Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 45
ATVINNUMÁL
Það er því erfiðara íyrir sljórnendur
sem komnir eru á þennan aldur að fá
störf. Markhópur þeirra starfa, sem þeir
sækja í, er minni og þeir með of mikla
reynslu til að gerast undirmenn. Að
sama skapi er auðveldara fyrir þá, sem
hafa unnið við almenn störf, að fá starf.
Eg held t.d. að iðnaðarmenn eigi síður í
vandraeðum.”
TÖLVUKUNNÁTTA NAUÐSYNLEG
Hún segist hafa ráðlagt þessum
mönnum endurmenntun og bent þeim á
að mörg þeirra námskeiða, sem í boði
eru, séu nýtanleg. „Ef þeir eru t.d. ekki
vanir að vinna með tölvur vil ég endilega
að þeir fari á slík námskeið því að í dag
eru jú öll fyrirtæki tölvuvædd, meira að
segja verslanir. Það sama gildir um kon-
ur því á þessum aldri eru þær yfirleitt
síður vanar tölvum en karlar á sama
aldri. Konum um og yfir fimmtugt geng-
ur þó betur að fá störf en körlum þvi
kvennastörfin eru fleiri, t.d. afgreiðsla í
sérverslunum eða skrifstofustörf þar
sem konur eru í meirihluta.”
Almennt sagðist Guðný reyna að nýta
eitthvað í fenginni reynslu hvers og eins
við val á starfi og þá menntun sem við-
komandi hefur. Hún segir að nú sé mikil
eftirspurn eftir fólki á vinnumarkaðnum
en að framboðið hafi að sama skapi auk-
ist. Komin er hreyfing á vinnumarkað-
inn, fólk í störfum er tilbúið að breyta til
og margir eru farnir að skima í kringum
sig. an
Reynir Þorgnmsson hja Fynrtaekjasölunni í Suðurveri: „Starfsreynsla virðist því
miður ekki skipta neinu mali lengur. Það er einblínt á aldurinn og kappkostað að
fá unga, reynslulausa menn - í stað samviskusamra, miðaldra manna.”
Reynir Þorgrímsson hjá Fyrirtækjasölunni í Sudurveri:
SNERPU ER RUGLAÐ SAMAN VIÐ REYNSLU
Panelplötur
Hvítar og
Sérpöntun
sérlita.
Urval fylgihluta!
Teinar, bæklingahólf,
rammar, og framhengi
fyrir herðatré í miklu úrvali.
®?Ofnasmiöjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
eynir Þorgrímsson rekur Fyrir-
tækjasöluna í Suðurveri. Að hans
sögn er mikið um að þangað
komi miklir hæfileikamenn á mörgum
sviðum. Þeir eru kannski komnir með
grátt í vanga og fá þ.a.l. ekki vinnu. Stund-
um kemur einn á viku og stundum einn
á dag.
„Þeir eru venjulega mjög sárir og
reiðir þegar þeir koma til mín og skilja
þetta ekki. Stundum er komin hálfgerð
uppgjöf í þá og þeir jafnvel dálítið brotn-
ir. Þeim finnst óskiljanlegt að þjóðfélagið
skuli ekki lengur hafa þörf fyrir reynslu
þeirra, þekkingu og hæfileika. Ég er
mjög sammála þeim. Ég skil ekki þenn-
an hugsunarhátt eða hvað það er sem
býr að baki,” segir Reynir.
MIKILL MISSKILNINGUR
„Þjóðfélagið okkar er nú þannig að
við virðum ekki reynslu og þekkingu
heldur einhver önnurgildi. Lítil þjóð eins
og okkar heíur þó ekki efni á því að kasta
slíkum verðmætum á glæ. Starfsreynsla
virðist ekki skipta neinu máli. Það er ein-
blínt á aldurinn og kappkostað að fá
unga, reynslulausa menn í stað sam-
viskusamra, miðaldra manna.
Ég held að þetta sé byggt á miklum
misskilningi. Menn eru e.t.v. að horfa til
lengri tíma í sambandi við eftirlaun, lífeyr-
ismál og þess háttar og halda að eldri
menn verði frekar sjúkir og séu meira frá
vinnu. Þessir menn eru aftur á móti alla
daga í vinnu, hvort sem þeir eru veikir
eða hraustir, miklu samviskusamari og
vinnst oft miklu betur en yngri mönnum.
Þeir eru e.t.v. ekki með sömu snerpuna
en menn rugla snerpu stundum saman
við reynslu. Oftar en ekki þarf ekki
snerpu.
,Ég hef fengið menn úr öllum geirum
þjóðfélagsins svo það virðist einu gilda
hvað þeir hafa verið að gera áður. Það er
líka algengt að menn séu að skipta um
starf, t.d. sjómenn sem vilja koma í land
eða utanbæjarmenn sem vilja flytja í bæ-
inn. Eina skýringin, sem þeir fá, er þögn-
in. Þeir sækja um vinnu og fá aldrei svar.
I flestum tilfellum tekst mér að finna
eitthvað fyrir þá. Ég reyni að finna fyrir-
tæki við hæfi en þau ganga auðvitað eftir
dugnaði hvers og eins og stjórnun-
arhæfileikum. Sumir eru góðir stjórnend-
ur og aðrir góðir fylgjendur. Yfirleitt
gengur þessum mönnum þó vel því þeir
berjast til þrautar.” 33
45