Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2000, Side 18

Frjáls verslun - 01.02.2000, Side 18
Bjarni Armannsson, forstjóri FBA, er ekki aðeins með allra þekktustu mönnum í viðskiþtalífinu heldur í þjóðlífinu. Ahugi almennings á hlutabréfaviðskiþtum er orðinn svo mikill að á mannamót- um eru gengi hlutabréfa, fyrirtœki og stjórnendur fyrirtœkja helsta umræðuefnið. ar fjárfesti í skuldabréfum, með 5,5% ávöxtun á ári að jafnaði, en hinn í hlutabréfum, með 8% ávöxtun á ári að jafnaði. I þessu dæmi átti skuldabréfamaðurinn rúmlega 19 milljónir við starfs- lok en hlutabréfamaðurinn rúmlega 26 milljónir - og gat lifað á rentunni á eftirlaunaaldrinum og rúmlega það þvi höfuðstóllinn hélt áfram að vaxa. Agætt dæmi. Lán til hlutabréfakaupa Borið hefur á auknum lántökum fólks til kaupa á hlutabréfum; til að vera með í leiknum á hlutabréfa- markaðnum. Hugsunin á bak við það er að láta hlutabréfamark- aðinn tvö- til þrelalda eignina á tiltölulega skömmum tíma, Ld. þessu ári hækkaði úrvalsvísitala Verðbréfaþings um 48%. Það segir þó ekki nema hálfa söguna. Gengi hlutabréfa hækkaði mjög mismikið eftir fyrirtækjum og atvinnugrein- um. Til dæmis hækkaði gengi bréfa í fyrirtækjum í upplýsingatækni um 93% að jalhaði, um 73% í olíufélögun- um og um 66% í tjármálafyrirtækjum. Það er því engan veginn sama í hvaða atvinnugrein er fjárfest. Ný- lega komu tram upplýsingar um að tvær atvinnugreinar standi upp úr þegar rauntölur um afkomu að und- anförnu eru settar í samhengi við væntingar. Þessar greinar eru upp- lýsingatækni og fjármálafyrirtæki. Fyrirtæki í upplýsingatækni skiluðu 11% meiri hagnaði en gert hafði ver- ið ráð fyrir og fjármálafyrirtæki um 2% meiri hagnaði. Verðbréfahíngið hefur gert marga for- ríka Verðbréfaþingið og hlutabréfmarkaðurinn hefur gert marga forríka á undanförnum árum. Urvalsvísitalan var um 323 stig í byi'jun ársins ‘93. Hún er núna rúmum sjö árum síðar um 1.715 stig. Þetta er meira en fimmföldun! Sá, sem átti 1 milljón í byrjun ársins ‘93, á núna um 5 milljónir. Sá, sem átti 5 milljón- ir, á núna 25 milljónir. Sá, sem átti 1 milljarð á núna 5 milljarða. Svona væri áfram hægt að halda. En svo koma sveiflurnar inn- an tímabila - og það eru þær sem valda usla og óróa. Taki menn eftir því að um tveggja ára skeið á þessu sjö ára tímabili, eða frá vori '97 til hausts '99, stóð úrvalsvísitalan í stað og lækkaði raunar nokkuð innan þessa tímabils. Þetta minnir menn ræki- Um 49 þúsund íslendingar hlutabréfaeigendur Eigendum hlutabréfa hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Samkvæmt tölum frá ríkisskattstjóra voru 49 þúsund íslendingar eigendur að hlutabréfum árið 1999 borið saman við um 35 þúsund einstaklinga árið 1996. þremur árum - og greiða lánin síðan upp í einu lagi. Þar með væri viðkomandi kominn með hreina hlutabréfaeign sem hann léti ávaxta sig. Áhættan er hins vegar sú að ef hlutabréfaverðið lækkar mikið þá snýst draumurinn upp í andhverfu sina. Því er mikilvægt að hafa stóran hluta af hlutabréfúnum, sem tekin eru lán fyrir, í tiltölulega öruggum bréfum - ef svo má að orði kom- ast Lántökur til hlutabréfakaupa eru ekki séríslenskt fyrirbæri. Bankastjórar um allan heim hafa bent fólki á þessa áhættu og að íhuga frekar að spara og kaupa minni skammta í einu. Því má svo bæta við að nokkuð hefur verið í umræðunni að undanförnu að fólk taki hærri lán hjá íbúðalánasjóði en það í raun þurfi til að verða sér í leiðinni úti um fé til hlutabréfakaupa. Þá kvað það fær- ast í aukana að fólk á miðjum aldri minnki núna fyrr við sig í hús- næði og noti mismuninn til að Ijárfesta í hlutabréfúm. Gengi bréfa í mörgum fyrirtækjum á Verðbréfaþingi Islands hefur hækkað mikið. Frá 6. mars á síðasta ári til 6. mars á lega á að hlutabréf eru langtímafjárfesting! Svitadropar falla í hita gullæðisins undanfarnar vikur heíúr margur svitadropinn fallið. Islenski hlutabréfamarkaðurinn hef- ur á síðustu vikum gengið í gegnum meiri verðsveiílur á stutt- um tíma en áður hafa sést. Það tók á taugarnar hjá ijárfestum að sjá úrvalsvísitöluna fara nánast lóðrétt upp á fyrstu tveimur vikunum í febrúar og ná hæstu hæðum, 1.889 stigum, um miðj- an mánuðinn og falla síðan niður fyrir 1.700 stig. Þetta var rúm- lega 10% sveifla. Svitadroparnir stafa af þvi að allur hagnaðurinn sem fólk reiknaði sér í byijun febrúar var á nokkrum dögum fokinn út í veður og vind. Og hugsanlega höfðu einhveijir tekið sér lán á þessu tímabili og keypt bréf þegar úrvalsvísitalan var að ná hæstu hæðum. Þetta sýnir enn og aftur hve slæmar mikl- ar breytingar - sveiflur - eru. Fyrst kemur ofsagleði yfir snar- hækkandi gengi og síðan grípur um sig örvænting, jafnvel böl- 'f t i i i j ( 18

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.