Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 19
Jón Ólafsson í Skífunni. Eyjólfur Sveinsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
fjölmiðlunar. Baugs.
ráðandi eigendur. Allir þessir aðilar koma við sögu í FBA-málinu,
, sölu Scandinavian Holding, dótturfélags sparisjóðanna í Lúxem-
borg, á hlut sínum i FBA.
Viss þáttaskil urðu í aðdraganda málsins er þeir Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri Spron og stjórnarformaður Kaupþings,
og Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Kaupþings, fund-
Davíös. Leikfléttan útskýrö og
hnotskurn.
uðu snemma á sl. vori með forráðamönnum viðskiptabankanna
þriggja þar sem rætt var um að sparisjóðirnir og viðskiptabank-
arnir eignuðust FBA sameiginlega — myndu kaupa 51% hlut rík-
isins saman. Fullyrt er að viðskiptabankarnir hafi verið hrifnir af
hugmyndinni og hún hafi verið komin í gerjun. En þegar til kast-
anna kom reyndist ekki bakland fyrir henni innan sparisjóðanna,
sérstaklega innan Kaupþings — enda gekk hún ekki út á meiri-
hlutaeign sparisjóðanna í FBA, nokkuð sem þeir hafa verið að fal-
ast eftir, bæði leynt og ljóst. Fullyrt er að þarna hafi sparisjóðirnir
orðið úrkula vonar um að þeir næðu að eignast meirihlutann í
FBA með viðræðum við ríkið; markmið sem þeir hafa stefnt að í
um tvö ár — eða frá því FBA var settur á laggirnar. Áhugi þeirra
hefur gengið út á að ná yfirhöndinni í FBA og sameina hann Kaui>
þingi. Við það næðist fram mikil hagræðing. Benda má á að þeir
Bjarni Ármannsson, forstjóri FBA, Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, og Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON,
voru um árabil afar sterkt þríeyki þegar þeir unnur allir hjá Kaup-
þingi og voru þar í framlínunni undir stjórn Guðmundar. Nú eru
hins vegar sagðir miklir stirðleikar á milli Bjarna og þeirra Sigurð-
ar og Guðmundar. „Það andar köldu á milli hæða við Ármúlann,"
eins og það er orðað!
Fundurinn í Lúxemborg í ljósi niðurstöðunnar úr viðræðunum
við viðskiptabankana sl. vor hélt dótturfélag Kaupþings og spaii-
sjóðanna, Scandinavian Holding í Lúxemborg, fund útí í Lúxem-
borg í endaðan júní þar sem rætt var um hvað gera skyldi. Mætt-
ir voru til leiks helstu forráðamenn Kaupþings og sparisjóðanna.
Á þessum fundi var ákveðið að kanna hugsanlega sölu á hlutnum
í FBA þar sem menn töldu orðið fullreynt að ríkið gæfi sparisjóð-
unum færi á að ná meirihlutanum í FBA í viðræðum þar um. Og
fyrir sparisjóðina var þetta orðið talsvert dæmi. Þeir voru búnir að
leggja mikið fé í FBA og kaupa 26,5% hlutinn á meðalgenginu um
1,9, eða á rúma 3,5 milljarða — en nafnverð alls hlutafjár í FBA er
um 6,8 milljarðar króna. I júnílok var gengi FBA-bréfa komið upp
í 2,73 og forráðamenn sparisjóðanna spurðu sig að því hvort bréf-
in væru ekki orðin svo dýr að þeir væru varla í stakk búnir til að
kaupa alla viðbótina í FBA, 51%, hvort sem hún byðist eða ekki —
enda þyrftu þeir þá að leggja minnst 9 til 10 milljarða á borðið. Og
það fé yrði ekki gripið upp af götunni. Kaupþingi var falið að kanna
hugsanlega sölu á hlutnum í Scandinavian Holding.
Fjármálaeflirlitið En fleira var í gangi. í janúar sl. hóf Fjármála-
eftírlitið að gera athugasemdir við túlkun endurskoðenda spari-
sjóðanna á áhættuflokkun lána sparisjóðanna tíl dótturfyrirtækis
þeirra í Lúxemborg, Scandinavian Holding, vegna hlutarins í FBA.
Til útskýringar þá eru lán til almennra fyrirtækja flokkuð sem 1,0
— eða 100% áhætta — lán tíl ríkisins eru flokkuð sem 0,1, til sveit-
arfélaga 0,2 og til ljármálastofnanna 0,5. Túlkun endurskoðenda
sparisjóðanna var að Scandinavian Holding væri ijármálafyrirtæki
— enda dótturfélag þeirra, og aðaleign þess bréf í fjármálafyrir-
tækinu FBA. I júní hafði Fjármálaeftírlitið hins vegar komist að
þeirri niðurstöðu að þessi lán ættí að setja í áhættuflokkinn 1,0 —
eða 100% áhættu — en ekki 0,5 flokkinn. Því hefur verið haldið
fram að þessi niðurstaða Fjármálaeftírlitsins hafi skert svo CAD-
Marglyttan
Ýmsir nefna Orcuna S.A. núna Marglyttuna. Marglytta er að vísu gegnsæ, nokkuð sem Orcan var ekki þegar hún kom fram á
sjónarsviðið — en marglytta brennir sé komið við hana. Eftir óvægnar yfirlýsingar forsætisráðherra í garð Kaupþings spyrja
menn sig núna að því hvort sparisjóðirnir hafi brennt sig á viðskiptunum við Orcuna.
19