Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 69
TEXTI: INGIBJÖRG ÓÐINSDÓTTIR
Sigfús Sigfusson, forstjóri Heklu. Fyrirtækið flytur inn Scania vörubíla frá Svíþjóð og njóta
þeir vaxandi vinsælda hér á landi. „Scania er annar mest seldi vörubíllinn á Islandi í flokki
16 tonna bíla og þar yfir.“ FV-myndir: Geir Ólafsson.
ÞJÓÐ HÁTÆKNIOG KJNAÐAR
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu, segir ab Svíar séu afar jákvœðir í
/
garð Islendinga - og aó þeir séu mjög framarlega í viöskiptum. Hekla
flytur inn Scania frá Svíþjóð.
□ kkur þykir mjög gott
að eiga viðskipti við
Svía og við höfum átt
við þá gott samstarf. Það kom
okkur skemmtilega á óvart
hvað þeir eru jákvæðir í garð
okkar Islendinga,” segir Sig-
fús Sigfússon, forstjóri Heklu
sem m.a. flytur inn hina
sænsku Scania bíla. Hekla tók
við Scania umboðinu fyrir
þremur árum, að sögn Sigfús-
ar, þar sem viðskiptin höfðu
aðallega beinst að Japan,
Þýskalandi, Bandaríkjunum
og Bretlandi.
„Svíar hafa alltaf verið
mjög framarlega í viðskiptum.
Þetta er mikið iðnaðarveldi og
mjög efnuð þjóð. Þeirra há-
tækni hefur verið langt á und-
an öðrum. A meðan t.d. Danir
hafa verið meira eins og kaup-
menn hefur Svíþjóð verið iðn-
aðarveldi og átt miklar nátt-
úruauðlindir,” segir Sigfús
Hekla náði nýlega samn-
ingi við SVR um að útvega
þeim Scania strætisvagna
fram yfir aldamót. Samning-
urinn hljóðar upp á 221 millj-
ón króna en um er að ræða
tólf vagna sem tilheyra, að
sögn Sigfúsar, nýrri kynslóð
strætisvagna sem nú eru að
koma á markað. SVR hefur
nú einn slíkan tilraunavagn í
umferð.
„Þetta er gjörbylting. Þeir
menga minna, hvort sem um
loft- eða hávaðamengun er að
ræða, eyða minna eldsneyti og
eru mjög hagkvæmir í rekstri.
Þetta eru ennfremur svo-
kallaðir lággólfsvagnar
þannig að hægt er að stíga
beint af gangstéttinni upp í
vagninn. Þeir eru öðruvisi í
útliti og mjög þægilegir að
sitja í. Þetta er án efa framtíð-
in í strætisvögnum.”
VINSÆLIR VÖRUBÍLAR
Scania vörubíllinn er enn-
fremur orðinn annar mest
seldi vörubíllinn á Islandi, þ.e.
16 tonn og yfir, en Scania
framleiðir eingöngu stóra bíla.
„Við fengum umboð íyrir þá á
sama tíma og við seldum
helmingi fleiri í fyrra en árið
áður,” segir Sigfús.
Árið 1997 voru fluttir inn
97 stórir vörubílar og þá var
Scania í 2. sæti á eft-
ir MAN með 25 bíla, eða
26,9%. Þess má geta að meðal-
verð á slíkum bíl er 8-12 millj-
ónir fyrir utan virðisaukaskatt.
„A sama tímabili
voru fluttir inn 98 notaðir bíl-
ar. Þar er Scania í 1. sæti með
35 bíla og 35,7% markaðshlut-
deild. Við flytjum þá reyndar
ekki inn sjálfir en þetta segir
okkur að þeir, sem flytja inn
og selja notaða vörubíla, vita
að kaupendum Scania býðst
góð þjónusta og gott vara-
hlutaverð.”
Hekla er einnig með um-
boð fyrir General Electric og
Good Year en bæði fyrirtæk-
in eru með höfuðstöðvar fyr-
ir Norðurlöndin í Svíþjóð.
„Við erum því með mjög
mikil samskipti við Svia og,
að mínu mati, alveg sérstak-
lega góð. Okkar reynsla er
sú að það er líka mjög auð-
velt að nálgast þá á pers-
ónulegum nótum.” S3
. . ssVRum að selja þeim Scama
lega samningi vi núna einn shtom
ram yfir aldamot. hefit H;mn mengar
, umferð. „Þetta «*«&**& segir sigfús.
69