Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 37
smiðju á Isafirði. Þar rak fyrirtækið til
skamms tíma tvær rækjuverksmiðjur en
annarri þeirra hefur verið lokað og tækin
seld. Hin er mjög öflug og hefur verið ijár-
fest mikið í tækjum og endurbótum á
henni.
Svanur vill landvinnsluna Svanur Guð-
mundsson, núverandi framkvæmdastjóri,
hefur látíð svo ummælt að helsta ráðið tíl
bjargar fyrirtækinu sé að draga úr sjófryst-
ingu og leggja aukna áherslu á land-
vinnslu. Iiður í þessari stefnu var salan á
Sléttanesinu. Verð á rækju hefur verið
fremur lágt undanfarið og erfiðlega gengið
að veiða hana að auki. Hinsvegar er rækju-
veiði í miklum uppgangi við Nýfundnaland
en þar á Básafell hlut í nýrri og stórri
rækjuverksmiðju ásamt Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur. Þessi hlutur, ásamt sildarkvóta
í eigu Básafells, er meðal þess sem er til
sölu.
Heimamenn hafa áhyggjur Það var auð-
heyrt á heimamönnum að þeir höfðu
nokkrar áhyggjur af framtíð fyrirtækisins
nú þegar stjórn þess er alfarið farin úr
þeirra höndum. Segja má að þeir telji tvo
kosti vera í stöðunni.
Annar þeirra er sá að standa við yfirlýs-
ingar um að efla fyrirtækið í núverandi
mynd og byggja upp öfluga landvinnslu.
Segja má að aukinn rækjukvótí, sem Bása-
fell eignaðist í skiptum fyrir Sléttanesið,
bendi tíl þess að slíkt sé einmitt ætlunin.
Heimildarmenn innan fyrirtækisins stað-
hæfa að landvinnslan á Flateyri og Suður-
eyri skili mjög góðum hagnaði um þessar
mundir og því einsýnt að efla hana.
Svartsýnismenn í hópi heimamanna
telja hinsvegar líklegt að nýir eigendur ætli
að liða fyrirtækið í sundur, selja allt sem
hægt sé að selja og hagnast þannig á þess-
um viðskiptum um hundruð milljóna.
Þessir svartsýnismenn fullyrða að búið sé
að semja við Einar Odd Kristjánsson og
Hinrik Kristjánsson á Flateyri um að kaupa
saltfiskvinnslu Básafells á Flateyri. Allri
vinnslu á Suðureyri verði einfaldlega hætt
og skipin Orri og Skutull seld með eða án
kvóta til hæstbjóðanda. Rækjukvótinn og
rækjuverksmiðjan á Isafirði verði seld hópi
heimamanna þar sem bræðurnir Halldór,
Eggert og Pétur Jónssynir fara fremstír í
flokki.
Frá því Básafell var stofnað árið 1992
hefur það verið sameinað fiölda smærri og
stærri fyrirtækja í sjávarútvegi á Vestfiörð-
um. Sameiningar hafa verulega sett svip
Gunnar og Einar Oddur Kristjánsson þekkjast vel því Gunnar hejiir setið t stjórn Básafetts síð-
astliðið ár og verið endurskoðandi fyrirtœkja á Flateyri árum saman.
sinn á sjávarútveg undanfarin ár og fiöl-
mörg fyrirtæki runnið saman en slíkar
blokkir hafa víðast hvar annars staðar
stækkað og þeim vaxið fiskur um hrygg.
Ef það verður ofan á að sundra Básafelli á
ný væri því verið að ganga gegn þeirri þró-
un sem orðið hefur annars staðar.
I þessu sambandi mætti benda á tíl
hvaða ráða hefur verið gripið til að hag-
ræða málum á Húsavík þar sem Fiskiðju-
samlagið hefur verið i kröggum. Skip og
dótturfyrirtæki hafa verið seld og nýtt dótt-
urfyrirtæki stofnað um rækjuvinnsluna að
hluta sem FH á þó stóran hlut í.
Þeir sem telja ólíklegt að af slíkri upp-
stokkun verði hjá Básafelli benda meðal
annars á að þótt Sléttanesið hafi verið selt
sé um 3.000 þorskígilda kvótí eftír í eigu
fyrirtækisins sem önnur skip getí auðveld-
lega veitt og nýtist auk þess í viðskiptum
við smærri útgerðir sem Básafell vill kaupa
hráefni af.
Þótt rækjutogarinn Skutull sé ef til vill
auðveld söluvara þá er ekki eins einfalt og
að selja Sléttanesið því Básafell er með
Skutul á kaupleigu frá eignarhaldsfyrir-
tækinu Kistu sem er í eigu Básafells og
fiármögnunarfyrirtækja.
Uppstokkun víðar á Vestfjörðum Básafell
er ekki eina sjávarútvegsfyrirtækið á Vest-
fiörðum þar sem aðilar utan fiórðungsins
eru að hasla sér völl. Gunnvör, útgerðar-
fyrirtæki sem hefur gert út frystitogarann
Júlíus Geirmundsson og á íshúsfélag ís-
firðinga, er á barmi mikilla breytínga. í
sumar keypti íslandsbanki 2/3 hlutafiár í
fyrirtækinu en um þessar mundir er verið
að sameina fyrirtækið Hraðfrystihúsinu í
Hnífsdal sem áður hafði runnið saman við
Frosta í Súðavík. íslandsbanki keypti
einnig umtalsverðan hlut í Hraðfrystíhús-
inu og má því segja að bankinn haldi um
stjórnartaumana í sameiningarferlinu.
Með kaupunum á hlutafénu í Gunnvöru
var verið að borga út Þórð Júlíussson og af-
Hvaða Guðmundur?
En hver er þessi Guðmundur. Því er til að svara að hann er tæplega fertugur
athafnamaður, fæddur árið 1960. Hann er sonur Kristjáns Guðmundssonar,
útgerðarmanns og fiskverkanda í Rifi á Snæfellsnesi. Guðmundur lærði
útgerðartækni í Tækniskólanum og lauk því námi 1983. Síðan hélt hann vestur um
haf til Bandaríkjanna og lærði viðskiptafræði í Salem í Massachusetts. Hann
útskrifaðist 1986 og fór að starfa hjá fyrirtæki föður síns eftir heimkomuna.
Hver á að leggja fé í atvinnulífið?
Umtalsvert fjármagn hefur undanfarin ár losnað úr sjávarútvegi á Vestfjörðum og
í flestum tilvikum runnið til aðila sem flestir eru heimamenn, búsettir vestra.
Enginn þeirra sem hér eru nefndir hefur enn sem komið er séð ástæðu til þess að
fjárfesta í vestfirskum sjávarútvegi. Af því mætti draga þá ályktun að fjárfestum í
röðum heimamanna þyki það ekki vænlegur kostur að styrkja atvinnulífið á
heimavelli.
37