Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 33

Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 33
FASTEIGNIR Félags fasteignasala í samtali við Fijálsa verslun. „Hitt er svo annað mál að ég tel að hér sé fyrst og fremst um ákveðna aðlögun eða verðleiðréttingu að ræða ffekar en beinlín- is verðhækkun. Verð á fasteignum var í sögulegu lágmarki og á tímabilinu frá 1990 til 1996 var hægt að sjá mörg dæmi um eignir sem lækkuðu að krónutölu. Hér var því um mikla raunlækkun að ræða og miklu meiri en fólk áttar sig á.“ Guðrún segir að vinsælustu eignirnar séu fasteignir á verðbilinu 6-15 milljónir sem má segja að séu 3ja herbergja íbúðir og upp í sérhæðir. Stærri fasteignir, þ.e. mjög dýr einbýlishús eru, að sögn Guðrún- ar, farnar að seljast hægar en fyrrihluta ársins. „Fyrir fáum árum þýddi ekkert að bjóða mjög stór einbýlishús til sölu. Þau tóku kipp í lok síðasta árs og hafa selst vel en það er eins og eitthvað sé að hægja á því.“ En telur Guðrún að verðið haldi áffam að hækka? „Það er klárt að fólksflutningar utan af landi munu halda áffam og halda uppi eft- irspurn. Þeirri þörf verður að mæta og einnig fjölgar fermetrum á hvern íbúa sem á sinn þátt í aukinni eftirspurn. Reykjavík hefur dregist aftur úr og fjölgunin náð meira tíl nágrannasveitarfélaganna eins og allir sjá i Kópavogi. Ég held að við verðum að gera ráð fyrir að þessi uppsveifla á fast- eignamarkaði haldist eitthvað áfram. Aukin lánafyrirgreiðsla á einnig ríkan þátt í þessari eftírspurn því að lengri láns- tími hefur gert fleirum kleift að eignast þak yfir höfuðið." Guðrún sagði að margir teldu að hægt væri að hækka hvaða húsnæði sem væri um 20% en í sumum tílvikum yrðu seljend- ur af slá af kröfum sínum. „Flestar eignir staldra stutt við. Fasteignakálfur Morgun- blaðsins, sem kemur út á þriðjudögum, er prentaður á fimmtudegi og er oft orðinn úreltur þegar hann kemur út því það er búið að selja meiripartinn af því sem þar er auglýst tíl sölu.“ Guðrún starfar hjá Húsakaupum og hefur tekið við embætti formanns í félag- inu af Jóni Guðmundssyni sem hafði gegnt því um árabil. SH Guðrún Arnadóttir, nýkjörinn formaður Fé- lags fasteignasala, telurað ekki sé um mikla raunhækkun húsnœðis að rœða heldur leið- réttingu eftir áralanga kyrrstöðu. eigin húsnæði Kynntu þér breyttan feril lánsumsókna ibúðalána íbúðalánasjóðs hjá bönkum, sparisjóóum, fasteignasötum eða á vefsíðu íbúðalánasjóðs, www.ibudalanasjodur eða www.greidslumat.is íbúðalánasjóður veitir húsnæðislán til: - Notaðra ibúða - íbúða f smíðum - Nýbygginga og viðbygginga einstaklinga - Nýbygginga byggingaraðita - Endurbóta og endurnýjunar Ibúðalánasjóður Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík Sími: 569 6900 - 800 6969 Fax: 569 6800 www.ibudalanasjodur.is 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.