Frjáls verslun - 01.07.1999, Síða 42
I
I
I
1
I
i
I
1
I
I
1
Daníel Árnason, framkvœmdastjóri Kexsmiðjunar á Akureyri — og varaþingmaður Framsóknarflokksins á Norðurlandi eystra - segir fyrir-
tækið dafna vonum framar og að hann sé sáttur við árangur þess.
Kexið frá Kexsmiðjunni er í áberandi umbúð-
um og hefur náð að festast í hugum fólks —
nokkuð sem forráðamenn fyrirtækisins
stefndu mjög markvisst að og fylgdu eftir með
útvarþsauglýsingum.
ferskan, íslenskan ffamleiðanda á markað-
inn, en annars er helsti keppinauturinn
auðvitað innflutt kex. Það er auðvitað erfið-
ara að byggja svona upp lfá grunni en að
kaupa til dæmis kexverksmiðju sem bygg-
ir á traustum grunni. Það útheimtir mikla
vinnu.“
Snúðarnir slá í gegn Daníel segir fólk
venjast ákveðnum vörumerkjum og gjarn-
an kaupa þau „svona af gömlum vana“ en
hins vegar sé íslensk vara oft á tíðum bet-
ur aðlöguð að íslenskum smekk. Það þurfi
aðeins að sann-
færa neytendur
og það geti tek-
ið tíma.
„Við höfum
verið með
stöðuga vöru-
þróun frá því að
við byrjuðum
að baka, og nú má
segja að framleiðslunni sé
skipt í þrennt; kex, snúða og
jólakökur. Okkur hefur verið
geysivel tekið og núna erum við að sjá ár-
angur þeirrar vinnu sem við höfum lagt í
fyrirtækið," segir Daníel. „Snúðarnir okk-
ar hafa hitt vel í mark og ef einhver ein
vörutegund getur flokkast undir að vera
sigurvegari hjá fyrirtækinu, þá eru það
snúðarnir. Hins vegar er kexið og smákök-
urnar okkar, Freistingarnar, sífellt að
sækja í sig veðrið og greinilegt að kaup-
endur kunna vel að meta þessar vörur okk-
ar.“
Nýstárlegar auglýsingar „Við vildum
fyrst og fremst fá fólk til að prófa nýja kex-
ið og kenna því að þekkja vörurnar í hillun-
um — enda er fólk fremur íhaldssamt á
kex,“ segir Armann Guðmundsson hjá
auglýsingastofunni Hugtökum. .Astæðan
fyrir því að við völdum útvarpið sem miðil
var sú að útvarp er gjarnan í gangi á heim-
ilum og vinnustöðum og því töldum við
mestar líkur á að auglýsingarnar kæmust
þar helst til skila. Og með því að hafa aug-
lýsingarnar svona líflegar, búa til litla leik-
þætti, fengjum við best viðbrögð. Það hef-
ur gengið eftir og þessar auglýsingar hafa
vakið athygli. Við erum mjög ánægðir með
árangurinn og ætlum að halda áfram á
þessari braut."
Mikil kexsala á sumrin „Við tókum
ákvörðun um það í vetur að leggja mikla
áherslu á útvarpið í sumar, enda sumarið
sterkur sölutími á kexi og mikil sala þá.
Þetta hefur skilað sér dável og salan aukist
verulega í kjölfarið. Til að ná fótfestu á
þessum markaði verða framleiðendur að
vera trúverðugir og geta staðið við sitt;
kaupendur vilja einfaldlega fá stöðluð gæði
og geta treyst því að fá það sem þeir panta.
Þetta höfum við getað gert ágætlega."
Daníel segir þá félaga mega vel við una
með svo ungt fyrirtæki og að markaðshlut-
deild Kexsmiðjunnar eigi eftir að aukast
verulega. „Við ætlum að halda ótrauðir
áfram að baka og þróa nýjar vörur til að
mæta þörfum íslensks neyslusamfélags.
Við erum búnir að stímpla okkur inn og
erum komnir tíl að vera,“ segir Daníel. [0
42
j