Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 55
STARFSMANNAMAL
er hægt að fá Bubba Morthens fyrir 50
- 60 þúsund krónur eða Pál Oskar
Hjálmtýsson fyrir lítið minna eða jafn-
vel Herbert Guðmundsson eða Krist-
ján Kristjánsson: KK. Ríó tríó fæst fyr-
ir 70 - 90 þúsund, allur flokkurinn með
einum aukamanni.
Verðið er ekki alltaf í hlutfalli við
fjölda söngvara því fyrir um það bil 50
þúsund krónur er hægt að fá heilan kór,
blandaðan kór, karla- eða kvennakór
sem telja á bilinu 40 - 70 manns. Hér er
ekki alveg tryggt að fylgni sé milli
magns og gæða en rétt að hver velji fyr-
ir sig.
Alftagerðisbræður koma norðan úr
Skagafirði og syngja töluvert á hátíðum
og mannfögnuðum. Þeir munu kosta
samanlagt 150 þúsund komnir á svið
með sínum undirleikara að frádregnum
ferðakostnaði sem getur verið nokkur.
Hægt er að fá fleiri kvartetta, s.s. Ut í
vorið, sönghópinn Rúdolf og fleiri en
ekki tókst að grafa upp verð á þeim.
TÖFRABRÖGÐ 0G LEIKFIMI
En það má gera fleira en að syngja
og grínast því í boði á markaðnum eru
einnig dansarar, töframenn og fleira
ER VINSÆLASTUR
Laddi og Spaugstofumenn bera höíuð
og herðar ylir aðra skemmtíkrafta í
vinsældum, samkvæmt könnun
Frjálsrar verslunar fró því í endaðan
febrúar. Laddi er þó langvinsælastur
allra; fimmtungur þjóðarinnar segir
hann sinn uppáhaldsskemmtikraft!
Dskoðanakönnun Fijálsrar versl-
unar í endaðan febrúar var
meðal annars spurt um vin-
sælustu skemmtikraftana. Spurt var:
Hver er uppáhaldsskemmtikraftur
þinn?
Niðurstaðan er afgerandi; Laddi er
vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar,
samkvæmt könnuninni. Örn Arnason
er sá næstvinsælasti. Spaugstofan er í
þriðja sætí og Sigurður Siguijónsson í
því fiórða.
Könnun Fijálsrar verslunar var
símakönnun. Hún var framkvæmd
samtímis í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og á Akureyri. Úrtakið í
könnuninni var 1.200 manns - og þar af
tóku 809 þátt í henni. Alls 509 nefndu
einhveija skemmtíkrafta en 300
sögðust óákveðnir - eða um 37%.
Laddi reyndist langvinsælastur í
öllum þessum bæjarfélögum og Örn
Árnason sá næstvinsælasti - nema í
Hafnarfirði þar sem Sigurður
Sigurjónsson var í öruggu öðru sætí.
________________________________________
SKEMMTIKRAFTANA?
Hvaö kostar ab fá pekktustu skemmtikraftana - og hverjir peirra eru vinsælastir?
skemmtilegt. Pétur pókus og Skari
skrípó draga kanínur úr hatti fyrir 30 -
45 þúsund krónur í hvert sinn og það
mun vera hægt að fá lipurt par til að
sýna samkvæmisdansa fyrir um 20 þús-
und krónur. Magnús Scheving kemur
fram á skemmtunum og mun taka 35-
40 þúsund fyrir kvöldið. Magnús
skemmtir fólki eins og honum einum
er lagið.
VINSTRISAMAN VINSTRI
Oftast er það svo á hátíðum eins og
þeim sem hér eru til umræðu að eftir
að skemmtiatriðum og borðhaldi er
lokið er stíginn dans. Sé fengin hljóm-
sveit til þess að leika fyrir dansi rekast
menn fljótt á svipaðan lágmarkstaxta
og gildir um aðra skemmtikrafta.
Tveggja manna „árshátíðarband" er
hægt að fá á 40 - 50 þúsund krónur og
samsvarandi hærra þegar um stærri
sveitir er að ræða. Séu þekktar og vin-
sælar hljómsveitir fer kostnaðurinn
fljótlega yfir 100 þúsund krónur. Að
auki getur þurft að leigja sérstakt
hljóðkerfi og mann tíl að stjórna því og
þá kemur sá kostnaður að auki. Vilji
menn virkilega láta til sín taka á dans-
gólfinu og fá aðeins það besta er fullyrt
að dýrast myndi að ráða Stuðmenn til
að leika fyrir dansi. Þeir taka slík verk-
efni stöku sinnum að sér og léku t.d. á
skóladansleik í Verslunarskóla Islands
á dögunum. Það mun kosta í kringum
hálfa milljón að njóta krafta þeirra eina
kvöldstund.
Þó að hér séu ýmsar tölur hafðar á
loftí þá er enginn sérstakur taxti sem
gildir í viðskiptum af þessu tagi. Það er
samið um hvert tilvik fyrir sig og ótal
mörg atriði sem hafa áhrif á endanlega
niðurstöðu. Þótt þær tölur, sem hér eru
nefndar, séu yfirleitt þær hæstu eru líka
til lægstu þrep í þessum töxtum eins og
öðrum. Lægstu tölur sem rannsókn
okkar leiddi í Ijós voru að fyrir 8.000
krónur væri hægt að fá lítt þekktan tón-
55