Frjáls verslun - 01.07.1999, Blaðsíða 25
„Mér fannst forsætisráðherra gera ofmikið mál úr þessari sölu hlutabréfanna í FBA. “ FV-myndir: Geir Ólafsson.
símafyrirtæki? Það er afar óheppilegt að
hafa takmarkanir á eignarhaldi og mjög
erfitt er að setja reglur sem myndu ná full-
komlega sínum tilgangi. Takmarkanir á
eignarhaldi geta rýrt eign þeirra sem þeg-
ar eiga í fyrirtækinu, auk þess sem ótal
leiðir eru til að fara í kringum slíkar reglur.
A Islandi gilda takmarkanir um eignar-
hald útlendinga á hlutabréfum í sjávarút-
vegsfyrirtækjum sem eiga kvóta. Islend-
ingar hafa keypt sjávarútvegsfyrirtæki í
Noregi, Færeyjum, Skotlandi og Þýska-
landi, þar gilda engar takmarkanir. Það er
hálf vandræðalegt að svara þegar aðilar frá
þessum löndum spyrjast fyrir um hlutabréf
í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Tak-
mörkun á eignarhaldi útlendinga í sjávar-
útvegsfyrirtækjum verður að linna. Það er
verðugt verkefni stjórnvalda að leggja fram
lagafrumvarp um þetta efni við fyrsta tæki-
færi.
Hlutabréfamarkaðurinn stækkar stöðugt
Það starfsumhverfi sem ríkisstjórnin og
ytri aðstæður hafa búið fyrirtækjum hefur
verið mjög hagstætt. Milliuppgjör flestra
Kaupréttur á hlutabréfum
Víða erlendis tíðkast að stjórnendum
og helstu starfsmönnum sé boðinn
kaupréttur á hlutabréfum, þetta er hluti
af þeirra kjörum.
fyrirtækja sýna mjög góðan hagnað og
sums staðar töluvert umfram það sem
spáð haföi verið. Þessari góðu afkomu fyr-
irtækja ber að fagna. Aukinn hagnaður
hvetur til aukins áhuga Jjárfesta á hluta-
bréfum. Hlutabréfamarkaðurinn stækkar
stöðugt og ný fyrirtæki hafa komið inn á
markaðinn. Loksins sjáum við hilla undir
að Jjölmiðlafyrirtæki komi á markaðinn. A
komandi vetri verður tilkynnt hvernig rík-
isstjórnin ætlar að standa að sölunni á
hlutabréfum í Landssímanum hf.. Það er
fyrirtæki með mörg tækifæri og ætti að
fara eins fljótt á markað og hægt er vegna
þeirra gjörbreyttu samkeppni sem það
stendur frammi fyrir.
Þeim Ijölgar stöðugt sem leggja hluta af
sparnaði sínum í kaup á hlulabréfum og
hafa aflað sér góðrar þekkingar á markaðn-
um. Það eru ekki lengur bara stofnanaijár-
festar sem hafa áhrif á þennan markað.
Hinn almenni Jjárfestir kemur til með að
hafa aukin áhrif og jafnframt veita þeim að-
ilum aðhald sem stýra fyrirtækjum sem
skráð eru á Verðbréfaþingi íslands.
Kaupréttur á hlutabréfum Víða erlendis
tíðkast að stjórnendum og helstu starfs-
mönnum sé boðinn kaupréttur á hlutabréf-
um, þetta er hluti af þeirra kjörum. Hér á
landi er þetta afar sjaldgæft. Sjálfsagt gera
fjárfestar sér grein fyrir því að fyrirtæki er
lítils megnugt án góðs stjórnanda og
starfsfólks. Það er því hagsmunamál hlut-
hafa að þessir aðilar standi sig sem best og
góð leið til þess er að bjóða þeim kauprétt
á hlutabréfum í viðkomandi fyrirtæki. Með
því verður það kappsmál starfsmanna að
auka verðgildi bréfanna til að bæta sín kjör
um leið og þeir auka hlut hluthafanna. Eg
spái því að við eigum eftir að sjá það færast
í vöxt að íslensk íyrirtæki Jjárfesti í eigin
hlutabréfum á markaðnum til að gefa
starfsfólki sínu kost á því að kaupa þessi
bréf. 33
25