Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 76
að það taki þátt í því að opna gægjugöt inn í líf fína og fræga fólks-
ins, eins og sumir segja, að David Hare geri í nýjasta leikriti sínu,
Amy's View, sem nú gengur á Aldwych Theatre? Aðalpersóna
þess, leikin af Judi Dench, er leikkona, sem yfirgefur leiksviðið til
að afla fjár og frama í vinsælli sjónvarpsþáttaröð, og þykjast menn
kenna þar sem fyrirmynd aðra af frægustu leikkonum Breta,
Díönu Rigg. Þetta er, eins og Hares er von og vísa, lipurlega
skrifað leikrit, en ekkert meistaraverk, eins og einhver há-
stemmdur gagnrýnandi orðaði það; til þess eru helstu karllýsing-
ar þess of einfaldar og ógeðfelldar, samúð höfundar með kven-
persónunum of gegnsæ.
Aðgangshörð leikrit um sögulegar persónur eru auðvitað
ekkert nýjabrum í leikbókmenntunum. Shakespeare, svo enn sé
vitnað í hann, dró upp ófagra mynd af sumum stjórnendum
landsins í söguleikjum sínum, og Hugh Whitemore fetar að því
leyti í spor hans með leikriti sínu A Letter of Resignation. Það lýs-
ir upphafinu að endalokum stjórnar Harolds sáluga Macmillan
árið 1962, en banabiti hennar var eitt þeirra kynlífshneyksla sem
eru eitt af þjóðarsportum Breta. Edward Fox þykir afar góður í
aðalhlutverkinu, draga upp sannferðuga mynd af persónunni án
þess að falla í ódýra eftirhermu. En ekki verður sagt, að
Whitemore lýsi Macmillan sem hetjulegum manni, því að kenn-
ing hans er sú, að óhreinlyndi í hjónabandsmálum forsætisráð-
herrans sjálfs hafi verið undirrót þess, að hann tók ekki á málinu,
sem batt enda á valdaferil hans.
Er hægt að benda væntanlegum Lundúnaförum á fleiri verk,
þó að undirritaður taki auðvitað ekki ábyrgð á öðru en því, sem
hann hefur kynnt sér sjálfur? Þeir, sem unna breskri orðheppni,
ættu ekki að verða sviknir af leik Oscar Wildes, An Ideal Hus-
band. Þá hefur mikið lof verið borið á sýningu á leikriti J.B.
Priestíeys, An Inspector Calls, sem sýnt hefur verið hér á landi
undir heitinu Ovænt heimsókn, síðast á Akureyri fyrir fáeinum
árum. Leikurinn fjallar um dularfullan lögreglufulltrúa sem
bankar upp á hjá auðugum verksmiðjueiganda og sýnir fram á
hvernig hann sjálfur og aðrir í fjölskyldu hans bera ábyrgð á
dauða ungrar stúlku úr lágstéttinni. Leikstjórinn, Stephen
Daldry, sem er í senn einn af kraftmestu og umdeildustu leik-
stjórum Breta, hefur eftir umsögnum og myndum að dæma
reynt að leysa dramað úr viðjum þess hefðbundna stofuleiks,
sem Priestley batt sig við, og þar eð leikurinn fer öðrum
þræði fram á hálf goðsögulegu plani, má vel vera, að það
takist viðunanlega. Umbúðalaus móralismi Priestleys
hefur hins vegar aldrei höfðað til mín og því lét ég
annað ganga fyrir.
Mér þykir einnig rétt að minna á leikflokk þess
fræga leikhúsmanns Peter Halls, sem hefur vak-
ið mikla eftirtekt að undanförnu. Hann sýndi
fram undir jól í Old Vic-leikhúsinu, en er nú flutt-
ur yfir í Piccadilly 'rheatre (sími miðasölu 0171
3691734). Þar verður næstu mánuði boðið upp
á mörg ágæt leikrit með miklu úrvali leikenda:
Beðið eftir Godot, Mannhatara Moliéres,
Much Ado About Nothing (þeim sem hafa
tíma og aðstæður gæti gefist skemmtilegt
tækifæri til samanburðar við fyrrnefnda sýn-
ingu RSC), Major Barböru Shaws og Filu-
menu eftir Eduardo de Filippo. 55
mennmv
... o? leiklirt í
Gauragangur II
**
13
Meiri gauragangur eftír Ólaf Hauk Símonarson í Þjóðleikhúsinu
Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson
Leikmynd: Grétar Reynisson
Tónlist, tónlistarstjórn og útsetningar: Jón Ólafsson
að er komið að hinni árlegu stórsýningu þeirra Ólafs Hauks
og Þórhalls, og hún er að þessu sinni framhald á leiknum um
Orm Oðinsson, Gauragangi, sem naut mikilla vinsælda í Þjóð-
leikhúsinu fyrir nokkrum árum. Verkið er bersýnilega skrif-
að í þeim eina tilgangi að ná sem flestum af yngri kynslóð í leikhús-
ið. í því skyni hefur Jón Ólafsson tónlistarmaður verið kvaddur til
að semja og stjórna tónlistinni, rokkpoppi eða popprokki, sem allt
flýtur af í sýningunni; Nýdönsk, sem gerði skemmtilega músík við
Gauragang nr.l, er víst ekki lengur innan seilingar. I minningunni
er tónlist Nýdanskrar hugþekkari og jafnvel fjölbreyttari en nýja tón-
listin - Ólafur Haukur á reyndar sjálfur fáein lög þarna - en það verð-
ur víst að vera smekksatriði, a.m.k. hjá mér.
Ekki er ástæða til að rekja efnisþráð verksins í smáatriðum.
Ólafur Haukur gerir sér hægt um hönd og sendir aðalpersónur sín-
ar, ungskáldið Orm Óðinsson og vin hans Ranúr, í ævintýraleit til
Kaupmannahafnar. Þar lenda þeir sem betur fer ekki á einhverjum
leiðinda stúdentagarði, heldur í undirheimum borgarinnar, þar sem
smákrimmar, rustalegir á ytra borði en góðir inn við beinið, standa
Sigrún Edda Björnsdóttir, Bergur Þór Ingólfison og Helgi
Björnsson í Gauragangi.
Leiklist í London
76