Frjáls verslun - 01.07.1999, Qupperneq 18
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja.
Bjarni Armannsson, forstjóri FBA, á aðal-
fundi bankans sl. vetur. Þá óraði fáa fyrir því
að slíkur farsi yrði um bankann síðar á árinu
og komið hefur á daginn. FBA skilaði 974
milljóna króna hagnaði fyrir skatta fyrstu sex
mánuði ársins.
J
ítarleg frásögn afFBA-málinu og því sem þargeröist á bak viö tjöldin. Reiöi
aödragandi sölunnar til Orcunnar S.A. sögö í
rcan S.A., félag íjórmenninganna, Jóns Ólafssonar, Eyj-
ólfs Sveinssonar, Jóns Asgeirs Jóhannessonar og Þor-
steins Más Baldvinssonar, sem keypti hlut Scandinavian
Holding í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, FBA, og á núna um
30%, í bankanum hefur manna á milli verið nefnd Háhyrningurinn,
enda kvað Orca á latnesku merkja háhyrningur. Háhyrningur er á
margan hátt skemmtilegt nafn — ekki síst þegar blokkirnar tvær
í viðskiptalífinu eru nefndar Kolkrabbi og Smokkfiskur. Darraða-
dansinn í kjölfar kaupa Orcunnar S.A og heiftarleg reiði forsætis-
ráðherra, Davíðs Oddssonar, í garð Kaupþings og sparisjóðanna
hefúr hins vegar orðið til þess að ýmsir nefna Orcuna núna
Marglyttuna. Marglytta er að vísu gegnsæ, nokkuð sem Orcan
S.A var ekki þegar hún kom fram á sjónarsviðið, en marglytta
brennir ef komið er við hana. Enda velta ýmsir því núna fýrir sér
hvort sparisjóðirnir og Kaupþing hafi brennt sig á að selja
Orcunni SA hlut sinn í FBA því forsætisráðherra kann að hafa
skaðað hinn ágæta og trausta orðstír Kaupþings með óvægnum
yfirlýsingum í garð fyrirstækisins. Reiði Davíðs er mikil og hann
hefúr tekið málið í sínar hendur. Hann ræður
ferðinni núna þótt sala bankans heyri að form-
inu til undir Finn Ingólfsson viðskiptaráðherra
sem er fagráðherra í bankamálum. Og flestir
eru á því að á bak við tjöldin sé tilboð á teikni-
borðinu í 51% hlut ríkisins í bankanum og að hann verði seldur í
einkasölu. Það tilboð sé bomban sem falli í málinu á næstunni.
Með öðrum orðum; Davíð hefur boðið upp í dans og það eru ör-
ugglega einhverjir íjárfestar sem vilja dansa.
IVleö stærstu hlutabréfaviðskiptum Varla hefur nokkurt mál
fengið eins mikla umijöllun í langan tíma og kaup Orcunnar SA
á hlutnum í FBA I fljótu bragði virðist sem um tiltölulega saklaust
mál sé að ræða; eigandi hlutabréfa í bankanum selur bréf sín! Og
hvað með það? Má hann ekki selja hverjum sem er á hvaða verði
sem er án þess að öðrum komi það við? Að sjálfsögðu!! Varla er
hægt að gera athugasemdir við það. Að þessari sölu, sem felur í
sér ein stærstu einstöku hlutabréfaviðskipti á Islandi, eða upp á
rúma 5 milljarða króna, er þó talsverður aðdragandi. Stærstu
hlutabréfaviðskipti á íslandi urðu í fyrrasumar þegar Hagkaups-
fjöldskyldan, með Sigurð Gísla Pálmason í fararbroddi, seldi versl-
anir Hagkaups og Nýkaups. FBA og Kaupþing stóðu saman að
þeim viðskiptum ásamt þeim Bónusfeðgum og úr varð samsteyp-
an Baugur sem rekur núna m.a. Bónus, Hag-
kaup, Nýkaup og 10-11. Bónusferðgarnir, Jó-
hannes Jónsson og sonur hans, Jón Asgeir, for-
stjóri Baugs, eiga rúman ljórðung í Baugi og
eru helstu eigendur fyrirtækisins, svonefndir
TEXTI: Jón G. Hauksson
NIYNDIR: Geir Ólafsson
18