Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 56
é íaMjjk
Eigendur Kjarnafœðis á Akureyri, brœðurnir Hreinn og Eiður Gunnlaugssynir. Kjarnafœði framleiðir nœr 300 vöruflokka. „ Við viljum vera
vissir um að vörurnar okkargangi á markaðnum og viljum ekki falla í þá gryfju að eyða miklum þeningum í eitthvað sem gengur ekki uþþ. “
Kjarnakarlar
Brædurnir Eiöur og Hreinn Gunnlaugssynir
misstu vinnuna þegar Kaupfélag Svalbaröseyrar
lagöi upp laupana fyrir 15 árum. Nú hafa þeir
85 manns í vinnu!
igendur Kjarnafæðis á Akureyri,
bræðurnir Eiður og Hreinn
Gunnlaugssynir, hafa unnið sam-
an við slátrun og kjötvinnslu um árabil.
Þeir störfuðu lengi hjá Kaupfélagi Sval-
barðseyrar, en þegar fyrirtækið var lagt
niður lá beinast við að reyna fyrir sér sjálf-
ir á þeim markaði. Þeir stofnuðu Kjarna-
56
fæði með lítið fyrirtæki í huga — en hafa á
þeim fimmtán árum, sem fyrirtækið hefur
verið starfandi, horft á það vaxa hægt og
bítandi og verða að stórfyrirlæki á mat-
vælamarkaðnum.
„flðeins teygst úr lyrirtækinu" Eiður
segir að síðastliðin fimm ár hafi vinnsla
Kjarnafæðis verið á tveimur stöðum, á
Svalbarðseyri og á Akureyri. A Svalbarðs-
eyri fari öll framleiðslan fram og á Akur-
eyri sé pökkunar-, sölu- og dreifingarmið-
stöð. „Það hefur aðeins teygst úr fyrirtæk-
inu,“ segir Eiður þar sem hann situr á skrif-
stofu sinni á Akureyri. „I upphafi fram-
leiddum við einungis pizzur, en þá voru
þær nýjar og spennandi, hrásalat fylgdi fast
á eftir og síðan koll af kolli. Við jukum