Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 39
NÆRMYND
myndu segja að eina systírin í hópi
bræðra væri oft ákveðnari og stefnufast-
ari en stúlkur sem hefðu alist upp með
öðrum systrum.
LÆRÐI í LONDON
Kristín hafði snemma áhuga á að
læra snyrtífræði og ætlaði fyrst í Fjöl-
brautaskólann við Armúla en fór síðan á
samning hjá Maríu Dalberg sem rak
snyrtístofu í Bankastrætí ásamt manni
sínum, Hallgrími Dalberg. Þar lærði
Kristín sitt fag og fór síðan til framhalds-
náms í London og lærði þar við skóla
sem hét Complexion International
London School of Makeup. Kristín lauk
námi 1983 sem förðunar- og snyrti-
meistari og kom þá heim. Hún setti fljót-
lega upp sína eigin snyrtístofu, sem var
kennd við No Name snyrtivörur, og rak
hana næstu sex árin.
Næsta skref var að selja snyrtistof-
una og setja á stofn heildverslunina Rek-
Is sem einbeitti sér að innflutningi á
snyrtivörum. Kristín sneri sér í auknum
mæli að markaðsmálum og kom meðal
annars á þeim sið að á hverju ári er út-
nefnd sérstök No Name stúlka sem er
nokkurs konar andlit snyrtivaranna hér-
lendis og fulltrúi fyrirtækisins. Þessi út-
nefning hefur oft vakið athygli
þegar frægar fegurðardísir eins
og Linda Pétursdóttir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir eða Edda Björg-
vinsdóttir hafa borið titilinn. Nú-
verandi No Name stúlka er Val-
gerður Matthíasdóttir, arkitekt
og sjónvarpsstjarna.
HJÓNABANDIÐ
Kristín giftist 1989 Halldóri
Kristjánssyni, heildsala og at-
hafnamanni. Hann er stundum
talin tíl „Kók“ ijölskyldunnar
en móðir hans, Iðunn Björns-
dóttír, er systir Péturs Björns-
sonar í Vífilfelli. Þau hjónin
voru töluvert í sviðsljósinu
um tíma, sérstaklega vegna
kaupa sinna á framleiðslu-
deild ÁTVR og framleiðslu og
útflutnings á Eldur&ís vodka.
Þau ráku saman heildversl-
unina Rek-ís og fyrirtæki eins og Eld-
haka kom við sögu þeirra um tíma. Hall-
dór og Kristín voru í hringiðu sam-
kvæmislífsins um tíma og töldust til ís-
lenska þotuliðsins ef það er þá til í ís-
lensku samfélagi. Þau slitu hjónabandi
VINNUSAMUR KENNARI
Hún á afar auövelt með að umgangast
fólk og mynda tengsl við það, eins og er
ákaflega mikilvægt í starfi eins og
þessu. Kristín er fljóthuga og stundum
gætir óþolinmæði í fari hennar en hún er
samt góður kennari sem á auðvelt með
að miðla þekkingu sinni til fólks.
sínu 1994 og síðan heíur Kristín verið
ein á ferð. Hún býr í dag á Leifsgötu 4
þar sem hún leigir íbúð.
Skilnaður er hlutskipti margra og oft
verða hatrömm átök í kjölfarið þar sem
tekist er á um eigur, börn og annað sem
getur komið til skipta. Það var, að sögn,
ekki í tilviki Kristínar og Halldórs held-
ur skildu leiðir þeirra í vinsemd og sam-
band þeirra er án sárinda í dag. Þau
höfðu verið í sambandi um árabil áður
en þau giftust og voru því ágætlega und-
irbúin þótt endingin væri ekki meiri en
raun ber vitni.
VINNUÞJARKURINN KRISTÍN
Kristín vinnur gríðarlega mikið eins
og margir sjálfstæðir atvinnurekendur.
Dæmigerður vinnudagur hjá henni byrj-
ar á því að hún fer í Baðhús Lindu P. og
stundar þar
leikfimi og líkamsrækt en það
gerir hún að jafnaði þrisvar í viku. Þaðan
liggur leiðin svo á Hverfisgötuna þar
sem bækistöðvar hennar eru og eftír
hefðbundin vinnudag í heildverslun og
snyrtistúdíói tekur við kennsla í förðun-
arskólanum á kvöldin sem stendur fram
undir miðnætti. Starf hennar er fjöl-
breytt því fyrir utan rekstur heildversl-
unarinnar sinnir hún mikið ráðgjöf, fyr-
irlestrum og þess háttar verkefnum fyr-
ir félög, einstaklinga og sérstök tilefni.
Það er oft orðið áliðið þegar Kristín
stefnir heim og lítið um tómstundir tíl
annars en að hvíla sig og horfa á sjón-
varp. Þó hefur Kristín gefið sér tíma til
þess undanfarin tvö ár að vera þátttak-
andi í verkefni á vegum Reykjavíkur-
borgar sem hefur hlotíð nafnið Brautar-
gengi og er ætlað konum í atvinnulífinu.
Markmiðið er að hjálpa þátttakendum til
þess að koma undir sig fótunum í at-
vinnulífinu veita þeim sjálfstraust tíl að
hrinda hugmyndum sínum í fram-
kvæmd og kenna þeim undirstöðuatrið-
in í því að koma vöru og vinnu á markað.
Fyrirkomulagið í Brautargengi hefúr
verið með þeim hættí að fyrra árið sátu
þátttakendur á skólabekk alla mánu-
daga en seinna árið einn mánudag í
mánuði. Þær sextíu konur, sem verið
hafa þátttakendur í þessum fyrsta
áfanga verkefnisins, hafa ákveðið að
stofna með sér félag og halda áfram
tengslunum eftir að náminu sleppir.
Þarna virðist því vera að myndast nokk-
urs konar grasrótarhreyfing kvenna í at-
vinnulífinu.
Þannig er vinnu-
dagur Kiástínar alls
ekki alltaf liðinn þótt
hún loki dyi'unum á
Hverfisgötunni og
haldi heim á leið. Iðu-
lega fer hún heim
með stóran bunka af
pappírum undir hend-
inni sem hún situr yfir
eitthvað fram yfir mið-
nætti.
LJÓSMYNDUN
OG TÓMSTUNDIR
Kristín hefur því nær
engan tíma aflögu til
þess að iðka hefðbundin
áhugamál í tómstundum
og er ekki félagi í neinum
samtökum eða klúbbum.
Þegar hvíldarstundir gefast
horfir hún á myndbönd og eyðir tíma
með vinkonum sínum. Hún hefur mikið
samband við bræður sína og móður sem
enn vinnur hálfan daginn í Múlakaffi.
No Name
39