Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 40

Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 40
Eggert Magnússon ásamt eiginkonu sinni, Guðlaugu Nönnu Óla/sdóttur, í vinnslusalnum. Frón hefur um 35% markaðshlutdeild á kexmark- aðnum. Frón tók áhættu sem gekk upp „Töldum áhœttuna vegna nýju umbúðanna ásættanlega. Dæmið hefurgengið upp ogsalan hefur aukist verulega í kjölfarið, “ segir Eggert Magnússon, framkvæmdastjóri Frónar. exverksmiðjan Frón hefur geng- ist undir miklar skipulagsbreyt- ingar að undanförnu og í fram- haldi af þeim voru umbúðir fyrir nokkrar tegundir af kexi hannaðar að nýju. Nú er súkkulaði Marie, Cafe Noir, Petit Beurre, súkkulaði Pólo, Kremkex og svo nýja súkkulaðikexið, Smellur, í fallegum nýjum umbúðum. Auglýsingastofan Gott fólk hannaði nýju umbúðirnar, en hún sér um auglýsingar iyrir Frón. - En hvers vegna að kúvenda umbúð- unum, var ekki allt í lagi með þær gömlu sem allir þekktu? „Við vorum búin að vera lengi með sömu umbúðir og það er ákveðin áhætta að skipta um. En við töldum þá áhættu vera ásættanlega og í kjölfar breytinganna fórum við í að auglýsa nýtt útlit. Þetta hef- ur gengið mjög vel og salan aukist veru- lega í kjölfarið,“ segir Eggert Magnússon, framkvæmdastjóri kexverksmiðjunnar Frónar. Kremkexið í bakka „Við lögðum mikla vinnu í þessar útlitsbreytingar ásamt hug- myndasmiðum Góðs fólks og breyttum reyndar ekki bara útlitinu heldur létum t.d. kremkexið í bakka til að koma í veg fyrir að það brotnaði í meðförum. Ymsar aðrar breytingar hafa verið gerðar og ein þeirra er hönnun kasanna sem kexið er ílutt í og stillt er upp í sumum stórmörkuðunum. Sælgæti Kexið verður sífellt fallegra og þynnra og meira í ætt við sælgæti. Aukið úrval Þeir sem komnir eru yfir þrítugt muna sjálfsagt eftir miðdegiskaffi eða kvöldkaffi þar sem boðið var upp á mjólkurkex, kremkex og mjólk. Núna framleiðir Frón um 40 tegundir af kexi í harðri samkeppni við Kexsmiðjuna sem og erlenda framleiðendur. Þessir kassar eru þannig að þeir staflast vel upp og auðvelt er að rífa þá upp og opna þá — og þar með er kassinn orðinn ígildi hillu, enda hægt að selja vöruna beint úr honum. Þetta er til mikilla þæginda fyrir starfsfólk stórmarkaða,“ segir Eggert og sýnir okkur muninn á gömlu og nýju um- búðunum, bæði á kexpökkunum og köss- unum. Það verður að viðurkennast að hann er talsverður og gömlu umbúðirnar að öllu leyti hógværari og sjást síður en hinar nýju. Ný kynslóð „Við stundum stífa markaðs- sókn og höfum með kynslóðaskiptingunni í fyrirtækinu fengið til liðs við okkur unga markaðsfræðinga með nýjar hugmyndir. En okkar samkeppnisaðili er innflutning- urinn og þar eru sóknarfærin mest. Sölu- menn okkar fara í verslanir og gæta þess að varan sé til og láta vita aí nýjungum. Og þótt fólk sé nokkuð íhaldssamt á kexið sem það borðar — og kaupi auðvitað mik- ið af erlendu kexi líka — hefur markaðs- 40 i

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.