Frjáls verslun - 01.07.1999, Síða 62
Stefán Svavarsson, lektor og löggiltur endurskoðandi, skrifar að þessu
sinni um það hvernig eigi að fylgjast með deildaskiþtum rekstri og
finna út hvar uþþsþretta hagnaðarins sé! FV-myndir: Geir Olafsson.
Arðsemi einstakra deilda í Bandaríkjum Norður-Ameríku gilda
svipaðar reglur en samkvæmt þeim ber þó að upplýsa um öll þrjú
atriðin ef einhverju einu af viðmiðunarmörkunum er náð. Að auki
er það krafa frá Verðbréfaeftirlitinu (SEC) þar í landi að nafngreina
skuli viðskiptavin í ársreikningi íyrirtækis ef hann er ábyrgur fyr-
ir meira en 10% af heildartekjum.
Reglur í þessa veru voru fyrst settar í Bandaríkjunum, enda er
þar i landi býsna algengt að eitt og sama íyrirtækið sé í marghátt-
uðum rekstri. Rekstrarreikningur slíks týrirtækis, sérstaklega
samstæðureikningur þess, væri því ekki eins gagnlegur og ella
fyrir lesendur reikningsskila ef sala fyrirtækisins samanstæði af
eðlisólíkum viðskiptum. Dæmi eru um að olíufyrirtæki eigi og
reki kvikmyndaver og stundi jafnífamt matvælaifamleiðslu. I árs-
reikningi sem sýndi aðeins heildartekjur væri engin leið að átta
sig á frammistöðu einstakra starfsþátta hjá fyrirtækinu nema
skipting í þá veru sem hér er gerð að umtalsefni birtist í reiknings-
skilum fyrirtækisins. Sú aðferð sem krafist er við greiningu
starfsþátta hjá stórum fyrirtækjum getur einnig komið að góðu
gagni hjá minni fyrirtækjum sem eru rekin í nokkrum deildum.
Lítum því nánar á hvernig að verki skal staðið.
Arðsemi fjárfestinga Fyrst þó þetta. Það mun hafa verið í byij-
un þessarar aldar að bandaríska fyrirtækið Dupont hóf að reikna
út arðsemi fjárfestinga (e. return on investment — ROI) til þess
að fylgjast með ffammistöðu einstakra starfsþátta í rekstri sínum.
í deildaskiptum rekstri fyrirtækisins þótti sjálfsagt mál að láta
frammistöðu deilda eða undirfyrirtækja ráða því hvar nýju fé var
komið fyrir eða hvort rekstri deildar var hætt ef óviðunandi árang-
ur var af rekstri hennar. I þessu sambandi þykir rétt að benda á að
nokkrum erfiðleikum getur verið bundið að finna eðlilegt verð í
viðskiptum milli deilda, svokallað millifærsluverð (e. transfer
price), en það viðfangsefni er utan við efni þessa greinarstúfs.
Uppspretta hagnaðar
Hvaöa deildgefur mest í aöra hönd? Hverniggeta stjórnendur reiknaö út arö-
semi einstakra deilda út frá þeim fjármunum sem þar eru bundnir — og fundiö
út hvaða starfsemi fyrirtækisins gefi í raun mest afsér?
amkvæmt ákvæðum laga um ársreikninga skal í árs-
reikningi veita upplýsingar um skiptingu rekstrartekna
eftir starfsþáttum ef þessir þættir hafa veruleg áhrif í
rekstri fyrirtækis. Þá segir í samsvarandi reglugerð að starfsþátt-
ur teljist hafa veruleg áhrif ef tekjur af starfsþætti nema a.m.k. 10%
af heildartekjum, eða hagnaður af starfsþætti nemur a.m.k. 10% af
heildarhagnaði fyrirtækis, eða eignir starfsþáttar nema a.m.k. 10%
af heildareignum fyrirtækis.
Nái fyrirtæki einhvetju af þessum þremur viðmiðunarmörkum
skal í ársreikningi veita upplýsingar um skiptingu rekstrartekna
eftir starfsþáttum; athyglisvert er að ekki er skylda að veita upp-
lýsingar um hina þættina þó að viðmiðunarmörkunum sé náð.
Þrátt fyrir að þessi fyrirmæli laga séu tiltöluleg skýr virðist mér að
einhver misbrestur sé á að eftir þeim sé farið.
R0l-kvarðinn Sú aðferð að fylgjast með arðsemi þess ijármagns
sem bundið er í hinum ýmsu deildum fyrirtækja, þ.e. ROI-kvarð-
inn, er enn notuð í stórum stíl, þó að ýmsar aðrar aðferðir hafi
komið til sögunnar. Þar má nefna afgangstekjustærðina (e. residu-
al interest method) þegar vextir eru reiknaðir af því ljármagni sem
bundið er í deildaskiptum rekstri, hvort sem þeir eru greiddir eða
ekki, í því skyni að athuga hvort reksturinn skilar meiri arði en
þeir vextir segja til um. Þá hefur á síðustu árum rutt sér til rúms
aðferð sem kenna má við útreikning á hagrænum virðisauka (e.
economic value added) en sú aðferð byggist á nánast sömu hugs-
un og afgangstekjustærðin, þ.e. að fylgjast með því, hvort rekstur
skili viðunandi arði af því fé sem bundið er í viðkomandi fyrirtæki.
En nóg um þessar aðferðir og snúum okkur að útreikningi á arð-
semi fjárfestinga.
62