Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1996, Qupperneq 42

Frjáls verslun - 01.03.1996, Qupperneq 42
HNÝTTI UPP í HEST ÞRIGGJA ÁRA „Matthías var ákaflega duglegt barn og óragt. Hann var 3 eða 4 ára þegar hann var farinn að geta hnýtt upp í hest. Hann hefur alltaf verið gífurlega vinnusamur og vinnuharður. “ hefur sjálfur sagt í blaðaviðtölum að lykillinn að velgengni hans sé fyrst og fremst þrotlaus vinna og eljusemi, stuðningur fjölskyldunnar og gott starfsfólk. Hans helsta vopn í harðri samkeppni á þessu sviði, sem ávallt hefur verið fyrir hendi, hefur verið, að hans sögn, að leggja áherslu á góða þjónustu við landsbyggðina. KYNNTIST KÆRUSTUNNI í VÉLSMIÐJU Matthías kvæntist ungur jafnöldru sinni, Elínu Ragnar- sdóttur, sem er ættuð austan af fjörðum, frá Djúpavogi, og er elstadóttirþeirra, Lovísa, fædd 1950 þegar þau voru bæði innan við tvítugt. Þau Elín og Matt- hías kynntust þegar hann var að vinna í vélsmiðjunni Keili en stjúpfaðir Elínar var forstjóri þar. Næstur bamanna kom Reynir 1953, þá Lúðvík 1954, Baldvin Smári 1956 og Ragnar rak lestina 1964. í dag vinna öll systkinin við Bílanaust og má með réttu kalla það fjölskyldu- veldi. Lovísa er skrifstofu- og fjármál- astjóri, Reynir er framkvæmdastjóri, Baldvin Smári er útibús- og fram- kvæmdastjóri í Hábergi, Ragnar er innkaupastjóri og Lúðvík er fram- kvæmdastjóri Metró. Samtals em bamaböm Matthíasar orðin 14 og bamabamabömin 3. Fjölskyldan er afar samheldin og vinnur mikið saman eins og sést hér að framan. Auk þess, sem talið er upp, vinna tengdaböm Matthíasar mikið hjá Bílanausti eftir því sem að- stæður leyfa hverju sinni og bama- börnin eru að byrja að vinna þar einn- ig. Þannig má segja að Bílanaust sé ekki bara fjölskyldufyrirtæki „par ex- ellence" heldur ættarfyrirtæki. RÆKTAR SKÓG í GRÍMSNESI Matthías hefur alla tíð unnið gífur- lega mikið eins og hann vandist við í æsku. Sérstaklega á fyrstu árum fyrirtækisins var vinnuálagið gífurlegt og varla nokkum tímann stund aflögu til þess að taka frí. Smátt og smátt dró þó úr því en til þessa dags hefur Matt- hías ekki lagt það í vana sinn að taka sér sumarfrí en í stað þess hafa þau hjónin oft farið í stuttar ferðir til sólar- landa, s.s. Spánar, Kanaríeyja og Flórída. Stöku sinnum skreppur Matthías í veiði með sonum sínum, m.a. í Hítará, og veitir það honum mikla ánægju. Hann er sagður dijúg- fiskinn. Þau hjónin keyptu sumarbú- stað austur í sveitum, í Norðurkots- landi í Grímsnesi, fyrir tæpum 20 ár- um og þar una Matthías og Elín, kona hans, sér löngum um helgar við að prýða landið skógi og hefur orðið vemlega ágengt. Afkomendur þeirra sækja mikið í bústaðinn til þeirra svo oft er glatt á hjalla þar. „Matthías er afar heilsteyptur maður sem gott er að eiga að,“ sagði maður sem vel þekkir til hans og hef- ur lengi gert. „Hann er með afbrigð- um duglegur og ósérhlífinn og í við- skiptum er hann heiðarlegur og orð- heldinn. Hann er af gamla skólanum og þorir að treysta samkomulagi sem aðeins er handsalað." Matthías og Elín hafa búið á nokkr- um stöðum. Þau settust að í Kópa- vogi þegar þau komu frá Keflavík en þaðan fluttu þau í Árbæ, þar sem þau bjuggu lengst, en það- an í Mosfellsbæ, síðan í Foss- vog og loks í Grafarvog þar sem þau búa við Dverghamra. Ehn hefur unnið töluvert utan heimil- is, m.a. í Bílanausti, auk þess sem uppeldi bamanna hvíldi að mestu á hennar herðum vegna mikillar vinnu Matthíasar. HREINSKIPTINN 0G HEIÐARLEGUR „Hann faðir minn er hrein- skiptinn, heiðarlegur og jafn- lyndur en þegar hann skiptir skapi getur orðið hvasst,“ sagði Lov- ísa, dóttir hans. „Hann er afar vinnu- samur, vinnan gengur fyrir öllu, og gengur í öll störí og hlífir hvergi sjálf- um sér. Hann ætlast til hins sama af samstarfsmönnum sínum og kannski sérstaklega af okkur bömunum." Matthías hefur, eins og áður sagði, yfirleitt ekki leyft sér mikinn munað í formi frídaga en hin allra síðustu ár er hann að byija að slaka á. Hann hefur ekki tekið mikinn þátt í félagsstarfi utan að vera félagi í Oddfellowregl- unni þar sem hann tilheyrir stúkunni Þorfinni karlsefni, nú Leifi heppna. Hann hefur nýlega tekið upp hesta- OÍOHE SBIKO VlLL«1«OV* »OCH yUIt 19 B B B ■ ■ ■ Þýsk-íslenska er í glæsilegu húsnæði við Lynghálsinn. ELLEFTI í RÖÐ 16 BARNA Matthías er ekki konungborinn en af styrkum ættum harðgerra vestfirskra sægarpa og aflamanna. Hann er ellefti í röð 16 barna Helga Guðmundssonar og Guðrúnar Ólafsdóttur. 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.