Frjáls verslun - 01.02.2000, Síða 23
STJÓRNIVIflL
Röggsamur ráðherra
Verkefnin eru spennandi og
kreljandi því að starfsemin
gengur mikið út á framkvæmd-
ir auk þess sem byggðamál eru nýr
málaflokkur í ráðuneytinu. Ekki er
launungarmál að ég hef mikinn
áhuga á þeim málaflokki. Það vantar
fiölbreyttara atvinnulíf á landsbyggð-
inni,“ segir Valgerður Sverrisdóttir
en núna eru um sjötíu dagar síðan
hún tók óvænt við sem viðskipta- og
iðnaðarráðherra af Finni Ingólfssyni
sem settist í stól seðlabankastjóra.
- Sameining banka hefur verið mik-
ið í umræðunni. Hver er þín skoðun á
þeim málum?
„Eg hef látið í ljós þá skoðun að
hagræðing í bankakerfinu sé nauðsyn. Við þurfum að minnka
vaxtamun og draga úr kostnaði á íslenskum ijármagnsmarkaði.
Samanburður við erlenda banka er íslenskum bönkum enn að
flestu leyti óhagstæður þó að reyndar hafi mikið áunnist á síð-
ustu árum. Þessari hagræðingu er hægt að ná með sameiningu
banka. Henni væri þó að hluta hægt að ná fram með aðgerðum
innan hvers banka.
Sameining banka væri æskileg í því skyni að draga úr kostn-
aði í bankakerfinu en að sjálfsögðu verður einnig að gæta þess
að samkeppni minnki ekki um of á markaðnum," segir Valgerð-
ur Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Bankamálin ekki í forganyi Þegar gengið er á Valgerði um
sameiningu Landsbanka og íslandsbanka segist hún taka skýrt
fram að þó að þessi sameiningarkostur sé mest í umræðunni þá
hafi hvorki hún né íyrrverandi viðskiptaráðherra gefið það út
að þessi sameining sé til skoðunar umfram aðrar.
„Eg hef haldið fundi með forsvarsmönnum ýmissa Ijármála-
íyrirtækja á síðustu vikum til að átta mig betur á viðhorfum
markaðarins til hagræðingar. Ég hef í hyggju að leita leiða til að
ná fram hagræðingu í íslenskri fjármálaþjónustu," segir hún.
- Eru einhverjar þreifingar í gangi varðandi sameiningu eða
einkavæðingu, annað hvort innan bankakerfisins eða hins opin-
bera?
„Ekki af okkar hálfu, en á markaðnum geta ýmsar vangavelt-
ur verið í gangi. Af hálfu stjórnvalda hafa ekki verið lagðar lín-
ur í þeim efnum. Ég er ekki tilbúin til að tjá mig um frekari sölu
eða hugsanlega sameiningu. Þessi mál eru ekki efst á forgangs-
lista hjá mér núna.“
Valgerður Sverrisdóttir er fædd á Lómatjörn í Grýtubakka-
hreppi 23. mars 1950. Eiginmaður hennar er Arvid Kro loðdýra-
ráðunautur og eiga þau þrjár dætur. Valgerður hefur starfað sem
ritari og stundað kennslu auk þess að vera bóndi á Lómatjörn.
Hún var kosin á þing árið 1987 og tók við embætti sem iðnaðar-
og viðskiptaráðherra um síðustu ára-
mót. Hún hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum og var meðal annars for-
maður þingflokks Framsókn-
arflokksins frá 1995 til 1999. Það er
vel við hæfi að ræða hinn gríðarlega
hagvöxt sem íslendingar hafa notið á
undanförnum árum við nýjan við-
skiptaráðherra og fá hana til að spá
um þróunina í næstu framtíð.
„Ef ekki verður farið út í frekari
framkvæmdir, til dæmis á sviði stór-
iðju, þá gæti hagvöxtur farið mjög
minnkandi. Ég er hins vegar þeirrar
skoðunar að það gangi eftir með ál-
ver á Reyðarfirði og virkjun í Fljóts-
dal og þar með komi þær fram-
kvæmdir inn á mjög heppilegum
tíma þannig að hagvöxturinn haldist um það bil eins og hann
hefur verið.“
- Forveri þinn í embætti var mikill virkjunar- og álverssinni.
Hvaða afstöðu hefur þú í þeim málum?
,ÁI er léttmálmur sem talið er að eigi mikla framtíð fyrir sér
samkvæmt öllum spám. Ef við hugsum hnattrænt þá getum við
velt fyrir okkur hvar sé æskilegast að framleiða ál. Er það hér
eða í Suður-Afriku? Þar er sleppt út sjö sinnum meiri gróður-
húsalofttegundum við framleiðslu áls en hér og þvi má segja að
álframleiðsla á Islandi sé umhverfisvæn. Þar að auki erum við
heimsmeistarar í notkun á áli þannig að við hljótum að hafa það
líka í huga,“ svarar hún.
Fjarvinnsla og iðnaður „Hagkerfið bókstaflega kallar á fram-
kvæmdir. Álframleiðsla er líka stórkostlegt byggðamál, það
stærsta sem við höfum fjallað um til fjölda ára. Álver er hag-
kvæm framkvæmd. Sú gagnrýnisrödd hefur heyrst að það sé
verið að fara út í óarðbæra framkvæmd en auðvitað verður það
ekki gert. Ekki er búið að semja um orkuverð en miðað við það
sem menn gefa sér í þeim efnum þá er framkvæmdin arðbær
fyrir íslenskt samfélag."
- Finnst þér það vænleg framtíðarsýn fyrir ungt fólk á lands-
byggðinni að fara inn í álver og starfa þar alla ævi?
„I Noregi vinna Islendingar meðal annars í álverum Norsk
Hydro. Þetta fólk unir vel sínum hag í þessum hálaunastörfum
og það eru einmitt hálaunastörf sem við þurfum úti á lands-
byggðinni."
- Eru einhver sérstök verkefiii sem gætu aukið fiölbreytni í at-
vinnulífi úti á landi fyrir utan álver?
„Ég nefni fjarvinnslu og á sviði iðnaðar eru ýmsir möguleik-
ar. Ymis fyrirtæki kunna betur að meta það en áður að starfa á
landsbyggðinni því að starfskraftur er stöðugri og það er verð-
Um sjötíu dagar eru frá því aö Valgerður
Sverrisdóttir varð viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra. Hún brást við afmikilli rögg-
semi er viðskipti starfsmanna ríkisbank-
anna með hlutabréfí óskráðum félögum
urðu Ijós og boðaði forráðamenn bank-
anna umsvifalaust á fund. Valgerður er
hér í viðtali um sameiningu banka, stór-
iðju, evruna og ráðningu stjórnmála-
manna í embættisstörfl
EfUr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson
23