Frjáls verslun - 01.03.1996, Side 67
FOLK
GUÐRÚN HÖGNADÓTTIR, RÍKISSPÍTÖLUM
„Tilgangur Gæðastjórnunarfélags íslands er að efla
gæðavitund íslendinga og stuðla að því að aðferðir gæða-
stjórnunar verði virkur þáttur á öllum sviðum þjóðlífs-
ins,“ segir Guðrún Högnadóttir, formaður Gæðastjórn-
unarfélags Islands.
Bilgangur Gæða-
stjómunarfélags ís-
lands er að efla
gæðavitund íslendinga og
stuðla að því að aðferðir
gæðastjómunar verði virk-
ur þáttur á öllum sviðum
þjóðlífsins. Við erum að
virkja fyrirtæki, stofnanir
og einstaklinga til að tileinka
sér þessa hugmynda- og að-
ferðarfræði sem skilar sér í
árangursríkari rekstri og
aðgangi að nýjum mörkuð-
um,“ segir Guðrún Högna-
dóttir, formaður Gæða-
stjórnunarfélags íslands.
Innan félagsins eru tíu fag-
hópar í jafn ólíkum greinum
og hugbúnaðargerð, bygg-
ingariðnaði, heilbrigðismál-
um, landbúnaðarmálum og
svo framvegis. Tvisvar til
þrisvar í mánuði hittist hver
hópur um sig og þar eru tek-
in fyrir viðfangsefni gæða-
stjórnunar á líflegan og fag-
legan hátt. Sömu grundvall-
arlögmál eru að baki gæða-
stjórnunar í öllum geirum
atvinnulífsins en fræðigrein-
in er aðlöguð aðstæðum. Að
sögn Guðrúnar er um að
ræða tvö meginsvið gæða-
stjórnunar, annars vegar al-
tæka gæðastjómun og hins
vegar gæðakerfi sem eru
byggð á ISO-stöðlunum en
íslensk fyrirtæki hafa vottun
samkvæmt þessum aðlþjóð-
legu stöðlum. Gæðastjóm-
unarfélag íslands er tíu ára á
þessu ári en starfsemi þess
hefur aukist ár frá ári. Fyrir
tíu árum var gæðastjórnun
tiltölulega óþekkt hugtak
hérlendis en íslensk fyrir-
tæki hafa tekið vel við sér
hin síðari ár.
GÆÐASTARF RÍKISSPÍTALA
Guðrún er forstöðumað-
ur gæða- og þróunarskorar
hjá Ríkisspítölum en í því
starfi felst yfirstjóm á
gæðamálum stofnunarinn-
ar. Hún segir að hjá Ríkis-
spítölum sé verið að vinna
samkvæmt þremur leiðum.
„Við erum að fara yfir
bandarísku sjúkrahússstaðl-
ana, skoða kröfur, sem
gerðar eru til sjúkrastofn-
ana í Svíþjóð og fylgjast með
öðrum alþjóðlegum kröfum.
í altækri gæðastjómun eru
fjölmargir umbótahópar
starfandi innan spítalans og
auk þess erum við að fylgj-
ast með ákveðnum þáttum
sem gefa vísbendingu um
hversu vel hafi tekist til með
þjónustu við sjúklinga,“
segir Guðrún. „Við höfum
unnið samkvæmt þessu
formlega kerfi í rúm tvö ár.
Ég tel ávinning af þessu
starfi vera viðunandi ef við
mælum árangur í breytum,
svo sem tíma, nýtingu hrá-
efna, einföldun á vinnuferl-
um, ánægju sjúklinga og
starfsmanna og fjárhagsleg-
um spamaði. En þetta er
stöðug sókn og við væntum
þess að gera enn betur á
næstu árum.“
ÁRÍAFRÍKU
Guðrún kom til starfa hjá
Ríkisspítölum haustið 1991,
fyrst sem fræðslustjóri og
sá þá um alla almenna
fræðslu starfsmanna. í árs-
byrjun 1995 tók hún við nú-
verandi starfi þegar gæða-
og þróunarskor tók til
starfa. En hver er hennar
bakgmnnur?
„Ég hafði aUtaf mikinn
áhuga á læknisfræði en
ákvað að taka mér hlé frá
námi eftir stúdentspróf. Þá
réð ég mig til starfa í Afríku í
eitt ár, bæði hjá Rauða
krossinum og World Wild-
life Foundation. Þar sá ég
ýmsa aðra möguleika í fag-
inu og þegar ég kom heim
fékk ég undanþágu til að
skrá mig í læknadeild. Ég
fékk að velja fög úr hjúkrun-
arfræði og viðskiptafræði
en þær einingar giltu í skóla í
Bandaríkjunum,“ segir
Guðrún. í Bandaríkjunum
lauk hún BS-gráðu í heil-
brigðisfræðum með sjúkra-
hússtjórnun sem sérgrein.
Árið 1991 lauk hún MHA-
gráðu (Master of Health
Administration) en þar sér-
hæfði hún sig í gæðastjórn-
un.
Guðrún er þrítug að aldri,
fædd og uppalin í Reykjavík.
Þriðjungi ævi sinnar hefur
hún eytt í Bandaríkjunum,
fyrst sem bam með foreldr-
um sínum og síðar í sínu
námi. Hún er gift Kristni
Tryggva Gunnarssyni, úti-
bússtjóra hjá íslandsbanka í
Garðabæ.
„Við erum mikið útivist-
arfólk og emm dugleg að
drífa okkur út í göngur, í
tennis eða á skíði. Eins og
aðrir íslendingar höfum við
gaman af því að hitta fólk og
erum í sælkeraklúbbum. Ég
hef ánægju af allri handa-
vinnu, stunda jóga og svo er
fagið mitt áhugamál. Ég á
það líka til að grípa í sellóið
mitt gamla, eiginmanni og
nágrönnum til skelfingar,"
segir Guðrún og hlær.
TEXTI: JÓHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
67