring að taka við starfi þjálf-
unar- og þróunarstjóra hjá Coca-Cola
í Asíu og Ástralíu - en með aðsetur í
höfuðstöðvum Coca-Cola í Atlanta í
Bandaríkjunum. Þetta var mikill heið-
ur fyrir Bæring. Hann starfar nú í
Bombay á Indlandi.
4.
Trausta Sigurðssyni, þáverandi
auglýsingastjóra, var sagt upp í
átökunum haustið 1991 en ekkert
varð úr að hann hætti. Pétur óskaði
eftir starfskröftum hans áfram og
varð það úr. Trausti tók síðan við
starfi sölu- og markaðsstjóra á árinu
1994. Hann sagði upp í febrúar síð-
astliðnum, ósáttur við vinnubrögð
Péturs.
5.
Skúla Skúlasyni, þáverandi
yfirmanni í sölu til veitinga- og kvik-
myndahúsa, var sagt upp í orrahríð-
inni miklu haustið 1991. Hann er nú
sölustjóri hjá Toyota og hefur starf-
að þar við góðan orðstír.
6.
Kristbjörgu Ólafsdóttur,
skrifstofustjóra og valdamikilli
manneskju innan Vífilfells, var sagt
upp í átökunum í lok ársins 1991.
23