Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2000, Side 61

Frjáls verslun - 01.02.2000, Side 61
Áwap síðunni oWs.is er aðlinna3"3 dagskrá menningarársins en þaí er enn eitt iramlag Oiis tii menningarársins. Thomas Möller, framkvœmdastóri markaðssviðs Olís. Málverkasýningar verða á bensínstöðvum Olís á árinu. Menning er markaðslæki Hönnun skiptir máli - hönnun er menning og hönnun er mark- aðstæki," segir Thomas Möller, framkvæmdastjóri markaðssviðs Olís. Olís er einn af máttarstólpum menningarborgarinnar en áhugi fyrir- tækisins á menningarmálum er ekki nýr af nálinni. Thomas Möller, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs, segir Olís hafa rutt brautina þegar árið 1992 með verkefninu „Græðum landið“, svo sem frægt varð, en síðar mótað ákveðna stefnu varðandi landrækt og mannrækt. „Við gripum fegins hendi tækifærið sem gafst til að verða máttarstólpi menningarborgarinnar en fyrirtæki um allan heim eru í auknum mæli að tengjast menningu og gera sér betur grein fyrir þeirri þjóðfélagslegu ábyrgð sem þau bera: Að ekki sé nóg að gera eigendur og viðskiptavini ánægða með góðri veltu og sölu á vörum og þjónustu, heldur þurfi að sjá til þess að þjóðfélagið njóti góðs af á víðari grunni,“ segir Thomas. „Menning er mjög stórt hugtak en ekki flókið. Menning snýst einfaldlega um að gera hlutina vel og vanda sig, eins og Vigdís Finnbogadóttir komst að orði eitt sinn, og það er ná- kvæmlega það sem við erum að gera á öllum sviðum fyrir- tækisins." Olís hefur lagt mesta áherslu á hönnun mannvirkja og hefur náð því marki að endurbyggja allar bensín- stöðvar sínar á Reykjanessvæðinu með nýju og sérstöku útliti sem Thomas segir vera alíslenskt. „Við reynum að skapa okkur sérstöðu með útliti og sérstakri hönnun, eins og sést á bensínstöðvunum þar sem skyggnin yfir dælurnar svífa eins og flugvélavængir. Við rákum svo enda- punktinn á þessa vinnu með nýjum aðalstöðvum félagsins við hlið Kassagerðarinnar. Þetta er mjög sérstakt hús og fallegt og á neðstu hæð verður sýning- arsalur sem mun verða notaður undir sýningar af ýmsu tagi.“ A döfinni Thomas segir Olís munu taka þátt í hönnunarsýn- ingum á árinu en ýmsar hugmyndir hafa komið fram um frek- ari þátttöku. Þar á meðal verða ýmsar uppákomur á bensín- stöðvunum og sú óvenjulegasta er sennilega sú að á öllum bensínstöðvunum verða mjög sérstakar málverkasýningar, svo ekki sé meira sagt. „Þetta verður spennandi ár í alla staði hjá Olís og menningarborginni því möguleikarnir eru ótal margir,“ segir Thomas að lokum. HD Thomas Möller, framkvæmdastjóri markaössvids Olís, segir að hönn- un sé í senn menning og mark- aðstœki. Það komi gleggst í Ijós við hönnun bensínstöðva! Efdr Vigdísi Stefánsdóttur Mynd: Geir Ólafsson 61

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.