Frjáls verslun - 01.07.1999, Síða 16
Hallur Magnússon, yfirmaður gœða- og markaðsmála hjá Ibúða-
lánasjóði. Fv-mynd: Geir Olafsson
40 ára og því nauðsynlegt að
undirbúa íbúðakaupin vel. I
hinni breyttu leið fer ráðgjöfin
fram áður en fasteignar er leit-
að í stað þess að ráðgjöf fari
fram eftir að kauptilboð er
gert. Því er talið að fjármála-
ráðgjöfin verði markvissari og
verði raunverulegur grunnur
ákvörðunar um íbúðakaup, en
ekki formsatriði sem þarf að
uppfylla til að standast
greiðslumat vegna kauptil-
boðs sem þegar hefur verið
gert.
Breytt leið að eigin húsnæði
reytt leið að eigin
húsnæði er yfirskrift
breytinga á ferli um-
sókna íbúðalána Ibúðalána-
sjóðs sem tók gildi 20. ágúst.
Hin breytta leið felst fyrst og
fremst í því að nú hefst kaup-
ferillinn með greiðslumati í
banka þannig að fólk í íbúða-
kaupahugleiðingum hefur
strax í upphafi skýra vísbend-
ingu um það hversu dýra íbúð
mögulegt er að kaupa. Einnig
hver möguleg hámarks-
greiðslubyrði af lánum vegna
íbúðakaupanna er.
„Með þessum breytingum
er úr sögunni sú spenna sem
myndaðist við afgreiðslu
greiðslumats í fyrra kerfi þar
sem kauptilboð haíði þegar
verið gert þegar greiðslumat
var unnið. Þrátt fyrir að fyrra
kerfi gerði ráð fyrir því að
kaupferillinn hefðist með þvi
að kaupendur gerðu bráða-
birgðagreiðslumat þá var
raunin sú að allt of margir
slepptu því mikilvæga skrefi
og höiðu því ekki ígrundað
hver raunveruleg kaupgeta
þeirra var þegar gengið var til
íbúðakaupa. Þvi voru í mörg-
um tilfellum gerð kauptilboð
sem byggðust á óraunhæfum
hugmynðum kaupenda um
eigin greiðslugetu. I greiðslu-
mati kom þá i ljós að kaupend-
ur höfðu ekki bolmagn til
íbúðakaupanna, íbúðalán
fengust ekki afgreidd og kaup-
in gengu því til baka,“
Þannig lýsir Hallur Magn-
ússon, yfirmaður gæða- og
markaðsmála hjá Ibúðalána-
sjóði, þeim breytingum sem
sjóðurinn hefur hrint í fram-
kvæmd.
Fjárhagsleg ráðgjöf tengd
greiðslumati
I tengslum við greiðslumat er
lögð rík áhersla á íjárhagslega
ráðgjöf þannig að kaupendur
séu meðvitaðir um þær Ijár-
hagslegu skuldbindingar sem
fylgja íbúðakaupum og hvaða
áhrif þessar skuldbindingar
hafa. Hafa ber í huga að um er
að ræða fjárfestingu til allt að
Ekki eru gerðar grundvallar-
breytingar á greiðslumati að
öðru leyti en því að nú er
greiðslumat ekki eignatengt,
heldur sýnir niðurstaða
greiðslumatsins hámarksverð
íbúðar sem umsækjandi hefur
bolmagn til að kaupa. Sam-
hliða kemur fram hver er talin
geta verið hámarks greiðslu-
byrði af íbúðalánum.
Skjalfest niðurstaða
greiðslumats
Þegar greiðslumat hefur
verið unnið í banka eða spari-
sjóði fær væntanlegur íbúða-
kaupandi í hendur skjal þar
sem niðurstaða greiðslumats
er staðfest. Skjalið er undirrit-
að af starfsmanni banka eða
sparisjóðs og umsækjendum.
Með undirskriftinni er stað-
fest að greiðslumatið sé byggt
á tilskyldum forsendum og að
fjármálaráðgjöf hafi farið fram
samhliða greiðslumatinu.
A skjalinu kemur fram há-
marks kaupverð íbúðar og
mánaðarleg hámarksgreiðslu-
■■■■■■■ FRÉTTIR
geta umsækjandans miðað við
ákveðið lágmarksfjárframlag
kaupandans.
Skjal þetta mun síðan fylgja
umsókn um íbúðalán til Ibúða-
lánasjóðs sem einungis af-
greiðir íbúðalán ef kauptilboð
er innan þeirra flárhagslegu
marka sem fram koma í
greiðslumatinu.
Greiðslumat i banka
- nauðsynleg fylgigögn
En hver eru þau fylgigögn
sem nauðsynleg eru til að fá
greiðslumat?
í fyrsta lagi er um að ræða
aírit af síðustu skattaskýrslu,
staðfest af skattayfirvöldum
eða löggiltum enðurskoð-
anda. Þá skal fylgja afrit af
launaseðlum síðustu þriggja
mánaða ásamt staðfestingu á
föstumbótum. Afrit af síðustu
greiðslukvittunum allra lána
sem umsækjandi greiðir af
skal fylgja og einnig staðfest
lánsloforð annarra aðila en
Ibúðalánasjóðs, ef gert er ráð
fyrir að Ijármagna íbúðakaup-
in með slíkum lánum.
Gögn um eigið fé þurfa að
liggja fyrir. Um er að ræða
upplýsingar um áætlað sölu-
verð íbúðar í eigu umsækj-
anda, yfirlit frá ijármálafyrir-
tæki um spariijáreign umsækj-
anda, upplýsingar um áætlað
söluverðmæti verðbréfa sem
skráð eru á verðbréfaþingi
eða í kauphöll, staðfesting lög-
gilts bifreiðasala á söluverði
bifreiðar sem nota á til ijár-
mögnunar við íbúðarkaup.
Ef skyldmenni eða aðrir
aðilar hyggjast veita umsækj-
enda styrk eða lán skal skrif-
leg yfirlýsing um slíkt liggja
fyrir. 33
„Elegant“ hádegisverður
Fundir, móttökur
og veisluþjónusta.
Sími: 551 0100
Fax: 551 0035
Jómfrúin
v smurbrauðsveitingahús • Lækjargata 4
Jakob Jakobsson smprrebrpdsjomfru
alh,
lga
ATH!
Leigjum út salinn fyrir fundi og
einkasamkvæmi eftir kl. 18.00.
16